Ný þjóðmál - 14.06.1974, Síða 10

Ný þjóðmál - 14.06.1974, Síða 10
10 NÝ ÞJÓÐMÁL Frá Tækniskóla íslands Áætluð starfsemi 74/75 ALMENN MENNTUN: Undirbúningsdeild I Reykjavik, á Akureyri og Isafiröi. Raungreinadeild i Reykjavik, Á Akureyri og Isafirði. Raungreinadeild fyrir tækná I Reykjavik. TÆKNADEILDIR 1 REYKJAVÍK: Þetta nám tekur 3 kennsluannir eftir undirbún- ingsdeild — sérákvæði gilda þó I meinatæknadeild. rafmagn: Framhaldsmenntun fyrir iðnaðarmenn I rafvirkjun og rafeindavirkjun. vélar: Framhaldsmenntun fyrir málmiðnaðarmenn. byggingar: Framhaldsmenntun fyrir byggingariðnaöarmenn. útgerð: Framhaldsmenntun fyrir sjómenn, sem að baki hafa drjúga starfsreynslu.* meinatækni: Námiö tekur samtals 2 ár og er kennslan að mestu verkleg siðara áriö. TÆKNIFRÆÐIDEILDIR í REYKJAVÍK: Þetta nám tekur 3 ár (og riflega þó i byggingadeild) eftir raungreinadéild. 1. hluri i byggingum, vélum, rafmagni, rekstri og skipum (2. og 3. hluta i ööru en byggingum verður að sækja erlendis). 2. og 3. hluti . í byggingum. INNTÖKUSKILYRÐI: Bókleg: Krafist er þessarar eða hliðstæðrar undirbúnings- menntunar: t undirbúningsdeild: Burtfararpróf úr iðnskóla, gagnfræðapróf eða landspróf miðskóla. t raungreinadeild: Undirbúningsdeild tækniskóla, 4. stig vélstjóranáms, stúdentspróf (önnur en eðlissviös). 1 tæknideildir (aðrar en meinat.d.): Undirbúningsdeild tækniskóla. t meinatæknadeild: Stúdentspróf. t 1. hluta tæknifræði: Raungreinadeildarpróf tækniskóla, stúdentspróf eölissviðs. Verkleg: 1. Vegna náms I rafmagni, vélum og byggingum: Sveinspróf eða verkleg þjálfun, sem felur I sér jafngilda þekkingu á vinnubrögðum og veitt er i skyldu iðnnámi, þótt umsækjandi þurfi ekki að hafa náð þeirri starfsleikni og bók- legri fagþekkingu, sem krafist er til sveinprófs. í vafatilfellum er haldið inntökupróf. 2. Vegna náms I útgerð: 1/2 árs starf á farskipum og 1/2 árs starf við llnu- og netaveiöar og 1/2 árs starf á botnvörpuskipum og 1/2 árs starf við fiskvinnslu I landi, EÐA sambærilegt aö mati skólanefndar. 3. Vegna náms I meinatæknadeild: Engar kröfur. 4. Vegna náms I skipatæknifræöi: Eftir raungreinadeildarpróf geta nemendur fariö I 4ra ára nám i skipatæknifræði I Helsingör i Danmörku. Hér er ekki gerð forkrafa um verkkunnáttu. Starfræksla ræknideildanna er bundin fyrirvara um þátt- töku og húsrými I skólanum. Umsóknareyðublöö fást á skrifstofu skólans að Skipholti 37, mánudaga til föstudaga kl. 0800-1600. Umsóknarfrestur er til 15. júniog skrifleg svör skólans verða send fyrir 1. júli. Skrifstofan verður lokuð 1. júli-5. ágúst. Næsta skólaár hefst mánudaginn 2. sept. 1974. Rektor. Framboðs- fundir í Reykjar neskjördæmi Sameiginlegir framboðs- fundir i Reykjaneskjördæmi hafa verið álfveðnir sem hér segir. 1 Hlégarði, Mosfellssveit, fimmtudaginn 13. júni, kl. 20.30. 1 Kópavogi fimmtudaginn 20. júni kl. 20.30 1 Stapa föstudaginn 21. júni kl. 20.30 í Hafnarfirði mánudaginn 24. júni kl. 20.30 Á fundunum mæta fram- bjóðendur allra framboðslista i kjördæminu. Kjarni Framhald af bls. 4. þeirri átt, sem i upphafi var stefnana, getur hugsjónakraftur liðsmanna enn verið svo sterk- ur, að tekið sé i taumana. Hinn almenni félagsmaður vill ekki átölulaust láta fórna hinum margþætta umbótatilgangi fyrir tlmabundin völd fá- mennrar kliku. Til sjávar og sveita, i öllum landshlutum ris hinn almenni flokksmaður upp til að slá skjaldborg um þá grundvallarstefnu, sem flokkn um var ætlað að fylgja, og þau viðhorf, sem móta skulu fram- tiðarsýn hans.” Kjarni stefnunnar „Kjarninn I stefnu og störfum Framsóknarflokksins hefur fyrst og fremst átt að vera fólg- in I eftirfarandi megin atriðum: 1) Að veita brautargengi þeim þætti hinnar alþjóðlegu jafnaðar hyggju, sem fólgin er i sam- vinnuhugsjóninni. Að styrkja hið félagslega samvinnustarf á öllum sviðum og tryggja að samvinnusamtök alþýðu til sjávar og sveita nái sem bestum árangri, auki hagsæld og efli félagsþroska fólksins. Sam- vinnuhugsjón i verki er lýð- ræðislegt vald fólksins yfir framleiðslutækjum og fjár- magni. 