Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.07.1935, Page 5
Ljós og Sannleiknr
61
glóðarkeri, og var honum fengið milcið af
reykelsi, til þess að hann skyldi leggja það
við bænir allra hinna heilögu á gullaltarið fyrir
framan hásætið“. (Op. 5, 4; 8, 3.) Jóhannes
fékk að sjá fremri hluta helgidómsins á hitnn-
um; þar sá hann hin „sjö eldblys“ og gull-
altarið, sem i jarðneska helgidóminum var
táknað með gullljósastikunni og reykelsisaltar-
inu. Enn fremur sá hann að „musteri Guðs
opnaðist, það sem á himni er“, og gat hann
þá séð inn fyrir fortjaldið og inn í hið allra-
helgasta. Þar sá hann „sáttmálsörk hans“.
(Op. 11, 19), þá sáttmálsörk, sem hin heilaga
sáttmálsörk, er Móse gerði, og sem geymdi
lögmál Guðs, var eftirlíking af. . . . Móse
gerði jarðnesku tjaldbúðina eftir fyrirmynd,
sem honum var sýnd. Páll kennir, að þessi
fyrirmynd hafi verið hinn sanni helgidótnur,
sem er á himnum; og Jóhannes vitnar það,
að hann hafi séð hann þar.
Það var helgidómurinn á himnum, sem
Daníel fékk að vita, að ætti að verða hreins-
aður eftir 2300 ár; því að jttrðneski helgidóm-
urinn var þá fyrir löngu undir lok liðinn.
Hvað felst þá í því, að helgidónntrinn skyldi
hreinsaður verða? Þetta verður manni skiljan-
legast með því, að lesa um hreinsun jarðn-
eska helgidómsins, er fór fram einu sinni á
ári, á hinum mikla friðþægingardegi, þegar
helgidómurinn var hreinsaður með blóði geit-