Ný þjóðmál - 14.06.1974, Qupperneq 7

Ný þjóðmál - 14.06.1974, Qupperneq 7
NÝPJÓÐMÁL 7 Launþegar! Þegar þið gangið að kjörborðinu nú, þann 30. júni, erður aðeins um tvennt að velja. Yfirgangsstjórn atvinnurekendastéttarinnar eða tjórn verkafólks. Nú um þriggja ára skeið hefur verið við stjórn- mlinn stjórn með aðild launfólks, stjórn sem hefur rerið okkur launþegum hliðhollari en við höfum átt ið venjast um langt árabil. Samt sem áður vantaði ^erulega á til þess að verkalýðsflokkarnir fengu íægilegan styrk kjósenda til ennfrekari árangurs. 12 ára valdaskeið ihaldsflokkanna var okkur laun- oegum erfiður skóli, skóli sem kenndi okkur þá ’exiu, svo ekki varð um villst, að þessir flokkar eru trerkfæri atvinnurekendastéttarinnar og efnafólks i landinu. Verkfæri peningafólksins, verkfæri peningabraskaranna, verkfæri aðeins litils hluta þjóðarinnar, sem hefur margfaldar okkar tekjur. Innan raða ASI og BSRB eru á milli 70 og 80% af öllum vinnandi mönnum i landinu, mönnum sem þiggja laun á einhvern hátt fyrir vinnu. Þegar þessi rikisstjórn tók við fyrir þrem árum, báðu þessir menn aðeins um 50% af öllum greiddum launum i landinu. A þessu geta allir séð hversu gifurlega mikið launamisrétti hefur verið rikjandi þá, fyrir samningana um áramótin 1970/1971. Nú hefur dæminu verið snúið við, og kaupmáttur launa þessa fólks hækkað verulega. Ilverjir eru hagsmunir þinir, launþegi góður? Jú, þeir eru að halda áfram á þeirri braut að auka launapfnuð, koma á launajafnrétti, jöfnun á launum og aðstöðu þjóðfélagsþegnanna. Það eru þinir hagsmunir. Þá getum við spurt aftur: Hver eru þin hagsmunasamtök? Jú, þvi er fljótsvarað, það eru baráttusamtök láglaunafólks, Samtök frjálslyndra og vinstrimanna, sem bjóða fram F-listann i öllum kjördæmum. F-listinn cr eini listinn sem hefur fulltrúa lág- launafólks I meirihluta á lista sinum. Hvers vegna? Það er vegna þess, að það eru láglaunamenn sem að honum standa — menn sem standa með þér i stétt, menn sem hafa hagsmuni þina á oddinum. Þess vegna verður það auðvelt verk fyrir þig að velja menn til að fara með umboð þitt á löggjafar- þingi þjóðarinnar. Þú velur stéttarbræður þina, þú kýst F-listann, þina menn, þina hagsmunabræður. En viljirðu vinna gegn hagsmunum þinum, þá felur þú fulltrúum efnastéttarinnar mál þin: Mönnum, sem tókst að halda kaupmætti launa þinna niðri I 12 ár. Mönnum sem trúa þvl, að við séum svo smáir og svo fáir, að við getum ekki lifað á mannsæmandi hátt i landinu af eigin rammleik. Mönnum, sem ráku okkur launþega út i margra vikna verkföll nær árlega I 12 ár. Mönnum, sem gerðu þig atvinnulausann i eigin þágu, vegna eigin hagsmuna i atvinnurekstrinum, og ráku þannig úr landi á annað þúsund unga og fullfriska heimilisfeður frá fjölskyldum sinum — jafnvel heilar fjölskyldur til Astraliu. Mönnum, sem sent hafa sendisveina sina inn i raðir verkafólks til þess eins að sundra verkafólki i stéttarfélögum sinum. Ef þú launþegi góður velur þessa menn, skalt þú ekki koma kvartandi á fund i verkalýðsfélagi þinu. Nei, félagi, en það er ávarp sem við notum innan verkalýðshreyfingarinnar og þvi nota ég það hér, framboð F-listans er framboð láglaunafólks, liður i baráttu þess fyrir bættum kjörum til sjávar og sveita. Verkalýðsbarátta er pólitisk barátta og verður það alltaf. Þess vegna berjumst við fyrir þvi að launajöfnuði verði komið á þannig, að vinna verkamannsins verði virt á sannvirði, að fullkomið lýðræði verði á vinnustöðum okkar samkvæmt þeim skilningi, sem upp kom á siðasta þingi ASl, að algjört jafnrétti verði milli karla og kvenna á atvinnumarkaðinum sem annarsstaðar, að störf