Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1917, Síða 13

Ægir - 01.10.1917, Síða 13
ÆGIR 145 ist að slórfé og fyrirhöfn fari forgörðum vegna fyrirtækja, sem ráðleysislega er til stofnað. (ísafold 22. sept. 1917). Kolaeyðsla á guluskipum. Maður heyrir oft sagt um gufu- skip, að sum séu mjög eyðslusöm hvað kol snertir, en sum aftur sparsöm. Er það ef til vill miðað við, hversu miklu skip eyðir yíir árið, eða yfir einhvern tiltekinn tíma. En ekki er það talið, hve mörg meterkilógröm af vinnu framknýj- ari skipsins hafi framleitt yfir tímabilið. En hætt er við, að hér geti einnig verið um mismun að ræða, og á það sérstak- lega við fiskiskip eða botnvörpuskip, því eins og maður veit, er þar ekki vana- lega um neinar ákveðnar ferðir að ræða. Enginn getur því sagt, hve mikil vinna liggur eftir skipið, þegar það hefir eytt svona og svona miklu af kolum. En hversu langt það hefir farið, eða með hve miklu afli það hefir verið knúð á- fram, þvi hafa menn ekki gert grein fyrir. Þess vegna er eigi víst, hve eyðslu- söm þau hin sömu skip eru i raun réttri. Öll gufuskip eru þó sjálfsagt eyðslu- söm, því framknýari þeírra, gufuvélin, þarf mikið »fóður« í samanburði við þá vinnu, sem hún framleiðir. Kemur það í ljós, ef litið er á hita þann er framleið- ist í eldhólfi gufuketilsins, um leið og -litið er á það erfiði, sem kemur að not- um frá skipsskrúfunni og því breytt i hita. Það mun ekki vera langt frá sanni, hvað viðvíkur þeim gufuvélum sem hér eru i botnvörpuskipunum, þó gert væri ráð fyrir, að hlutfallið yrði eins og 4:100, enda þótt gangskilyrði viðkomandi véla væru í æskilegu ásigkomulagi. Af gildi þessa hlutfalla má ráða það, að gufuvél- in skilar litlu attur af því verði sem liggur i kolunum. En því athugaverðari er hún sem framknýari skipsins. En hin breytilega mótstaða skipsins, við mis- munandi hraða, veldur því, að mismun- andi gagnÆefst af þeirri vinnu sem vélin framleiðir. Erlendis viða, eru kolaeyðslutilraunir látnar fara fram á skipum, áður eu þau eru tekin til reksturs, og er allmikil ná- kvæmni viðhöfð, því kolaeyðslan er tal- in afarþýðingarmikið atriði fyrir útgerð skipanna. Þessar tilraunir eru gerðar í því augnamiði, að komast að raun um, hvaða hraða verði hagkvæmast að nota fyrir skipið, þegar bæði er litið á kola- eyðsluna og það ferðalag, sem skipinu er ætlað. Yið tilraunir þessar eru ýmsar athug- anir gerðar, sem oflangt mál yrði upp að telja. Regar tilraununum er lokið, og alt hefir verið skrifað upp er þurfa þykir, eru samkv. því sem komið hefir í ljós við tilraunirnar, teiknuð nokkurskonar »kort« yfir verkmáta vélarinnar. Með mælingum er svo hægt að finna, kola- eyðslu, vélarkralt, vélasnúningahraða og fl. við hvern hraða, sem um er að ræða að skipið fari. Kolaeyðsla á gufuskipum er jafnan mjög stór útgjaldaliður, og þess verð, að henni séu meiri gætur gefnar en hér hefir átt sér stað á fiskiskipum, þvi það virðist liggja í hlutarins eðli, að ekki sé gengið fram hjá mögulegum hagnaði, eða með öðrum orðum, að sá hraði sé not- aður fyrir skipið, sem hagkvæmastur er, bæði með tilliti til þess, hve fljótt skipið kemst áleiðis, og ekki síður með tiiliti til kolaeyðslunnar, því fjarri fer því, að hraði skipsins aukist ettir sömu hlutföll- um og kolaeyðslan. Skipið getur því far-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.