Tíminn - 07.12.1989, Side 10
10 Tíminn
JÓLAHANDBÓKIN
llllllllllllllllllllllll BÆKUR
TÓNLIST
OGHDOÐFÆRI
Fjölfræðibók
um tónlist og
hljóðfræði
Þriðja verkið í bóka-
flokknum Heimur í
hnotskurn.
í bókinni Tónlist og hljóðfærí,
sem Vcika-Helgafell sendir nú á
markað, er fjallað um hljóðfærin
og hvernig þau eru notuð til að
túlka tónlistina - allt frá
einföldustu flautum og bumbum
til flóknustu hljóðfæra nútímans.
Frá því að steinaldarmaðurinn sló
saman grjóti til að vekja hljóð hafa
menn fundið upp aragrúa
hljóðfæra í leit sinni að nýjum
leiðum til að tjá tónhugsanir.
Bókin Tónlist og hljóðfæri er
þriðja bókin sem Vaka-Helgafell
gefur út í fjölfræðibókaflokknum
Heimur í hnotskurn. Bækurnar
eru unnar í samvinnu breskra og
franskra bókaforlaga og hafa
hvarvetna hlotið lof og alþjóðlega
viðurkenningu fyrir nýstárlega
framsetningu og myndrænar
útskýringar.
Bókin Tónlist og hljóðfærí á að
svala fróðleiksfýsn ungra sem
aldinna á einkar skemmtilegan
hátt. Framsetning efnis er
myndræn og nútímaleg.
Brautryðjendaverk hefur verið
unnið við þýðingu bókarinnar.
Hana önnuðust tólf sérfræðingar,
hver á sínu sviði, en Guðmundur
Emilsson tónlistarstjóri var
ritstjóri þýðingarinnar og Arni
Böðvarsson málfarsráðunautur
var til ráðuneytis um málfar. Hér
er gerð tilraun til að þýða á
íslensku orð sem ekki hafa verið
til áður og samræma
hugtakanotkun. Þeir sem hafa
kynnt sér bókina eru sammála um
að vel hafi tekist til og bók þessi
verði þvi umtalsvert framlag til
málræktar.
Prenttækni hf. í Kópavogi
annaðist setningu og
filmuvinnslu bókarinnar en A.
Mondadori í Veróna á Itáh'u sá um
prentun og bókband.
Súkkulaðiterta með rommkremi
Notaðu AKRA
með öðru úrvals hráefni....
og útkoman verður frábær!
Súkkulaðiterta með rommkremi
Léttþeytið 70 g AKRA smjörlíki, 90 g sykur,
90 g púðursykur og 3 egg.
Hrærið saman við 150 g hveiti, V2 tsk.
natron, 2 tsk. salt, 25 g kakó og 150 g mjólk.
Bakið við 190°C í 20 mínútur.
Rommkrem
Hrærið saman 50 g kakó, 500 g flórsykur og
350 g AKRA smjörlíki og bætið í
rommdropum eftir smekk. Skreytið kökuna.
Verði ykkur að góðu!
Gott úrval af vörum fyrir yngstu börnin. Barna-
vagnar og kerrur í miklu úrvali.
Bílstóll 4.900 kr.
Dúkkuvagn 7.990 kr.
■ari ilWIIBWBBMMMBWMMBMBHBBMl
ABGUS/SU