Ný þjóðmál - 14.06.1974, Blaðsíða 9

Ný þjóðmál - 14.06.1974, Blaðsíða 9
NÝ ÞJÓÐMÁL 9 RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður VÍFILSTAÐASPÍTALI. FóSTRA óskast til að annast dag- heimili fyrir börn starfsfólks. Upp- lýsingar veitir forstöðukona spital- ans, simi 42800. HJÚKRUNARKONUR óskast til afleysinga og i fast starf á hinar ýmsu deildir spitalans. Upplýsing- ar veitir forstöðukonan, simi 42800. LANDSPÍ TALINN. SÉRFRÆÐINGUR Og AÐ- STOÐARLÆKNIR óskast til af- leysinga á HANDLÆKNINGA- DEILD. Upplýsingar veitir yfir- læknir deildarinnar. RANNSÓKNARSTOFA HÁSKÓLANS. AÐSTOÐARLÆKNIR óskasttilaf- leysinga nú fyrst um sinn, en i fast starf með haustinu. Upplýsingar veitir yfirlæknir, simi 19506. Umsóknir er greini menntun.aldur og fyrri störf, ber að senda skrif- stofu rikisspitalanna, Eiriksgötu 5, Reykjavik. Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á sama stað. Reykjavik 7. júni 1974 SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMi 11765 AÐSTOÐ ÍSLANDS VIÐ ÞRÓUNARLÖNDIN. Lausar stöður við norrænu land- búnaðarstofnunina í Tanzaníu Finnska utanrikisráðuneytið hefir óskað eftir þvi að auglýstar verði til umsóknar hér á landi svo sem á öðrum Norðurlönd- um 17 stöður við norrænu landbúnaðar- stofnunina i Mbeya i Tanzaniu. Stöður þessar eru: Ein staða yfirmanns, er umsjón hafi með kennslu á vegum stofnunarinnar, 8 kennarastöður við bóklegt og verklegt nám, 4 stöður við rannsóknarstofnun og 4 stöður við tilraunastörf og þjálfun i þeim. Háskólapróf i búvisindum eða land- búnaðarhagfræði er yfirleitt skilyrði fyrir þvi að ráðning komi til greina, auk þess sem krafist er nokkurrar starfsreynslu. Umsækjendur þurfa einnig að vera mjög vel færir i ensku. Launakjör miðast við ráðningarkjör sér- fræðinga hjá Sameinuou þjóðunum. Þeir sem stöðurnar hljóta njóta skattfrelsis, ókeypis húsnæðis fyrir sig og fjölskyldur sinar, aukýmissa annarra friðinda. Ráðn- ingartimi er tvö ár frá komandi hausti. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar verða veittar á Skrifstofu Aðstoðar ís- lands við þróunarlöndin, Lindargötu 46 (herbergi nr. 12), Rvk., en skrifstofan er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 4-6 e.h. Tekið verður á móti umsóknum til og með 24. júni n.k. Aðstoð íslands við þróunarlöndin. Glundroða- kenningin Andstæðingar F-listans halda þvi fast að kjósendum að fram- boð hans auki mjög glundroða á vinstri væng stjórnmálanna. Hvað er nú hæft i þessu? Hvað hefur gerst? A sfðasta þingi fengu 5 flokkar - kjörna þingmenn. Boðið er fram i nafni sömu flokka en engra annarra i öllum kjördæmum landsins. Framboð annarra að- ila i þremur kjördæmum eru • ekki tekin alvarlega af neinum og koma þessu máli þvi ekkert við. Staðreyndin er að greining- in i flokka er hins sama og áður og þvi engin leið aö halda þvi fram að neinn glundroði hafi verið skapaður eða aukinn með framboði F-listans. Það sem ruglar ýmsa kjós- endur i riminu er hins vegar að nokkrar tilfærslur hafa orðið á fylgi samtaka og einstaklinga viðeinstaka lista. En framboðin sem koma fram eftir þcssar til- færslur skapa i raun og veru miklu skýrari linur í isienskum stjórnmálum en nokkru sinni fyrr á slðari árum. Tvö mikil- vægustu málin sem þessar kosningar standa um eru hvort hér skuli áfram sitja vinstri stjórn og hvort áfram skuli unnið að þvi að losa okkur við herinn úr landinu. Nú hafa ein- dregnustu stuðningsmenn þess- ara málefna úr Alþýðuflokki og Framsóknarflokki gengið til samvinnu við samtök frjáls- lyndra og vinstri manna um framboð F-listans, en nokkrir einstaklingar sem settu önnur málefni ofar þessum hafa hætt virkum stuðningi