Tíminn - 07.12.1989, Blaðsíða 17
JÓLAHANDBÓKIN
Tíminn 17
BÆKUR
Kúbanskur
kapall
Iðunn hefur gefið út
Kúbanskan kapal eftir Bjarne
Reuter, einn þekktasta og virtasta
rithöfund Dana. Bjame Reuter
hefur hiotið margvíslegar
viðurkenningar fyrir verk sín, nú
síðast dönsku
bókmenntaverðlaunin Gullna
lárviðarsveiginn, sem féllu honum
í skaut eftir útkomu þessarar
bókar fyrr á árinu. Kúbanskur
kapall vakti þegar í stað mikla
athygli og varð ein söluhæsta bók
ársins í Danmörku.
Þetta er æsileg saga um afbrot
og svikræði, þar sem ekki er allt
sem sýnist. Utanríkisráðherrann
finnst myrtur og allir forkólfar
lögreglu og leyniþjónustu hefja
rannsókn á málinu. Á sama tíma
eru Johan Klinger og Otto fólagi
hans að vinna að rannsókn á
morði gleðikonu sem fundist hafði
illa útleikin í höfninni. Getur það
verið að einhver tengsl séu á milh
þessara mála?
Það er ekki fyrr en Johan KUnger
kemur í hitabeltisloftslagið á
Kúbu sem hlutirnir fara að skýrast
og flett er ofan af heldur
ógeðfelldum samsærum og
dularfullum atvikum. En er þá
kannski allt um seinan?
Sverrir Hólmarsson þýddi
bókina.
Bás^piraf
eftíntiinnilegri
og sétaæM
Lífsreynsla -
lokabindi
Bragi Þórðarson tók
saman
Út er komin hjá Hörpuútgáfunni
3. og síðasta bókin í
bókaflokknum Lífsreynsla. Eins
og áður er skyggnst inn í
margþætta lífsreynslu fólks úr
öllum landsfjórðungum. Sagt er
frá baráttu þess við náttúruöfl,
veikindi, ofdrykkju og margs
konar lífsháska sem breytir
viðhorfinu til lífsins. Með þessari
bók lýkur útgáfu ritsafnsins.
Nafnaskrá er í bókinni.
Efni: Sigurður Sverrisson,
Akranesi: „Var búinn að sætta
mig við að deyja“. Frásögn
Björgvins Björgvinssonar,
Akranesi, af björgun úr
námaslysi.
Anna Ólafsdóttir Bjömsson,
Reykjavík: „Ekki varð öUum
bjargað". Frásögn Sigríðar
Guðmundsdóttur af
hjálparstarfinu í Eþíópíu.
Inga Rósa Þórðardóttir,
EgUsstöðum: „Snjóflóðið
steyptist yfir okkur". Frásögn
Heimis Þorsteinssonar, Þorsteins
Kristjánssonar og Nönnu
Jónsdóttur, Stöðvarfirði.
Jóhanna Margrót Einarsdóttir,
Reykjavík: „Örlögunum fær
enginn breytt". Frásögn af
Ufsreynslu Ágústu Drafnar
Guðmundsdóttur frá
V estmannaeyjum.
Sigurgeir Jónsson,
Vestmannaeyjum: „í vist hjá
hörðum húsbónda". Frásögn
Einars Sigurfinnssonar,
Vestmannaeyjum, af baráttu
hans við Bakkus.
Bjöm Þorleifsson, Húsabakka:
„Þrír lífsháskar - og þó nokkur
beinbrot". Sagt frá lífsreynslu
SigurðarMarinóssonar, LaugahUð
í Svarfaðardal.
Ólafur Jóhannsson, Reykjavík:
„ViUtur í þrjá sólarhringa".
Frásögn Geirs Jóns Karlssonar af
giftusamlegri björgun.
Herdís Ólafsdóttir, Akranesi:
„Enginn veit sína ævina". Bam
verður móðurlaust.
Sveinn EUasson, Reykjavík:
„Hættuför í skugga
heimsstyrjaldar." Kafbátar
ógnuðu skipalestinni.
Erlingur Davíðsson, Akureyri:
„Dauðinn beið í næsta broti. — Við
sáum brotsjóinn rísa".
PáU Lýðsson, Litlu-Sandvík: „í
fárviðri á fjöUum". Frásögn
Kristins Helgasonar, Halakoti.
Jóhannes Sigurjónsson,
Húsavík: „Heppinn að sleppa
lifandi". Frásögn Héðins
Ólafssonar, FjöUum, Kelduhverfi.
Líf sreynsla 3 er 228 bls., prýdd
fjölda mynda af fólki og atburðum.
Kápa: Emst Backman. Prentun og
bókband: Oddi hf.
Aldnir hafa
orðið
Höfundur: Erlingur
Davíðsson
Bókaflokkurinn „Aldnir hafa
orðið" varðveitir hinar
merkUegustu frásagnir eldra fólks
af atburðum löngu Uðinna ára og
um það sjálft, atvinnuhættina,
siðvenjumar og bregður upp
myndum af þjóðlífinu, ömm
breytincfum og stórstígum
framfömm, þótt ekki sé um
samfeUdar ævisögur að ræða.
