Ægir - 01.08.1915, Page 8
102
ÆGIR
Botnvörpuskipin munu nú vera orðin
22, og auk þess koma önnur gufuskip, t.
d. Eimskipafjelagsskipin.
Kunnugur maður hefur sagt nefndinni,
að botnvörpuskipin muni hafa greitt í vá-
tryggingargjöld, síðan sá útvegur byrjaði,
c. 760,000 kr., og ef taldir eru vextir og
vaxtavextir af vátryggingargjöldunum, sem
borguð hafa verið, þá verður upphæðin
auðvitað miklu hærri.
Tjón þau, sem orðið hafa á botnvörpu-
skipum á sama tíma, telur sami maður,
að numið hafi c. 300,000 kr. (þar með er
ekki talinn »Skúli Fógeti«, sem rakst á
tundurdufl, og ekki var bæltur af neinu
vátryggingarfjelagi), en af þeirri upphæð
fengust aflur endurgreiddar 150,000 kr.
fyrir »Lord Nelson«, sem fórst við árekstur.
Að áliti þessa manns hafa vátryggingar-
fjelögin því orðið að borga út c. 150,000
kr. fyrir skipatjón, en vjer teljum, að upp-
hæð þessi sje nokkuð of lág og að hún
sje tæplegs minni en 200,000 kr. Það
mun mega fullyrða, að vátryggingargjöld-
in, sem nú eru árlega greidd fyrir boln-
vörpuskipin, Eimskipafjelagsskipin o. s. frv.
sje yfir 300,000. Alt þetta fje fer út úr
landinu.
Vjer viljum taka það fram, að við ekki
tökum ábyrgð á, að tölur þessar sjeu rjett-
ar, en þykjumst mega fullyrða, að þær sjeu
heldur of lágar, en of háar.
Af þvi, sem að framan er sagt, má sjá
það, að skip þessi eru nú orðin svo mörg.
og fje það, sem greitt er af þeim árlega í
vátryggingargjöld svo mikið, að telja verð-
ur gerlegt að stofna innlent fjelag til að
vátryggja þessi skip i, en þó þvi að eins,
að það væri skylduvátrygging fyrir öll þessi
skip í slíku fjelagi.
Nefndin leyfir sjer að koma fram með
eftirfarandi tillögu í málinu:
Fiskiþingið skorar á Alþingi, að sam-
þykkja þingsályktunartillögu til stjórnar-
innar um, að hún láti undirbúa og semja
frumvarp til laga um innlent vátryggingar-
fjelag fyrir skip, er feli í sjer skylduvá-
tryggingu á öllum íslenskum gufuskipum
og leggi frumvarpið fyrir næsta Alþing.
(Till. samþ.).
Á Fiskiþingi íslands í Reykjavík, 9. júlí 1915.
Tryggvi Gunnarsson. Magnús Sigurðsson.
Matthias Pórðarson
Nefndarálit um vitamál.
Vjer undirritaðir, sem kosnir vorum í
nefnd til að íhuga vitamál þau, er liggja
fyrir Fiskiþinginu, höfum kynt oss mála-
leitanir þær, sem hjer er um að ræða, og
auk þess leitað upplýsinga þeim viðvíkj-
andi hjá vitamálaverkfræðingi landstjórn-
arinnar hr. Th. Krabbe.
Fyrir Fiskiþinginu liggur beiðni um:
1. Breytingu á Arnarnesvita í Norður-ísa-
fjarðarsýslu úr föstum vita í blossavita.
2. Vita á svœðinu milli Isa/jarðardjúps og
Dýrajjarðar.
3. Vita á Akranesi í Borgarfjarðarsýslu.
4. Vita á Norðfjarðarhorni í Suður-Múla-
sýslu.
5. Hljóðmerki á Garðsskagavita í Gull-
bringusýslu.
6. Pokulúður við vitann á Dalatanga í
Suður-Múlasýslu.
7. Landtökuvita með þokulúðri á Seley
úti fyrir Reyðarfirði, eða á Kamba-
nesi milli Stöðvarfjarðar og Breiðdals-
víkur.
Viðvíkjandi beiðni 1 er það að athuga,
að hr. Krabbe tjáði oss, að verið sje þeg-
ar að breyta nefndum vita í myrkvunar-
vita (blikvita) og að sú breyting sje þegar
auglýst að verði um garð gengin fyrir lok
þessa mánaðar. Vjer álítum því, að beiðn-
inni sje þegar nokkurn veginn fullnægt.
Um beiðni 2 er það að taka fram, að
hr. Krabbe hefir rannsakað vitastæði á