húsmæðra verði virt á sama hátt og störf annarra þegna þjóðfélagsins, og gerum ráð fyrir þvi að húsmæður geti þurft á veikindafri'um að halda sem aðrir vinnandi menn, að heilbrigðisþjónustan verði stórlega bætt, og sérstaklega er varðar atvinnusjúkdóma, en það furðulega er aö þetta atriði virðist hafa gleymst fram að þessu, að öll tannlæknaþjónusta verði færð inn i sjúkra- samlagskerfið, og blásum á þvætting ihaldsmanna i þessum efnum, að ellistyrkur verði hækkaður svo að sómi verði að, og önnur aðhlynning að öldruðu fólki stóraukin, að lifeyrissjóðir hins almenna launþega verði verðtryggðir, að staðið verði við fyrirheit stjórnarinnar i siðustu samningum um það, að þriðjungur allra ibúðabygginga á næstu árum verði byggður á félagslegum grundvelli með sömu lánakjörum og tiðkast hefur um slikar ibúðir. A þennan hátt mætti lengi telja, en öllum ætti að vera það nú alveg ljóst, að baráttumál verkalýðs- hrevfingarinnar eru okkar baráttumál. Kristbjörn Árnason Arnór Kárlsson, bóndi, skipar efsta sætið i Suðurlandskjördaámi: ekki tekið þátt i slikum uppboð- um, sveitarfélögin ekki heldur nema að takmörkuðu leyti, rikið eitt getur og verður að leysa málið. Og sú lausn þolir ekki bið. Með sömu þróun verður þess ekki langt að biða að allar beztu jarðir i landinu verði komnar i eigu fésterkra einka- aðila i þéttbýlinu með þeim af- leiðingum, að fólksflótti hefst úr sveitunum á ný og þjóðin i heild verður lengra frá þvi að eiga þetta land sitt en nokkru sinni fyrr. Hér biður bráðrar lausnar eitt brýnasta hagsmunamál is- lenzkrar bændastéttar. En þó að rétt sé, að hvorki verður byggð haldið við né hún aukin út um land nema að þar sé rekið þróttmikið atvinnulif, þá er hitt og vist að einhlitt er það ekki. Enn eru þau fornu orð i fullu gildi að maðurinn lifir ekki af einu saman brauði. Fólkið út um land verður einnig að búa við sömu aðstöðu til menntunar og Ibúarnir á Reykjavikursvæð- inu, viðunandi heilbrigðisþjón- ustu, forsvaranlegar samgöng- ur, sambærileg verzlunar- og viðskiptakjör svo að á sumt sé drepið en engan veginn allt. Á allt þetta og margt fleira skortir mjög, svo að sambærilegt sé við , Reykjavikursvæðið og er þarf- laust að nefna um það dæmi, svo mjög liggja þau i augum uppi öllum þeim, er við hinn skarða hlut búa. Þannig verða að hald- ast i hendur margháttaðar að- gerðir til úrbóta, ef unnt á að vera að valda þeim stefnuhvörf- um i þessum efnum, sem orðin eru þjóðinni nauðsyn. Já, þjóðinni lifsnauðsyn. Þvi það er skoðun min, að þjóðinni sé það lifsnauðsyn að nýta land sitt allt sem mest og bezt, án þess að ganga á höfuðstólinn. Og það er skylda okkar við sveltandi mannkyn að nýta framleiðslumöguleika landsins alls miklum mun betur en við gerum nú.Sú skyldaætti að vera ljúf hverjum sæmilegum manni. Ég óttast sannast sagna, að eins og horfir með matvæla- framleiðslu handa fjölgandi mannkyni i heiminum i dag, þá muni okkur ekki haldast til lengdar á þessu landi okkar nema þvi aðeins að við byggjum það betur, nýtum það betur, i stuttu máli: búum betur i land- inu en við höfum gert að undan- förnu. Magnús H. Glslason. vnarskinhelgi! tæðisflokks og Alþýðuflokks rði framkvæmd. Þeir mundu indir föðurlegri handleiðslu íató veita hjartkærum banda- nönnum okkar slikar undan- íágur að útfærsla þessi yrði itils virði. Hitt vita lika allir að vinstri itjórn mun stefna ótrauð með iskveiðilögsöguna út að 200 nilum, og allir vita að henni er nargfalt betur trúandi til að sjá ím framkvæmd þeirrar út- ærslu. Hugrekki þeirra Geirs og Jylfa i landhelgismálum sann- aðist áþreifanlega i viðbrögðum þeirra við átökunum milli Ægis