Páskakveðja frá K.F.U.M. - 01.01.1916, Blaðsíða 4

Páskakveðja frá K.F.U.M. - 01.01.1916, Blaðsíða 4
4 PÁSKAKVEÐJA FRÁ K. F. U. M. Hvar er það afl, sem fallinn reisir? Hvar er það aíl, sem bæði molar tinnuklettinn og reisir við reyrinn brotna? Það er hjá honum, sem hjekk á krossinum og mælti: »Það er fullkomnað«. Ættum vjer ekki á heilagri tilheiðslustund að fljetta krans um krossinn? Hinn alvarlegasti dagur kemur við hjá oss. Guð gefi, að hann verði oss til blessunar, til sjálfsprófunar og heilla sálum vorum. Yikan er bráðum á enda. Hún ætli að enda i heilagri kyrð. Laugardagur fyrir páska ætti að vera sjerstakur kyrðardagur. Jesús var lagður í gröf. Kvöldhúmið færðist yfir og raddir dagsins voru þagnaðar, og í kvöldkyrðinni sátu vinir Jesú andspænis gröfinni og horfðu á hinn stóra stein fyrir grafardyrunum. Þeim hefirsann- arlega þá þótt lita illa út fyrir hinni kristnu trú. Var ekki sem von og trú þeirra væri lögð i gröf? Er ekki trú margra enn í gröfinni? Eru ekki vonir margra greftraðar og horfa ekki margir á stóran stein fyrir grafardyrum? Er ekki víða kvöldhúm og vonleysi í hjarta? En minnumst þess, að á eftir dymbildögum og dimmum kvöldstundum er björt morgun- stund í vændum, þá verður steininum velt frá. Þarf ekki að velta steini frá hjá þjer? í lífi voru er svo margt, sem þarf að rísa úr gröf. Ilugs- um um það á siðasta kvöldi hinnar kyrru viku og biðjum um dýrlega páskahátíð. Guð gefi, að hin kyrra vika verði oss til blessunar. Guð gefi, að hin dapra vika veki hjá oss slíkar hugsanir, að hin bjarta vika, sem á eftirkemur, verði rfk af dýrð og gleði. Notum heilagar og alvarlegar kyrðarstundir til þess að búa oss undir dýrlega sólarupprás. Bj. J. Páskasigur. Engillinn sagði: »Skelfisl eigi; þjer leitið að Jesú frá Nazaret, hinum krossfesta; hann er upp risinn, liann er ekki lijer«. (Mark. 1G., G.). Það er sárt að sjá allar vonir sínar verða að cngu, sjá fagrar byggingar hrynja skyndilega. Jesús var tekinn höndum og deyddur á krossi, en lærisveinarnir tvístruðust. Það var þá ekki gott útlit fyrir kristna kirkju. Það hefði enginn í .Terúsalem trúað því, að sigurinn mundi innan skamms veitast hinum fáu. Nú var alt búið, ljósið var sloknað og nóttin var skelfileg. Jesús lá í gröfinni og lærisveinarnir voru grátandi, en óvinirnir hrósuðu sigri og hafa eílaust sagt: »Þetta var þá alt og sumt, alt er nú horfið, og að litlum tima liðnum höfum vjer gleymt þessu öllu«. Mennirnir spá svo mörgu, en Guð ræður. Eftir daprar nætur sáust geislar páskasólarinnar. Páskakveðjan barst til hinna fáu: »Skelfist eigi; .Tesús er upp risinn«. Þeir voru fáir, sem valdir voru til þess að taka á móti jólaboðskapnum, og þeir voru fáir, sem valdir voru til þess að taka á móti páskakveðju. Þannig fer Guð að. Hann þarf ekki að hafa marga, til þess að sigurinn sje vís. Hernaðar- þjóðirnar verða að hafa sem flesta. En Guð byrjcir með hinum Jáu. Þetta benti Jesús vinum sínum á, er hann sagði: »Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefir þóknast að gefa yður ríkið«. — Páskarnir komu og þá varð tvennskonar kraftaverk. Jesús reis upp frá dauð- um, og lærisveinarnir gerbreyttnst, þeir urðu að öðrum mönnum. Hið gamla var afmáð, alt var orðið nýtt. Áður titrandi eins og laufblað í stormi, nú sterkar hetjur. Eitthvað stórkosllegt hlýtur að hafa komið fyrir, úr því að þessir menn breytt- ust þannig. Vjer vitum hvað það var. Hinn upp- risni frelsari tók við stjórninni og bljes afli í brotinn hálm. En nú fór heimurinn að veita eftirtekt þvi afii, sem hinir fáu menn höfðu eignast. Nú varð svo margt að láta undan sannfæringarkrafti þeirra. Nú komst heimurinn að raun um, að þeir voru þjónar guðdómlegrar sigurhetju. Sigurinn var þeim vís. Iiinir jáu sigruðu, og gerðu óvinina að vinum Krisls. Það urðu páskar, þar sem þessir menn voru á ferð. En á bak við þetta alt var Jesús, hann fór með þjóna sína í óslit- inni sigurför. Ilann heldur enn áfram sigurför- inní. Nú eru þeir margir, sem halda páska og tilbiðja Jesúm, menn af öllum þjóðílokkum, sorgbitnir og deyjandi menn, beygðir og aldur- linignir, glaðir og upplitsdjarfir menn, tápmiklir æskumenn, ungir og eldri menlamenn víðsvegar

x

Páskakveðja frá K.F.U.M.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Páskakveðja frá K.F.U.M.
https://timarit.is/publication/543

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.