Ægir - 01.11.1913, Qupperneq 7
Æ G I R
127
Skijiaskrá hins ðanska ríkis
fyrir árið 1913.
Eins og að undanförnu hefur hið
danska verslunar- og sjómálaráðaneyti
gefið út opinbera skrá yfir skipastól rík-
isins fyrir árið 1913.
Maður skyldi ælla að hjer væri um
áreiðanlegt' verk að ræða og að öllu hið
vandaðasta, en við nána athugun virðist
öðru máli að gegna, hvað snertir íslensk-
an skipastól, að minsta kosti.
í þessum lista er sem sagt hæði dönsk,
færeyisk, islensk og vest-indeyisk skip
talin, sem skrásett eru, og væri hægt að
búast við, að hjer væri hvorki of eða
vantalið, heldur öllu dásamlega niður-
raðað með hinni mestu vandvirkni, en
það er öðru nær en svo sje.
Hvað íslandi viðvikur, rekur maður
sig á svo miklar fádæma skekkjur og
vitleysur, að merkilegt má heita, að slíkt
sluili geta slaðið óátalið og ólagað af ís-
lenskum stjórnarvöldum, sem hljóta að
reka sig á þetta.
Hjer skulu að eins tekin nokkur dæmi
um áreiðan leik þessara skýrslna:
Islensk gujuskip.
Nafn skipsins: Eigandi og úlgerðann.:
»Freyr« Jón Ilermannsson Hafnarf.
»Coot« R. Kristjánsson Haínarf.
»Valur« Á. Ilannesson Reykjavik.
»Ingólfur« Th. 'fhoroddscn Reykjavík.
Seglskip.
Xain skipsinS: Eigandi og útgerðnrm.:
Greta E. Grímsson Reykjavík.
Guðrún ,1. Sigurðsson Reykjavik.
Gylfi R. Sverrisen Reykjavík.
Hekla R. Olafsson Reykjavík.
Ilelga 0. N. Thorláksson Reykjav.
Hjálmar P. Sigurðsson Hafnarfirði.
Nafn skipsins: Eigandi og útgerðarm.:
Jón Jón Thórðarson Reykjavik.
Jón Jón Norðmann Reykjavík.
Katie .1. J. Bjarnason Reykjavik.
Palmen G. Pjetursson Reykjavik.
Phonix 0. Stephensen Reykjavík.
Skutulsey 0. N. Thorláksson Reykjav.
Sjöstjarnan Th. J. Thoroddsen Reykjav.
Rósa Th(ryggvi) Gunnarsson
Seyðisfirði.
Þetta er aðeins sýnishorn af skipalist-
anum fyrir árið 1913. Ef þessi listi, eins
útlítandi og liann er, væri ekki gefitin út
af stjórninni sem ábyggilegt rit, þá væri
jafnvel ekki tiltökumál þótt eitthvað væri
út á hann að setja.
Flestir ntunu einhverntíma hafa heyrt
getið skipa þessara, og eigenda þeirra,
þótt þeir sjeu margir hverjir rangt settir.
En kunnugir, sem þektu hjer vel til um
aldamótin, geta giskað á við hvað er ált.
Seglskipið Rósa sem síðast er neínt, er
talið bygt i Dunkerque árið 1863 og 136
smálestir að stærð, og stendur því rjetl á
fimtugu. Þó ekki væri fyrir annað en
aldurssakir, þá virtist þó rjett að draga
liana út af listanum fyrir næsta ár. Hjer
er vist átt við Rósu sem eitt sinn var
eign Gránufjelagsins og í flutningum
fyrir það.
Þessi skrá eins og hún er úr garði
gerð er að engu halandi. Stjórnarráðið
hjer ælti árlega að gefa út skrá yfir is-
lensk skip, og mætti vænta þess að hún
yrði nákvæmari.
Leiöi*jettiiií»-. í dánarminning Sleingr.
Thorstetnsson í siðasta blaði 2. dálki að ofan,
er hvellandi á að vera svellandi.