við SFV og sumir gengið i Alþýðuflokkinn. Kjósendur semvilja vinstra samstarf og vinstri stjórn i landinu vita nú að þeir geta ekki kosið Alþýðuflokkinn sem setur lif sitt að veði fyrir hægri stjórn i landinu, og þeir vita að örugg- asta leiðin til að tryggja vinstri stjórn er að veita F-listanum brautargengi. Kjósendur sem vilja losna við herinn vita nú að þeir mega ekki kjósa Alþýðu- flokkinn. Hann hefur ofurselt sig Vörðu landi, og þeir vita að eina leiðin til að losna við herinn er áframhaldandi samstarf þeirra þriggja flokka sem mynduðu vinstri stjórnina um þá stefnu sem mótuð var i mál- efnasamningi hennar. Þing- menn F-listans munu styðja þá stefnu af fullri einurð. Sigur F-Iistans er þvl for- senda fyrir vinstra samstarfi. Vinstri stjórn á Akur- eyri Á fyrsta fundi bæjarstjórnar Akureyrar cftir bæjar- stjórnarkosningarnar kom i Ijós, að myndaður hafði verið meirihluti allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins i bæjar- stjórninni. Þessi fundur var haldinn sl. þriðjudag. Að meirihlutanum standa Alþýðubandalagið, Al- þýðuflokkurinn, Framsóknar- flokkurinn, og Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna, en þessir fjórir flokkar hafa sex bæjarfulltrúa af ellefú. Bjarni Einarsson var endur- kjörinn bæjarstjóri. og Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri KEA, var kjörinn forseti bæjarstjórnar. Fyrsti vara- forseti er Freyr Ofeigsson og annar varaforseti Soffia Guðmundsdóttir. Endurtöku- og sjúkrapróf og hjálparnámskeið í framhaldsdeildum (5. og 6. bekk gagnfræðaskóla) Hjálparnámskeið fyrir 5. og 6. bekk fram- haldsdeilda verður haldið dagana 10.-20. júni i Gagnfræðaskóla Austurbæjar, Reykjavik. Kennt verður i þessum grein- um, alla virka daga: Þýska fyrir 5. og 6. bekk kl. 16.00-17.30 Efnafræði fyrir 5. bekk kl. 17.30-19.40 Stærðfræði fyrir 5. bekk kl. 20.00-21.40 Endurtöku- og sjúkrapróf haldin i Gagn- fræðaskóla Austurbæjar, Reykjavik, verða sem hér segir: Fimmtudaginn 20. júni kl. 9-11.30 isl. i 5. og6. bekk,bókfærsla i 5. bekk. Föstudaginn 21. júni kl. 9-11.30 danska i 5. og 6. bekk Laugardaginn 22. júni kl. 9-11.30 enska i 5. og6. bekk saga i 5. bekk. Mánudaginn 24. júni kl. 9-11.30 þýska i 5. og 6. bekk. Þriðjudaginn 25. júni kl. 9-11.30 stærðfræði i 5. og 6. bekk. Miðvikudaginn 26. júni kl. 9-11 eðlisfræði i 5. bekk,sálarfræði i 6. bekk. Fimmtudaginn 27. júni kl. 9-11 efnafræði i 5. og 6. bekk. Föstudaginn 28. júni kl. 9-11 lifeðlisfræði i 5. og 6. bekk. Laugardaginn 29. júni kl. 9-11 jarðfræði og veðurfræði i 5. bekk,liffræði i 6. bekk. Nemendur eru beðnir að tilkynna þátttöku i hjálparnámskeiðunum mánudaginn 10. júni kl. 9-12 i sima 10400. Reykjavik, 7. júni 1974 Menntamálaráðuneytið. Fró Flensborgarskóla Umspkn um skóiavist i 3. og4. bekk gagn- fræðastigs, 5. og 6. bekk framhaldsdeild- ar, 1. og 2. bekk menntadeildar, þarf að skila á skrifstofu skólans i siðasta lagi n.k. laugardag, 15. júni. Skrifstofan verður opin kl. 9-12 og kl. 4-6 alla daga i þessari viku. Þeir, sem ekki skila umsóknum á þessum tima, hætta á að ekki verði unnt að tryggja þeim vist i skólanum. Skólastjóri. Sjúkraliðanám á Landspítalanum Nýtt eins árs námstimabil hefst í sjúkra- liöaskóla Landspitalans þ. 15. október n.k. Umsækjendur um námspláss skulu hafa lokið prófi skyldunámsstigs og vera fullra 18 ára. Upplýsingar verða gefnar og umsóknar- eyðublöð afhent á skrifstofu forstöðukonu kl. 12-13 og kl. 15-16 til 22. þm. Umsóknir skulu hafa borist til forstöðukonu Land- spitalans fyrir 1. júli 1974. Reykjavik 7. júni 1974. Skrifstofa rikisspitalanna.

x

Ný þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.