Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1906, Síða 3

Ægir - 01.10.1906, Síða 3
ÆGIR. 31 minkar fyrir lögunum og afbrotin verða tiðari. Vér vildum því fullkómlega styðja mál Com. H. að það væri æskilegt, að því yrði komið til leiðar, að maður með dómsvaldi sigldi með varðskipinu, eink- um á vetrarvertíð og fyrir Norðurlandi á sumrin meðan síldveiði er stunduð, og mundi þá fljótt sjást, að það hefði heppilegan árangur, því þá væri hægt að dæma mðrg hrot, sem með núverandi fyrirkomulagi eru látin afskiftalaus eða fyrirgefm. Og vér vonum, að þessi til- laga hr. Com. Hammers verði af hluG aðeigendum tekin til rækilegrar íhugun- ar, og' ef mögulegt er komið í framkvæmd sem fyrst. (Framh.) Verðið á hverri fisktunnu er mismunandi eftir árstíðum. Um miðjan vetur og fram í marzm. er það hæst, en fer svo smálækkandi. Eftir skýrslu sem hr. J. gaf oss og hann hefir skrifað upp eftir hollenzku fiskiveiðariti (De Haven- bode) stendur, að verðið á tunnunni liafi 5. marz í ár, verið frá 90—93 kr. Fyrstu dagana í apríl um 80 kr. en fór svo smálækkandi í aprílm. þar til við lok hans var það komið niður í 55 kr. Lægst var það 11. maí 45 kr. tunnan, og hélst í því og upp að 51 kr. yfir sumarið til þess hann fór, eða miðs ágústs. Hér er átt við fisk af beztu tegund, fisk 18 þuml. og þar yfir. Hollendingar salta einnig aðrar fiski- tegundir i tunnur og selja þannig, svo sem smáfisk, ísu, löngu og upsa, en mjög mikið minna kemur af þessum tegund- um og verðið er líka lægra. Astæðan lil þess er sú, að fiskimennirnir sækjast mest eftir verðmesta fiskinuni (þorskin- um) eins og Frakkar hafa ávalt gert hér við land. Það er ekki nema endur og sinnum sem smáfiskur sést á markaðnum, og var verðið í sumar frá 30—36 kr. tunnan. Ysa var ennþá lægri, lægst 30. júlí 15,75 kr. og hæst 9. apríl 23,10 kr. tunnan. Upsi um 20 kr. tunnan, en aftur á mótilanga lægst 34 kr. en Iiæst 47,25 kr. tunnan. Það hefir áður verið tekið fram að Hollendingar hafa góða vöru vel vand- aða, en þeir fá lika golt verð fyrir hana. Ef gert er ráð fyrir að V2 skpd. af fiski þurrum (160 pd.) fari í hverja tunnu, þá verður hér um hil meðalverð á fiskitegundunum þetta: Porskur 1 skpil. Pýrslcl. 1 skpd. Ysa 1 skpd. Upsi l skpd. Langa 1 skpd. Vetrarvert.: Sumar: 120 140Ur. 96-102 — )) 61-72 kr. 44 kr. 40 — 44 kr. 40 — 74 kr. 68-70 — Það dylst engum, að hér fæst gott verð fyrir vöruua, að minsta kosti er þorskur í svo háu verði að það mundi að sjálf- sögðu vera tilvinnandi, eins og áður hefir verið tekið fram, að gera tilraun í þá ált að verka fisk sem fæst fyrri hluta vetrarvertíðar og seinni hluta sumars eftir hollenzkum reglum og senda þang- að á markað. Tunnan sjálf með útflutningsgjaldi mundi vart fara fram úr 10 kr. Salt vrði hér um bil það sama og áður hefir þurft, en verkun hyrfi með öllu, eða það gjald sem horgað er fyrir þurkun á hvert skpd. 3,20—4 kr. og alt umstang því við- víkjandi hyrfi alveg. Ef gera ætti tilraun um horð í skipi,

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.