Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1917, Page 12

Ægir - 01.10.1917, Page 12
144 ÆGIR að hafa á hendi ritstjórn blaðs þess, er ráðið kann að gefa út, að halda reikninga ráðsins og annars framkvæma það er ráðið kann að fela honum. 14. gr. Reikningsár ráðsins er alman- aksárið. Um -leíð og fulltrúakösning fer fram skulu kosnir tveir endurskoðunarmenn og ler annar frá á hverju ári, í fyrsta sinni eftir hlutkesti. Ennfremur skal á hverju ári kjósa einn varaendurskoðun- armann. Fyrir lok febrúarmánaðar skulu full- gerðir reikningarnir fyrir undanfarið ár og skal þegar afhenda þá endurskoðun- armönnum. Reikningarnir skulu síðan birtir (sbr. 7. gr.) með athugasemdum endurskoðunarmanna og svörum ráðs- ins; skulu þeir svo úrskurðaðir af hlut- takendum við skritlega atkvæðagreiðslu. Fyrsta reikningsár ráðsins er árið 1917. 15. gr. Til breytingar á lögum þessum þarf atkvæði 5 fulltrúa. Þvi að eins má taka til umræðu breytingartillögu við lögin, að fundurinn hafi meðal annars verið boðaður i þeim tilgangi og sé það tekið fram i fundarboðinu. Breytingar á lögunum öðlast því að eins gildi, að þær séu hornar undir þá, er kosningarrétt hafa til ráðsins, og fái meiri hluta greiddra atkvæða. Stjórn Búnaðarlélagsins og stjórn Fiskifélagsins eru fulltrúanefndir fyrir landbúnað og fiskiveiðar, en hingað til hefir algerlega vantað slíka fulltrúanefnd fyrir verzlun iðnað og siglingar. Kaup- mannaráðið hefir að visu starfað sem fulltrúaráð fyrir verzlunarstéttina, en hefir nær eingöngu bygst á Kaupmannafélagi Reykjavikur. Að verzlunarráði íslands standa aftur á móti atvinnurekendur í þessum greinum um land alt. Síðast þeg- ar aðalmanntal fór fram árið 1910 lifðu um 10,000 landsmanna á verzlun, sam- göngum, handverki og iðnaði, en síðan hefir þeim vafalaust fjölgað mikið og lik- indi til, að þeim muni fjölga mikið á komandi árum. En mikilvægi atvinnu- veganna fer ekki eingöngu eftir þvi, hve margir lifa á þeim, heldur einnig, og það mest, eftir þvi hverja þj'ðingu þeir hafa fyrir þjóðfélagið í heild sinni. Og hér er einmitt um atvinnuvegi að ræða, sem hafa afarmikla þýðingu íýrir alla þjóðina og velgengni hennar er mikið undir þvi komin að þeir séu í sembeztu lagi. Atvinnuráð, er starfa í svipuðum til- gangi og ætlast er til að verzlunarráðið starfi hafa afarlengi tíðkast i öðrum lönd- um og hefir reynslan sýnt að starfsemi þeirra er til ómetanlegs gagns. Rað á sér allsstaðar stað náin samvinna milli stjórnarvalda og atvinnuráða, enda er það meginþáttur í starísemi þeirra. Sér- staklega hafa verzlunarráðin enn fremur unnið að því að koma á heilbrigðum og hagkvæmum viðskiftavenjum og á verzl- unarráð íslands vafalaust mikið starf fyrir höndum i þessu efni. Erlendis hafa verzl- unarráðin átt upptök að ýmsum stór- feldum umbótum, og ávalt hafa þau vakandi auga með vexti og viðgangi at- vinnuveganna; hefir oft verið ástæða fyrir þau að gripa í taumana, hvetja eða letja til framkvæmda, eftir þvi sem þörf var á. Þetta atriði er ekki veigaminst fyrir oss, einkum nú, er gera má ráð fyrir, að hér verði miklar framfarir innan allra atvinnuvega, er styrjöldinni lýkur. Þá verður full þörf fyrir frams)rni og viðsýni og um að gera að notfæra sér reynsl- una, bæði okkar eigin og annara. Að eins með því móti verður hjá þvi kom-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.