Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1906, Page 8

Ægir - 01.09.1906, Page 8
28 ÆGIR. tölu og vigt er hann seldur allur á upp- boði. Um 220—240 pd. af fiski eru í hverri kúffyltri tunnu, ei'lir vænleik fisksins. Talan er vanalega 45 fiskar fyrsta ílokks eða vænsta. Smærri fiskur er verðminni. Vér efumst ekki um að menn geri til- raunir í þá átt sem hér um ræðir eink- um seinnipart sumars, en áríðandi er að vanda sig sem mest og breyta ekkert út af aðferð Hollendinga sísl hvað þrifnað og' frágang snertir, og mun þá likindi til að íslendingar mundu hafa mikinn hag af. Að öðru leyti munum við skýra ná- kvæmar frá þessu síðar í greininni. (Framh.). 1 storminum hinn 13. seft. síðastl. ráku nokkur skip á land víðsvegar við landið. í sama veðri fórst seglskipið »Hjálmar«, eign Th. Jensens kaupm. hér í bænum með 5 mönnum, var í flutningum hér í ílóan- um fyrir Duusverzlun. Skipið óvátrygt. Frétzt liefir að lík skipstj. Jafets heitins Ólafssonar, sem drukknaði á »Sophie Wethley« í storminum 7. apríl við Mýrar, hafi rekið nú fyrir nokkrum dögum, og' verður það sótt upp eftir og' jarðsungið hér. Aður hafa 4 lík rekið af sama skipi, en engin af Emilie sem fórst þar í sama veðri. Njál gufubátinn, sem rak á land á Eyrarhakka í storm- inum 13. f. m., er gert ráð fyrir að taka út í vetur ef hægt er. Fiskur og síltl er sagt í góðu verði utanlands nú. Dæmi vitnm vér til, að þorskur bezta tegund hefir verið seldur fyrir 82 kr. skpd. og reknetasíld fyrir 30 kr. tunnan. Sem dærai um framúrskarandi dugnað og framtaks- semi má nefna það, að kaupm. Thor Jensen hér í bænum hefir nú sent skip sitt »Töjler« með 15 mönnum norður til Norðurfjarðar í Strandasýslu og reka þaðan tiskveiði með 4 opnum bátum. Ætlast er til að veiðin sé stunduð fram í desembermán. Carl Trolle, kapteinn, fyrv. kapteinn í sjóliði Dana og fólk- þingismaður, nú formaður í ábyrgðarfé- lagi danskra fiskiskipa, er styrk hefir af ríkissjóði, kom nú með »Königsberg« og ætlar að ferðast um Norður- og Austur- land í erindum þessa félags. Menn búast við að danskir fiskimenn muni taka meiri þátt í fiskiveiðum við ísland nú, þegar ritsímasamhandið er á komið og samgöngurnar stórum bæltar og' einkum ef slofnaður yrði fiskiveiða- banki, er alt gefur von um framfarir á fiskiveiðum bæði í stærri og smærri stíl. Hið háa ábyrgðargjald, er hvílir á skij)- um, er reka fiskiveiðar við ísland, liefir aftrað mörgum frá að stunda þær, en það gjald ætti að mega færa talsvert niður t. d. á mótorbátum, er stunda fiskiveiðar frá góðum höfnum, og er Trolle kap- teinn að kynna sér alt þetla sem bezt. Mörgum íslendingum er kunnugt starf Trolle kapleins i þarfir fiskiveiðanna. Fyrir 25 árum síðan stundaði hann sjálf- ur fiskiveiðar hér við land á seglskipi og í Danmörku, þar sem hann sem þing- maður meðal annars fékk samþykt lög um ábyrgðarfélag danskra sjómanna og fær það mikinn styrk af ríkissjóði, en á- byrgðargjald sjómanna er að eins 5 kr. á ári. (Eftir »Austra«). Prentsmiöjan Gutenberg.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.