Ægir - 01.10.1917, Page 18
150
ÆGIR
N ef íiílai’sYlit
Fiskiþiiig’sius 1917'.
Skýrsla hins síðasta Fiskiþings er að
því leyti frábrugðin hinum fyrri skýrsl-
um, að í henni sjást engiu nefndarálit.
Allar tillögur eru þar prentaðar, en sök-
um þess hve mikið annriki var í prent-
smiðjunni meðan á prentun skýrslunnar
stóð og það, að henni varð að flýta, þá
var nefndarálitunum slept, en verða nú
smámsaman birt i Ægi i þeirri röð, sem
þau komu fyrir á þinginu og birtist hér
fyrst
Nefn darálit
uin stofnuu og starfrækslu
stýrimannaskóla íi ísafirdi.
Vér undirritaðir, sem Fiskiþingið kaus
í nefnd lil þess að athuga áskorun til
þingsins frá Fjórðungsþingi Vestíirðinga
um stofnun og starfrækslu stýrimanna-
skóla á ísafirði, höfum íhugað þetta mál,
og borið það undir forstöðumann Stýri-
mannaskólans í Reykjavik, hr. Pál Hall-
dórsson.
Fyrir þinginu liggur, eins og þegar er
minst á áskorun frá Fjórðungsþingi Vest-
firðinga i tveim liðum, svo hljóðandi:
Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþingið i
Reykjavík, að reyna að koma þvi til
leiðar:
1. Að Alþingi setji hið bráðasta lög um
stofnun og starfrækslu stýrimanna-
skóla á ísafirði, með svipuðu fyrir-
komulagi og réttindum og er á Stýri-
mannaskólanum i Reykjavik.
2. Að Alþingi setji lög um kenslu undir
próf í meðferð bifvéla, og láti kenna
bifvélafræði í sambandi við skóla
þann, sem um ræðir undir 1. lið.
Um fyrri lið áskorunarinnar lítum vér
svo á, að hann feli helzt í sér kröfu um
skóla, sem sé jafnoki Stýrimannaskólans
i Reykjavík, þar sem menn geti tekið
hin sömu próf (hið alm. íslenzka stýri-
mannapróf og hið íslenzka fiskiskipstjóra-
próf) með sömu réttindum og við hinn
skólann.
Þegar hins vegar er íhugað, hverjar á-
stæður muni vera til þessarar kröfu, þá
eru þær varla þörfin á mönnum til þess
að fara með kaupskip og farþegaskip
með ströndum landsins og milli landa,
heldur bersýnilega þörfin á mönnum,
sem hafi nægilega þekkingu til þess að
geta talist fullfærir um að vera fyrir fiski-
skipum hér við land og þá sérstaklega
mótorbátum (mótorskipum), eins og þeir
nú tíðkast og munu tíðkast í næstu fram-
tíð, m. ö. o. þörfin á mönnum með
fiskiskipstjóraprófi.
Menn gætu nú litið svo á, að óþarft
væri að setja á stofn svona skóla á ísa-
firði, þar sem hann er þegar til í Reykja-
vík, og að einfaldasta ráðið yrði að fiski-
skipstjóradeild hans færði út kvíarnar,
eftir því sem aðsóknin að honum yxi
og þrengslin ykjust. En við það er það
að athuga, að miklu kostnaðarsamara
verður það fyrir menn af Vestfjörðum
og jafnvel úr Norðurlandi að stunda
nám í Reykjavík en á ísafirði, þar sem
íjarlægðin frá heimilunum verður yfir-
leitt meiri og kröfurnar til lífsins mun
hærri í Reykjavík en á ísafirði. Gæti sá
kostnaður orðið ofvaxinn mörgum fá-
tækum pilti með góðum hæfileikum ann-
ars. Sjálfsagt mundi skóli af þessu tagi
kosta landið allmikið fé, en í þann kostn-
að mundi eigi vert að horfa, þar sem á-
stæða er til að ætla, að skólinn mundi
heinlinis spara mörgum námsmanni all-
mikið fé og (skildi hann köllun sina rétt)
skapa holla samkepni við aðra skóla
af sama tagi, og um leið gefa þeim sem