og Evertons. Þeir hafa haldið þvi fram, að þau viðbrögð hafi orsakast af litlum upplýsingum um atburðina, en sannleikurinn var sá, að hér hjálpaðist að hræðsla þeirra við bandamenn- ina og óskhyggja þeirra að orðið hefðu mistök sem hægt væri að nota til að klekkja á rikisstjórninni. Það var þeim þá eins og siðar hugstæðara en þjóðarhagur. framtak 1 kosningaávarpi F-listans er lögð áhersla á, að félagslegt framtak skuli efít. Þar segir svo i D-lið kaflans um byggðamál: „Félagslegt framtak njóti forgangs i atvinnuuppbyggingu landsbyggðarinnar. Reynslan sýnir, að fyrirtæki fólksins sjálfs hafa reynst hinum dreifðu byggðum heilladrýgst”. Enginn, sem til þekkir, getur véfengt góða reynslu dreifbýlis- ins af samvinnufélögunum, bæði á sviði verslunar og þjón- ustuiðnaðar og afurðasölu land- búnaðarins. Einnig hafa sam- vinnufélögin viða átt umtals- verðan hlut að útgerð og fisk- vinnslu. Þessi félög hafa leyst þau verkefni, sem þurft hefur að leysa hverju sinni, án tillits til þess, hvort það væri liklegt til skjótfengins gróða fyrir félögin eða ekki. Þeirra hlutverk er að sinna kröfum félagsmanna. Hér skiptir verulegu máli, að hinn almenni félagsmaður taki virk- an þátt i félagsstarfinu. Hann þarf að fylgjast nokkuð með rekstrinum og geta gert kröfur um breytingar, ef honum þykir þörf á. A þessu hefur viða verið misbrestur i samvinnufélögun- um upp á síðkastið. Deildar- fundir eru illa sóttir og litið er um að veigamiklar ákvarðanir séu teknar á aðalfundum. Svo virðist, sem félögunum sé að langmestu leyti stjórnað af framkvæmdastjórunum, og það séu þeir, sem taki ákvarðanirn- ar. Oft má að visu benda á, að framkvæmdastjórarnir séu þeir einu, sem hafa næga faglega þekkingu og yfirsýn yfir rekst- urinn til að geta metið það mál, sem um er að ræða. En þetta veldur þvi að félagarnir lita ekki lengur á félagið sem sina eign, og telja sig þar af leiðandi ekki hafa sömu skyldur við það og ella. Hér þarf að verða breyt- ing á. Félagsfundir þurfa að taka ákvarðanirnar fyrir félög- in, og félagarnir eiga að fá sem oftast tækifæri til að taka á sig þá ábyrgð að velja um leiðir varðandi rekstur fyrirtækja fé- laganna. Þetta myndi stuðla að þvi, að félagar færu að gera sér meira far um að fylgjast með starfi fé- lagsins, og yrði hagkvæmni i rekstri þá skoðuð frá fleiri hlið- um. Veigamest væri þó, ef tæk- ist að tengja félagana fastari böndum við sin eigin félög. Það væri áreiðanlega mikill styrkur fyrir samvinnufélögin, ef þau gætu byggt á þvi að fá öll við- skipti félagsmanna sinna. Einn stærsti kosturinn, sem samvinnufélögin hafa fram yfir einkarekstur, er að ekki er hætta á, að það fjármagn, sem kann að safnast fyrir i þeim, flytjist burt úr viðkomandi byggðarlagi, eins og alltaf er hætta á með einkafjármagnið. Mjög augljós kostur á sam- vinnufélögunum nú er lika þeirra opinbera bókhald, þar sem hver og einn getur fylgst með rekstri þeirra, og engin tor- Arnór Karlsson tryggni þarf að vera um skil á söluskatti. Það er þvi full ástæða til þess, að fjármálavaldið láti sam- vinnufélögin og önnur hliðstæð félög, sem bundin eru við ákveðin byggðarlög og standa öllum opin, sitja fyrir með fjár- magn til fjárfestingar og rekst- urs. Eðlilegt er að stuðla ákveð- ið að þvi, að aukinn iðnrekstur út um land verði i höndum slikra félaga. Það er mál til koniið að ein- hver aðili I stjórnmáium taki hér af skarið, og beiti sér ákveð- ið fyrir forgangi félagslegs framtaks I atvinnuuppbyggingu landsbyggðarinnar. Þessi aðili er sú fylking, sem nú skipar sér undir merki F-listans.

x

Ný þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.