Tíminn - 07.12.1989, Blaðsíða 11
JÓLAHANDBÓKIN
Tíminn 11
Gestapo
Höfundur: Sven Hassel
Útgefandi: Skjaldborg hf.
Sven Hassel er þekktasti
stríðsbókahöfundur í heiminum í
dag. Hann hefur skrifað fjórtán
bækur um seinni
heimsstyrjöldina. Hann skrifar
sögu herflokks sem hann kallar
„Hersveit hinna fordæmdu", en í
þeirri hersveit eru alls konar
misindismenn sem hefur verið
safnað saman og eru alltaf í
fremstu víglínu. Þeir þurfa að taka
að sér verkefni sem enginn annar
fæst til að vinna enda er öllum
sama um örlög þeirra. En þeir hafa
tilfinningar undir hrjúfu yfirbragði
og Sven Hassel tekst að koma öllu
þessu til skila. Höfundurinn gekk
sjálfur í þýska herinn 1937 og
segir að það hafi verið af
stráksskap eingöngu, hann hafi
ekki gert sér ljóst hvað hann var
að gera. Hann tók þátt í
hildarleiknum sjálfur og veit því
hvað hann er að skrifa um. í
þessari bók fjallar hann um þýsku
herlögregluna sem var skelfileg
ógnun alls staðar þar sem hún
starfaði. Þessi bók er ósvikin Sven
Hassel bók og ef til vill hans besta.
MARY STEWART
ARFUR H
liðna
Hjá Iðunni er komin út ný
skáldsaga eftir hinn vinsæla
rithöfund Mary Stewart. Þetta er
þrettánda bók hennar sem út
kemur á íslensku og hafa fyrri
bækurnar allar náð miklum
vinsældum, enda kunna fáir betur
að segja spennandi og heillandi
sögur, sveipaðar rómantík og
dulúð.
Hér segir frá Gilly Ramsey sem
erfir hús frænku sinnar,
Þyrnigerði, og ákveður að setjast
þar að. Hún hefur engan grun um
að í augum nágrannanna hvflir
dulúðugur blær yfir húsinu því að
Geillis frænka hafði verið álitin
fjölkunnug. Gilly verður þess
skjótt vör að hún hefur erft fleira
en hús frænku sinnar og það er
eins og Geillis sé enn á ferli og
spinni eigin álagavef til —----
gegn hinu illa.
Að lokum neyðist Gilly
velja sína eigin leið gegnur
töfraskóginn og það gerir hún
með aðstoð lítils drengs sem leitar
til hennar - og föður hans
rithöfundarins John Christopher.
Báðir eiga þeir greiða leið að
hjarta hennar.
Þórey Friðbjörnsdóttir þýddi.
fæst hjá okkur. Höfum geysilegt
úrval af fjarstýrðum bílum af mörgum
gerðum og í öllum verðflokkum.
Einnig bíla, flugvélar, mótorhjól,
geimför, báta, lestir og hús í hinum
vönduðu Revell módelum.
Auk þess höfum við stórar dúkkur, litlar dúkkur
og fjöldann allan af öðrum leikföngum, fallegum,
vönduðum og þroskandi fyrir börn á
öllum aldri.
URVAL LEKFANGA
Sængur SvæflarKoddar
Sængurverasett Vöggusett
Barnasett Lök Unglingasett
SÆNGURFATAVERSLUN
Sími 91-20978
Njálsgötu 86
NORÐMANNSÞINUR
Jólatréð sem ekki fellir barrið
Jólatrén okkar
eru óvenjufalleg
í ár. Komið í
jólaskóginn og
veljið jólatré við
bestu aðstœður
Landsbyggðarþjónusta. Sendum jólatré
hvert á land sem er. Pantiö tímanlega.
Gróðurhúsinu við Sigtún. Sími 689070