2) Að skapa öllum Islending- um, hvar sem þeir búa á land- inu, jafna aðstöðu til atvinnu, menntunar, félagslifs og áhrifa. Barátta gegn hinni geigvænlegu byggðaröskun verður æ brýnni með ári hverju. Vandinn er meiri en stjórnvöld hafa viljað viðurkenna. Eigi jöfnuður i framtiðinni að einkenna hið is- lenska þjóðfélag verður að beita mun róttækari aðgerðum en áður. 3) Að útrýma margvislegri fjármálaspillingu, sem grefur um sig á mörgum sviðum. Heiðarleiki I opinberu lifi og viðskiptum hefur verið aðals- merki þeirra, sem mestu hafa áorkað til þjóðfélagslegra um- bóta. Griðabrall og valdniðsla peningaafla hafa aldrei sam- rýmst þjóðmálastarfi félags- hyggjufólksins. Að hefja verndara brasks og auðhyggju til valda og áhrifa getur aðeins leitt umbótaflokk á refilstigu. 4) Að vera forystuafl fyrir stjórnmálahreyfingu félags- hyggjufólksins i landinu. Reynslan hefur sýnt, að islenskt þjóðfélag hefur tekið mestum stakkaskiptum, þegar jafnaðar- og samvinnumenn hafa tekið höndum saman. Að koma á varanlegum tengslum milli allra þeirra, sem aðhyllast hug- sjónir jafnaðar, samvinnu og lýðræðis er eitt helsta stjórn málaverkefni samtimans. Sam- tenging þeirra, sem aðhyllast sömu grundvallarhugsjónir er forsenda varanlegrar um- sköpunar þjóðfélagsins. 5) Að standa vörð um sjálf- stæði islensku þjóðarinnar. Andstaða við herveldi og sam- staða með smáþjóðum og friðáröflum eru þau markmið, sem íslendingum sæma best i samfélagi þjóðanna. Jöfnuður, friður, réttlæti og lýðræði með þjóðum heims eFu raunhæfasta tryggingin, fyrir sjálfstæði ís- lendinga.” Auglýsing frá póst- og símamálastjórninni Póstur og simi mun ráða pilta og stúlkur á aldrinum 18-25 ára i póstnám, sem er verklegt og bóklegt nám. Námstiminn er eitt til tvö ár, eftir undir- búningsmenntun, og fá nemar laun meðan á honum stendur. Um framtiðarstarf er að ræða fyrir þá , sem ljúka náminu. Námstimi þeirra, sem hafa stúdentspróf, verslunarskólapróf og hliðstæða menntun er eitt ár. Námstimi gagnfræðinga er tvö ár. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá dyraverði Póst- og simahússins við Kirkjustræti, en nánari upplýsingar gefur Kristján Helgason, skólastjóri Póst- og simaskólans, simi 26000. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 24. júni n.k. UMFERÐARFRÆÐSLA 1974 5 og 6 ára barna í Reykjavík Brúðuleikhús og kvikmyndasýning Lögreglan og Umferðarnefnd Reykjavik- ur, i samvinnu við Fræðsluskrifstofu Reykjavikurborgar, efna til umferðar- fræðslu fyrir 5 og 6 ára börn i Reykjavik. Hvert barn á þess kost að mæta tvisvar, klukkustund i hvort skipti. Sýnt verður brúðuleikhús og kvikmynd, auk þess sem börnin fá verkefnaspjöld. Fræðslan fer fram sem hér greinir: 11.-12. júni. Melaskóli Austurbæjarskóli 6 ára börn 5 ára börn Kl. 09.30 Kl. 11.00 Kl. 14.00 Kl. 16.00 13.-14. júni Fellaskóli Vogaskóli Kl. 09.30 Kl. 14.00 Kl. 11.00 Kl. 16.00 18.-19. júni Hliðaskóli Langholtsskóli Kl. 09.30 Kl. 14.00 Kl. 11.00 Kl. 16.00 20.-21. júni Breiðagerðisskóli Árbæjarskóli Kl. 09.30 Kl. 14.00 Kl. 11.00 Kl. 16.00 24.-25. júni Álftamýrarskóli Laugarnesskóli Kl. 09.30 Kl. 14.00 Kl. 11.00 Kl. 16.00 26.-27. júni Fossvogsskóii ÆfingadeildK.Í. Kl. 09.30 Kl. 14.00 Kl. 11.00 Kl. 16.00 28. júni-1. júli Hvassaleitisskóli Breiðholtsskóli Kl. 09.30 Kl. 14.00 Kl. 11.00 Kl. 16.00 Lögreglan. Umferðarnefnd Reykjavikur.

x

Ný þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.