Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1906, Page 7

Ægir - 01.10.1906, Page 7
Æ G I R. 35 Farþegabátur á Snaasenvatninu í Noregi meö 12 li. »ALPHA«-niótor. 50 fet á lengd, fer 7 m. á v. fram með 6—7 mílna hraða í vöku. Það sem vélar þessar hafa fram yfir gufuvél- ar er það, að þær taka upp minna rúm í skipinu, eins og líka aflvakinn, (stein- olía) þarf mikið minna geymslurúm en kol. Ennfremur er þeim líka hægt að stjórna að öllu leyti frá þilfarinu, þegar þær hafa verið settar i hreyfmgu. Þann kost ásamt fleirum hafa þessar vélar fram yíir steinolíumótora af líkri gerð, að þessi vinnur því nær hljóðlaust, og er sívaln- ingurinn, sem sést á myndinni og liggur langs eftir miðjum mótornum gerður til þess að taka við hljóðinu og eyða því. Fyrir utan hina afarmiklu notkun á mótorum i fiskiskip hefir mjög farið í vöxt, að hagnýta þá til að knýja áfram báta, sem ganga á vötnum og fljótum uppi i landi, þar sem kol eru dýr og örðug til aðflutnings. Þannig fer það árlega í vöxt i Svíþjóð og Noregi. Einn hátur sem knúinn er áfram með »Dan«-mótor er hér á Lagarfljóti áAust- urlandi, og mun þess vart langt að bíða, að mótorbátar verði notaðir hér á hin- um stærri vötnum svo sem Þingvalla- vatni og Mývatni á sumrum sem skemti- bátar fyrir ferðamenn sem og til flutn- inga. Verðlisti á íslenzku, meö myndum, yfir mótorinn Alpha er nú prentaöur, og veröur hann sendur út um landið til einstakra manna, jafnframt að allir sem þess æskja geta fengið liann hjá aðal- umboösmanni verksmiöjunnar Matth. Pórðar- syni skipstjóra í Reykjavík.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.