Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1906, Blaðsíða 2

Ægir - 01.10.1906, Blaðsíða 2
30 ÆGIR. Höfundurinn fer nokkrum íleiri orð- um um ýmislegt viðvikjandi strandgæzl- unni, og' gerir ítarlega grein fyrir ýmsu viðvíkjandi fiskiveiðalöggjöfinni, samvinnu varðskipsins og lögreglunnar í landi, á- samt fleiru, lil að upplýsa landa sína (Dani) um alt viðvíkjandi þessu. Vér höfum sérstaklega bent á þessa framanrituðu kafla úr bók hans, af því að vér getum ekki annað en verið hon- um alveg samdóma í þvi, að það hefði afarmikla þýðingu fyrir eftirlitið með fiskiveiðum útlendinga hér við land, ef maður með dómsvaldi sigldi með skipinu. Com. Hammer hefir ekki einungis fundið það sjálfur meðan hann slýrði strandgæzluskipinu, hve örðugt og taf- samt það er, ásamt þvi, hvað það rýrir mikið þýðingu eitirlitsins, annaðhvort að slá stryki yfir smáyfirsjónir útlendinga í landhelgi eða þá að verja fleiri dögum til þess að fá skip dæmd, sem að eins hafa gert sig sek í smáyfirsjónum; t. d. að hafa ekki veiðarfærin i röð og reglu innanborðs, ef um botnvörpung á ferða- lagi er að ræða innan landhelgi, eða ef lóðaskip er með eitthvað af lóð sinni inn á landhelgis takmörkunum, eða ef Frakkar eru með handfæri sín á svip- uðum stöðvum. Allir yfirmenn varð- skipanna hafa fundið þelta hver eftir annan, og þessvegna hafa þeir gjarnan séð í gegnum fingur við slíkum smáyfir- sjónum, og að eins látið nægja aðvörun í slíkum tilfellum, en í stað þess, gert sér far um að ná í þá, sem stærri sakir hafa. Það vila víst flestir fiskimenn og aðrir, sem búa við suðurströndina, hvað Frakkar eru gjarnir á, í byrjun vetrar- vertíðar að vera nærgöngulir og fiska nálægt landi, ekki ósjaldan að 50—60 skip fiski, svo að segja dag eftir dag, al- veg upp í landsteinum; en þó hefir ekki að oss er kunnugt eitt einasta franskt skip verið sektað eða dæmt fyrir land- helgisbrot nú í mörg ár. Þelta er ekki sagt til þess að veita fiskigæzlustjórninni neinar ákúrur, heldur hitt, eins og Com. H. tekur fram, hve örðugt það er að beita hegningu við slíka lögbrjóta, og þar sem um seg'lskip er að ræða, að þurfa að taka þau á tog langan veg, mörg i einu, jafnvel móti sjó og vindi. Þegar svo er, að margir sökudólgar eiga í hlut og einn er ekki verri en annar, þá er sá kostur- inn tekinn að gefa þeim áminningu, sem hægt er að aðvara, og láta þá svo fara. Capt. Schack var ekki gefinn fyrir að fyrirgefa yfirsjónir útlendinga í landhelg- is-brotum, en þó var það ekki ósjaldan — já, einn dag' 70 franskar fiskiskútur að fiska í landhelgi — að hann sá það ráð snjallast, að skjóta með fallbyssu í hópinn og gefa þeim merki um, að fara út. Að taka 1 eða 2 úr hópnum, sem jafnvel ekkert voru syndugri en hinar sá hann enga ástæðu tíl, og til þess að fá þær dæmdar að þurfa að eyða minst 2 eða 3 dögum, en lofa svo hinum, jafn- vel margfalt stærri lögbrjótum, að fiska rólegum á meðan. Þetta sama á sér stað með lóðagufu- skip, botnvörpunga o. fl., að það getur oft borið við, að varðskipið á ferð sinni meðfram ströndunum, einkum suður- ströndinni, sjái nokkur skip, sem að ein- hverju leyti eru sek, en sem eftir ástæð- um er réttlátara að aðvara en færa lang- an veg til næsta dómara, og í mesta lagi eftir þetta ferðalag og fyrirhöfn, að dæma hlutaðeiganda í nokkra tugi króna sekt. Þótt hinar stærri yfirsjónir útlendinga — að fiska í landhelgi — séu margar hér við land, þá eru þó smærri yfirsjónirnar mikið fleiri, þar sem næg sönnunargögn vanta til þess, að hægt sé að ákveða algert fiski- veiðalögbrot. En séu smá-syndirnar fyrir- gelnar, verður það til þess, að virðingin

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.