Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.1917, Side 7

Ægir - 01.10.1917, Side 7
ÆGIR 139 eða grynning, sem nefnist Skerið, og er að eins skilið af mjóum ál frá minna skeri, sem verður landfast við Suðureyri um fjöru. Bæði skerin fara í kaf um flóð. Fyrir utan skerin er fjörðurinn all- ur fremur grunnur, en þó vel skipgeng- nr inn að báðum eyrunum, en fyrir inn- an þau er hann allur mjög grunnur og varla skipgengur, nema með vesturland- inu yzt, þar er mesta dýpið, 4—5 faðma og gengur inn i það áll sá (eða sund) er fyr var getið og er hann 3 fðm. um fjöru og svo mikill straumur i honum, þegar hörðust eru sjávarföllin, að mót- orbátar hafa varla á móti. Inn með Norðureyri gengur annar áll. djúpur fyrst, en grynnist smámsaman og breikk- ar, svo að hann verður óskipgengur. Inn fyrir skerin gengur at iiski aðeins þyrsklingur, sandkoli og marhnútur og sild við og við. Kúskel finst þar ekki, en kræklingur er í Skerinu. Þótt fjörðurinn sé ekki fiskisæll sjálf- ur, þá liggur hann ágætlega við fyrir fiskiveiðum, þar með sildveiðum, út á haf, þar sem hin víðáttumiklu og fiski- sælu grunn milli Dýrafjarðar og Djúpáls (Barðagrunnið) liggja þaðan út, langt til hafs. Yar þar áður töluvert róðrarbáta útræði frá Suðureyri (sbr. skýrslu mína 1901, Andvari 1902, bls. 100), en 1903- 04 byrjaði þar mótorbátaútgerð, með fá- um bátum, en þetta vor (1915) gengu þaðan 23 mótorbátar og áttu 19 þeirra þar heima. Fiska þeir á vorin og sumr- in með haldfærum »við laust« og eyða þá nál. 20 sinnum minni oliu, en þegar lóð er brúkuð. Þetta má telja mikla íramför fyrir plássið, en sá er galli á, að skipalægið er hvergi nærri gott, þar sem bátarnir verða að liggja utan til við eyrina. þar sem ekkert afdrep er, þegar stormur er af hafi (vestan) og setur mjög krappan sjó á grunninu fyrir utan eyuina. Svo bætisí við, að á veturna leggur innfjörð- inn mjög í frostum og verður mikið is- rek út álinn með eyrinni og jafnvel stór- ar isspangir eða spildur út yfir skerin með byrjandi útfalli, þegar isa leysir, og getur það orðið hættulegt fyrir bátana. Hafís kemur hins vegar sjaldan inn á útfjörðinn. Súgfirðingar eiga þvi erfitt að- stöðu með útveg sinn. Hefir komið til tals að gera ísbrjóta í skerjunum, til þess að ldjúfa spengurnar annars vegar, en öldubrjót eða varnargarð fyrir hafsjó, kippkorn fyrir utan bátaleguna, en hvort- tveggja mundi kosta mikið fje, einkum garðurinn, ef lið ætli að verða að, en mikil þörf væri á þvi. Spurning er, hvort ekki mundi betra að grafa út legu inn- an til við aðra hvora eyrina (Suður- eða Norðureyri). Frá ísafirði flutti eg mig 6. ágúst til Patreksfjarðar, því að þar ællaði eg að halda áfram söfnun minni og rannsókn- um. Var eg svo heppinn, að góðviðrið hélzt við meðan eg dvaldi þar, og afla- brögð góð .úti i flóanum og nægð af ým- iskonar smáfiski inn í firðinum, svo að eg fékk nóg af því, sem eg þurfti að fá til rannrókna. Stóð það heima, að síð- asta daginn sem eg var þar (17. ág.), breytti um veður og gerði langa hafáttar-rumbu, svo að tók fyrir allar gæftir. Eg var á Patreksfirði sumarið 1901 til þess að kynna mér fiskiveiðar þar, eins og lesa má i skýrslu minni 1901 í Andvara 1903. Ein breyting er orðin þar á einkennileg síðan, fyrir utan þilskipaútveginn, sem þá var lítill eða enginn: Laust eftir alda- mótin settist þar að í firðinum Færey- ingur einn til veiða, með bát sinn. Varð það til þess að menn á Eyrunum tóku þá upp Færeyjabáta til fiskjar, og hafa haldið þeim sið síðan. Haga þeir nú veiðum sínum þannig, þegar þeir róa út

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.