Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1917, Blaðsíða 11

Ægir - 01.10.1917, Blaðsíða 11
ÆGIR 143 lendri löggjöf og öðrum atburðum, er kunna að hafa áhrif á atvinnuvegi lands- ins, f) Að gefa út blað þegar fært þykir, er skýri frá því markverðasta í viðskifta- málum innanlands og utan. í blaðinu skulu einnig birt lög og stjórnarfyrirskip- ir er snerta atvinnumál. Á hverju ári skal gefin út greinileg skýrsla um atgerðir ráðsins og reikning- ur um fjárhag þess undanfarið ár. 8. gr. Ráðið heldur fundi 1. og 3. þriðjudag hvers mánaðar. Auk þess kall- ar formaður ráðið saman er honum þyk- ir þess þörf eða ef 3 fulltrúar krefjast þess skriflega. Fundum ráðsins stýrir formaður eða varaformaður. Ráðið er ályktunarfært þegar 4 full- trúar sitja fund og ræður þar afl atkvæða. Séu atkvæðin jöfn, þá ræður atkvæði formanns. Kosningar skulu fara fram skriflega sé þess krafist. Ef jöfn eru atkvæði skal hlutkesti ráða. Það sem gerist á fundum ráðsins skal bóka i gerðabók og skal hún upplesin í siðasta lagi á næsta fundi. Gerðabók skal undirskrifuð af formanni og fundarskrif- ara. Vilji einhver fulltrúi hafa fyrirvara við ályktun ráðsins, skal það tilkynt skriflega i síðasta lagi daginn eftir að ályktunin var gerð, eða innan þess tíma, er ákveð- inn verður í hverju einstöku tilfelli. 9. gr. Á fyrsta reglulegum fundi ráðs- ins ár hvert skal fara fram; a) Kosning formanns og varaformanns fyrir það ár. b) Skifting ráðsins í tvær nefndir og eru 3 fulltrúar í hvorri, en formaður skal vera utan nefndanna. c) Kosinn einn fulltrúi er ásamt for- manni og varaformanni hafi umsjón með og framkvæmd á daglegum störfum ráðsins. Skiíta þeir störfunum eftir sam- komulagi sin á milli. d) Kosning kjörstjóra fyrir það ár. Skal hann ávalt vera einn af þeim full- trúum, sem ekki eiga frá að fara á ár- inu. 10. gr. Formaður ákveður hversu mál- um þeim, er ráðinu berast, skuli sldft milli nefndanna, og getur hann ákveðið um hvert einstakt mál, að nefndin láti í ljósi álit sitt um það innan tiltekins tima. 11. gr. Nefndirnar halda fundi svo oft sem þörf er vegna fyrirliggjandi mála. Nefndunum ber að leggja fyrir ráðið rökstudd álit um mál þau, er visað hef- ir verið til þeirra. Eftir ósk nefndar get- ur ráðið bætt við hana tveim mönnum utan ráðsins, er starfi með nefndinni að tilteknu máli og hafa þeir atkvæðisrétt innan nefndarinnar um það mál. Ráðið má skipa þá eina til þessa, sem eru kjörgengir í ráðið. 12. gr. Tillögurétt innan verslunarráðs- ins hafa nefndirnar og hver einstakur fulltrúi. Tillögur verða að berast fram skriflega. Öll mikilvæg mál verða að hafa hlot- ið rannsókn og undirbúning í nefnd áð- ur en ráðið tekur fullnaðarályktun um þau. Smávægilegri mál getur skrifstofu- stjóri afgreitt í samráði við formann eða þann fulltrúa er umsjón hefir á hendi. 13. gr. Ráðið skipar skrifstofustjóra og aðra starfsmenn, er þörf er á. Skrifstofustjóranum ber að sjá um að erindi þau, er berast, séu tekin til meðferðar af ráðinu sam- kvæmt lögunum, að bóka fundargerðir ráðsins. að undirbúa málin undir umræður nefnda og ráðsins, og gera uppkast að álitum og svörum ráðsins,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.