Ægir - 01.10.1917, Side 17
ÆGIR
149
en einni áskorun verður þó stunið upp
enn og mun tíminn sýna, hvernig henni
verður tekið. Þeir, sem hafa lesið 9 tbl.
þ. árs »Ægis«, munu hafa litið yfir at-
huganir þær, er hr. kaupmaður Nielsen
á Eyrarbakka hefir gert á briminu þar.
Slíkar athuganir eru miklu meira virði
en alment er álitið, þar eð þær, hvaðan
sem þær koma eru mikilsvarðandi liður
i útreikningum þeirra, sem tækju að sér
hafnagerð. Sá maður, sem rannsaka á
hafnastæði hér við land, getur eigi dval-
ið langdvölum á hverjnm stað fyrir sig,
hann verður að reikna með þvi, sem
fyrir hans augu ber og hlýða á munn-
legar lýsingar á staðháttum og fl.; en þar
sem oftast vill verða svo, að slikum Kts-
ingum ber ekki saman, þá hlýtur að
koma á hann hik, sem bæði getur tafið
fyrir honum og átt sinn þátt i, að fram-
kvæmdir á verki verði ekki eins og
menn væntu eftir.
Svo mun nú vera ákveðið, að hafna-
verkfræðingur hefji rannsóknaferðir sínar
kringum landið, til þess að athuga hin
tiltækilegustu hafnastæði, gera áætlanir
m. fl., og hefur herra hafnaverkfræðing-
ur Kirk beðið »Ægir« að flytja lesendum
sínum áskorun um að haja á reiðum
höndum, sem beztar og ábyggilegastar
lýsingar á sjólagi og að setja greinileg
merki t. d. með steinum, við hœsta og
kvgsta fjöruborð (stórstregmis jlóð og
jjöru), þar eð að öðrum kosti verður að
miða alt ferðalag við þá daga mánaðar-
ins sem stórstreymt er, og gœti það hajl
gms óþœgindi i för með sér. En þar
sem áðurgreind merki vœru sett, gœtu
athuganir farið jram hvenœr sem verkast
vildi.
Þessari áskorun er beint til þeirra
manna, sem eru búsettir í þeim veiði-
stöðum, sem rannsaka á, og gæti að öðru
leyti átt leið til allra verstaÖya landsins.
Mótorbátahafnir geta orðið margar hér
við land, þegar framlíða stundir og hver
veiðistöð, sem getur gefið verkfræðing
þeim, sem rannsókn hefur með höndum
greinilega lýsingu á þvi, sem hann þarf
að vita um, leggur þann skerf til fram-
kvæmdanna, sem getur orðið að ómet-
anlegum notum, auk þess hve það er
mannlegra að segja við framandi verk-
fræðing: »IIjer er lýsing og hún er rétt«,
í stað þess að standa frammi fyrir hon-
um þegar hann kemur til að vinna það
verk, sem velferð og framtíð er komin
undir og verða að játa, að enginn hafi
tekið eftir 5rmsum atvikum, sem verk-
fræðingurinn verður að vita um, þegar
hann gerir áætlanir sínar, en lil hinna
ýmsu atvika og viðburða má telja, ó-
venju mikil ílóð og fjörur, strauma og
stefnur þeirra ísrek og yfirleitt má engu
leyna, sem síðarmeir gæti orðið mann-
vlrki til eyðileggingar, þótt í svip hepp-
ist að koma því upp. Bæklingur, sem
nefndur væri »Leiðir og lendingar sunn-
an og austanfjalls«, ætti nú að fylgja
hverjum mótorbát, hvort heldur hann
stundaði veiðar eða væri í vöruflutning-
um, en enginn vill leggja sinn skerf til
hans. Þegar á landinu eru reistir hinir
38 vitar, sem ákveðnir eru, auk þeirra,
sem fyrir eru, þá máske menn færu að
skilja hvað það þýðir að mála vitana
öðruvísi en lögboðið er og vitamálastjóri
skipar fyrir, þvi hin mismundi litarbreyt-
ing þeirra er leiðbeining fyrir sjófarend-
ur, og i samræmi við lýsingu sjóalma-
naksins.
21. okt. 1917.
(Ritstj.).