Ægir - 01.10.1906, Blaðsíða 5
ÆGIR.
33
sömu tegund og hinar frönsku fiskitunn-
ur sem Frakkar salta fisk sinn í hér við
land. Ef sá sem tilraun vildi gera í þá
átt sem hér er ávikið, meinti J. að ekk-
ert myndi vera til hindrunar að nota
venjulegar kjöttunnur, en sallið yrði að
vera af heztu tegund og eins allur frá-
gangur og hreinlæti með vöruna.
Þessi atriði sem hér eru nefnd og hr.
J. hefir bent á, ættu íiskimenn vorir að
færa sér í nyt; það er hvorttveggja í senn
að hér Jjýðst nýr verkahringur verzlun-
armönnum og öðrum, er liafa íisksölu
með höndum, og í öðru lagi hvöt íyrir
fiskimenn, að hagnýta sér vel þann aíla er
úr sjónum fæst, og spilla sem minstu þótt í
þeirra augum sýnist hafa litið verðmæti.
(Framh.).
Útgerðarmannafélagið.
Fundur var lialdinn í útgerðarmanna-
félaginu í Reykjavik að fyrirlagi formanns,
bankastjóra Tr. Gunnarssonar, að kveldi
þess 23. þ. m. og voru þar mættir um
30 útgerðarmenn og sameignamenn í þil-
skipum héðan úr hænum og af Nesinu.
Formaður har fram þá spurningu,
hvernig œskilegast vœri að haga þilskipa-
útgerðinni nœsta ár?
Um þetta spunnust nokkrar umræður,
og var það álit nokkurra, að heppilegast
væri að'gera alla útgerðina að einu stóru
hlutafélagi, sem myndað yrði á þann
hátt, að þilskipaeigendur gerðust hluthaf-
ar með þilslcipaeign sinni sem innstæðu.
Með þessu fyrirkomulagi álitu menn, að
girða mætti fyrir óeðlilega samkepni, sem
átt hefir sér stað með ráðningu á skipin
og jafnframt styðja að því, að útgerðin í
heild sinni gæti þróast og dafnað, sem
væri borin von á að yrði, með núverandi
fyrirkomulagi. A móti þessari tillögu
töluðu menn ekki, en auðheyrt var, að
menn héldu að torvelt mundi verða, að
koma slíku félagi á, þegar nokkrir stærri
útgerðarmenu ekki mundu vilja sinna
því. Tillagan var síðan borin undir at-
kvæði og voru 7 með, en 7 á móti, en
16 greiddu ekki atkvæði.
Síðan kom fram uppástunga um það, að
hásetar á þilskipin yrðu ekki ráðnir öðru-
visi fyrir næsta útgerðartíma en fyrir
hálfdrætti, 8 kr. í salt og verkun á skpd.,
taka þátt í hálfum beitukostnaði ogskift-
ingu á íiskinum, og var það samþykt
með öllum atkvæðum.
Fundi var svo slitið.
Fyrsta síld
sem kom á land í Hollandi í vor (1906)
var eins og vandi er til send lil drotn-
ingarinnar. Síldin veiddist 2. maí. Hinn
11. júní veiddust í fyrsta skipti 4 smá-
lestir af síld og var hún seld á markaði
í Ylaardingen fyrir 140—260 kr. tunnan
af heztu síldinni, en 60—87 kr. tunnan
af lakari legund. J. B.
Síldarveiðaskipin.
Skip þau, er stundað hafa síldarveiði
fyrir Norðurlandi í sumar með pokanót,
eru nú hætt veiðum flestöll, og komin á
leið heim til Noregs. En reknetaskipin
halda enn áfram veiðunum. Skip O.
Wathnes erfingja »Elín« og »Askur«, og
Falcks-skipin »Atlas« og »Alhahtros«, er
verið hafa að sildarveiðum með pokanöt
eru nú lárin til Noregs öll nema Elín.
Þau hafa aílað sem hér segir:
Askur c: 3950 tunnur
Elin c: 3000 --
Albatros c: 2600 -—
Atlas c: 2800 --
(Eftir »Austra« 18. sept.).