Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1917, Síða 5

Ægir - 01.10.1917, Síða 5
Nr. 10. ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS I 10. árg. Reykjavik. Október, 1917. + Tryggvi Gunnarsson. Aðfaranótt sunnudags hins 21. þ. m. (ld. 1245), andaðist að heimili sínu hér 1 Reykjavík þjóðskörungurinn Tryggvi Gunnarsson fyrv. bankastjóri, 82 ára og 2 daga að aldri. Jarðsettur verður hann í Alþingishúsgarðinum, þvi þar kaus hann sér legstað, var sá blettur honum kær- astur, milli trjánna, er hann hafði gróð- ursett og hirt. Æfiágrip þessa merkismanns mun sið- ar verða hirt í Ægi. Piskirannsokiiarferöir 1915 og 1916. Eftir Bjarna Sæmundsson. Rannsóknarferðir. Síðustu tvö árin (1915 og 1916) hafa rannsóknir mínar aðallega lotið að ald- ursákvörðunum og vaxtarháttum nokk- urra mestu nytsemdarfiska vorra, og hafa þær verið að nokkuru leyti framhald af því, sem eg var byrjaður á áður, en að nokkru leyti ný viðbót, þar sem eg hefi tekið aldur og vöxt fleiri fiska til með- ferðar og svo rannsakað fisk á öðrum svæðum. Þetta nær bæði til sjávarfiska þeirra, er eg hefi að öllu leyti rannsak- að sjálfur og til vatnafiska þeirra, er eg hefi notið góðra manna aðstoðar bæði til þess að ná í þau gögn (hreistið) af, sem hin umræddu atriði eru lesin út úr og til þess að gera rannsóknirnar sjálfar. Fiskar þeir, er eg lagt aðaláherzluna á þessi árin, eru þorskur, ýsa og skarkoli. Eg byrjaði á því að rannsaka þorskinn við austanvert Norðurland, eins og eg hefi sagt frá i siðustu skýrslu og var það þá áform mitt, að halda áfram með liann við Vestur- og Suðurströnd landsins og hafði eg í þeim tilgangi safnað í Reykja- vík allmiklum ákvöí’ðunargögnum bæði af þorski, ýsu og skarkola, af fiski er veiddur hafði verið í Faxaflóa og Mið- nessjó, en til þess að ná í þesskonar gögn frá íleiri stöðum varð eg að fara þangað. í þessum erindum fór eg til Vestfjarða sumarið 1915. Lagði eg af stað 23. júlí og var ferðinni fyrst heitið til ísajjarðar, þvi að um það leyti mátti búast við þvi, að nægan fisk væri að fá þar af mótorbátum frá ísa- firði eða Hnífsdal og smáfisk og skarkola m. m., sem aílaður yrði á smábáta inni í Djúpinu. Kom eg til ísafjarðar um nónbil næsta dag, sem var laugardagur. Næsta dag var versta veður með úrkomu og kulda (6,6° um hádegið) og varð ekk-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.