Með hinum öldnu sem kveðja
hverfur jafnan mikiU fróðleikur og
Uf sviska sem betur er geymdur en
gleymdur.
Fólk það, sem segir frá í þessari
bók og fyrri bókum í þessum
bókaflokki, er úr ólíkum jarðvegi
sprottið og starfsvettvangur þess
fjölbreyttur, svo og lífsreynsla
þess. Frásagnirnar spegla þá
Uðnu tíma sem á öld hraðans og
breytinganna virðast nú þegar
orðnir fjarlægir. En aUar hafa þær
sögulegt gUdi þótt þær eigi fyrst
og fremst að þjóna hlutverki góðs
sögumanns sem á fyrri tíð vom
aufúsugestir.
Með útkomu þessa bindis, sem
ALDNIR
HAFA
ORÐID
er hið 18., lýkur þessum merkUega
bókaflokki. í þessum bókum hefur
verið rætt við á annað hundrað
einstaklinga, úr flestum
þjóðfélagsstéttum og öUum
landshlutum, þessar bækur em
því saga fólksins í þessu landi.
Þessi segja frá: Bjarni
Jóhannesson, skipstjóri frá
Flatey, Eiríkur Björnsson, bóndi
og oddviti frá ArnarfelU, Einar
Malmqvist, fyrrverandi
útgerðarmaður, KetiU Þórisson,
bóndi í Baldursheimi, Guðný
Pétursdóttir hjúkmnarkona,
Snælandi í Kópavogi, Þórður
Oddsson, læknir í ReykjavUc, og
Þorsteinn Guðmundsson, bóndi á
Skálpastöðum.
ÍSLENZK ÁSTALJÓÐ
Snorri Hjartarson valdi Ijóöin. ( bókinni eru 70 Ijóö eftir 50
íslensk skáld, öll Ijóðin eru listaverk. Snorri Hjartarson var
einn af öndvegishöfundum íslenskrar Ijóðlistar á þessari öld.
Nafn hans tryggir vandaö Ijóðaval.
Verð: 1950 kr.
HALLGRÍMUR PÉTURSSON
Sálmar og kvæði - úrval
Fyrra bindið er Passíusálmarnir í útgáfu Helga Skúla Kjart-
anssonar, en síðara bindið er safn sálma og kvæða, úrval,
tekið saman af Páli Bjarnasyni cand. mag. Hallgrímur Péturs-
son er eitt mesta trúarskáld okkar fyrr og síðar, en hann orti
einnig gamankvæði, stökur, lausavísur og rímur. Einstaklega
fallegt og eigulegt ritsafn sem á erindi inn á hvert heimili.
Verð: 4975 kr.
AFLAKÓNGAR OG
ATHAFNAMENN III
í þessu síðasta bindi ritsafnsins eru stór-
fróðleg viðtöl Hjartar Gíslasonar við
útvegsmenn og skipstjóra úr öllum lands-
fjórðungum. Viðmælendur eru: Guðrún
Lárusdóttir, Hafnarfirði, Ólafur Örn
Jónsson, Reykjavík, Ingvi Rafn Alberts-
son, Eskifirði, Runólfur Hallfreðsson,
Akranesi, örn Erlingsson, Keflavík og
Guðbjartur Ásgeirsson, (safirði. Þetta er
bók sem fjallar í máli og myndum um það
sem efst er á baugi í íslenskum sjávarút-
vegi og gefur raunsanna mynd af lífi sjó-
manna.
Verð: 2980 kr.
BÆNDURÁ
HVUNNDAGSFÖTUM
Samtalsbók Helga Bjarnasonar um
nútíma bændur, líf þeirra, búskap og
áhugamál, félagsstörf og skoðanir. Þau
sem segja frá eru: Aðalsteinn Aðalsteins-
son á Vaðbrekku, Guðrún Egilsdóttir í
Holtsseli, Pálmi Jónsson á Akri, Ólafur
Eggertsson á Þorvaldseyri, Jóhannes
Kristjánsson á Höfðabrekku og Þórólfur
Sveinsson á Ferjubakka. 120 Ijósmyndir
prýða bókina. Hún er fróðleiksnáma um líf
og störf bænda.
Verð: 3280 kr.
LÍFSREYNSLA III
í þessu lokabindi safnsins er sem fyrr
skyggnst inn í margþætta reynslu fólks úr
öllum landshlutum. Meðal efnis er frásögn
Sigríðar Guðmundsdóttur af hjúkrunar-
störfurp hennar í Eþíópíu, sagt frá ótrúlegri
björgun (slendings úr námuslysi á Sval-
barða, frásögn Ágústu Guðmundsdóttur
sem lamaðist í mótorhjólaslysi og lýsing
Einars Sigurfinnssonar á martröð alkóhól-
istans. Einnig frásagnir af björgun úr lífs-
háska á sjó og landi. Ógleymanleg og
áhrifamikil bók.
Verð: 2980 kr.
HÖRPUÚTGÁFAN
Stekkjarholti 8-10, 300 Akranes
Suöurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
. NÝR DAGUR.