Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1915, Blaðsíða 7

Ægir - 01.08.1915, Blaðsíða 7
ÆGIR 101 fiskur skuli ekki vera melinn, eins og hver annur saltfiskur, sem stafa mun af þvi, eftir þvi sem vjer höfum komist næst, að úlflytjendur álíta að mal á slíkum fiski heyri ekki undir fiskimatslögin. Nefndin verður eindregið að lála það álil sitt í ljósi, að eftir núgildandi Iögum um fiskimat, þá sje skyll að meta allan sallfisk, sem fara á til Spánar og Italíu, hverju nafni sem nefnist, samkvæmt 1. gr. laganna. En nefndinni er kunnugt um að árlega cr flutl mjög mikið af saltfiski ó- metið til nefndra landa og sjerslaklega liinn svokallaði Labradorfiskur, og að ár- lega berast umkvartanir frá úllendum kaupendum um slíkt, og nefndin veit að Labradorfiskur er nú orðinn svo misjafn að gæðum vegna illrar verkunar, að sala á honum er langt frá því orðin eins trygg sem vera ælti, og sem annars mundi vera, ef hann væri háður sama eftirliti og að- greiningu, að sínu leyti og annar saltfisk- ur sem fluttur er til Snánar og Ítalíu. Þar sem við þykjumst mega fullyrða, að mikill meiri hluti allra útgerðarmanna og meiri hluti allra fiskiútflytjenda hjer á landi vilji að allur saltfiskur sem fara á lil Spánar og Ítalíu sje aðgreindur og met- inn (jafnt Labradoríiskur sem annar salt- fiskur), og þar sem vjer álílum einnig að gildandi lög um fiskimat fyllilega ákveði slíkt, þá Ieggjum við til að Fiskiþingið skori á landsstjórnina að hún hlutist til um: 1. Að lögum um fiskimat sje framfylgt sem vera ber þannig að allur saltfisk- ur, sem fara á lil Spánar og Italíu sje metinn. 2. Að yfirfiskimatsmönnum sje gert að skyldu, sem oftast, að kynna sjer ósk- ir og kröfur útlendra kaupenda, um úllit og gæði á sallfiski á hinum ýmsu fiskimörkuðum erlendis, með því að ferðast þangað. 3. Að veittur sje styrkur úr landssjóði á hverju fjárhagstimabili, handa yfir- fiskimalsmönnum til slíkra ferða, (scm nefndar eru í öðrum lið). Tillögurnar voru samþyktar á þinginu. Reykjavík, 7. júlí 1915. Herm. Porsteinsson. Arni tíislason. Matth. Pórðarson mcð fyrirvara. Noíndarálit i'rá neí'nd þeirri, or kosin var til að atliuga stofnnn innlonds vátryggingarfjelags fyrir skip. Vjer undirritaðir, sem höfum verið kosn- ir í nefnd til að athuga stofnun innlends vátryggingarfjelags fyrir skip, höfum átl fund með okkur um mál þetta og hafl tal af Samábyrgðarstjóranum um þelta mál- efni, og leyfum okkur að leggja fram eflir- fylgjandi nefndarálit. Nefndin er á einu máli um það, að hjer sje um mesta nauðsynjamál að ræða, og að sjálfsagt sje að koma á fól slíkri stofn- un og það sem íyrst. Mál þetla er svo mikils vert og þarf svo mikillar rannsóknar við og undirbúnings, að ekki má hrapa að því að gera neitt i þvi, nema áður hafi farið fram slíkur und- irbúningur og rannsókn, og álílum vjer, að það sje verkefni landsstjórnarinnar að gera það. Þar sem mál þetla kom óundirbúið á Fiskiþingið og þingtíminn er svo stullur, var ekki hægt að rannsaka málið fyrir nefndina eins vel og ílarlega og æskilegl var, og taldi nefndin þvi, að hún gæti ekki annað gert, en að leggja lil að Fiskiþingið samþykki áskorun til Alþingis um málið og afgreiddi málið þannig frá sjer. — Þó vill nefndin taka það fram til upplýsingar málinu, að botnvörpuskip og önnur gufu- skip múnu greiða 8°/o í vátryggingargjald -i- 1%, sem skipseigendur fá endurgreitt, ef ekkert verður að.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.