Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1917, Síða 20

Ægir - 01.10.1917, Síða 20
152 ÆGIR eitt, vefja saman og binda utan um. Ekki hélt hann að belgurinn þyrfti að vera í heilu lagi, þar eð hann að eins væri hafður í smágjörfa hluti, en hvað sem þvi líður, þá verður að athuga þetta alt. Hverju er ekki fleygt hér vegna fá- kunnáttu og ósamheldni manna. Litum t. d. á Sandgerði. Þar i fjörunni eru þús- undir króna látnar fara til ónýtis meðan á vertið stendur. Kinnar og gellur eru matur, beinin má mala og hafa til ým- islegs, roðið af hausunum er dýr vara, notað i lím — öllu þessu er fleygt hér. Hákarlsskrokkum í heilu liki er fleygt þegar búið er að ná lifrinni og ekkert verið að hugsa um, hvort það sé pen- ingavirði eða ekki sem fleygt er, og þó kvarta allir um peningaleysi og bjargar- skort. Sviar og Amerikumenn munu nú einna lengst komnir í þvi að nota alt úr fiskinum. Úr þorskbeinum eru nú t. d. tilbúnir hnappar, hárkambar o. tl. og alt kemst það á heimsmarkaðínn og hirð- ingin horgar sig, og enginn vafi á, að mörgu af þvi, sem nú þykir sjálfsagt að íleygja hér, verður innan fárra ára haldið saman og komið á markað sem annari verzlunarvöru. Spurningin er að eins sú, hve lengi ætla menn að fleygja i sjóinn og fjörurnar ígildi beinharðra peninga. Gömul seglskip. Hvervetua hafa Danir verið álitnir mestu þrifnaðarmenn og hirðing á skip- um þeirra viðurkend um allan heim, og skipasmíðar þeirra lýsa vandvirkni, hvar sem á er litið, enda bera hi:n gömlu skip þeirra, sem enn eru í förum, þess beztan vott. I haust fóru fram kaup á jagtinni »Constance« af Onsevig, er þún smíðuð á Ærö árið 1723; viðgerð fékk hún 1868, og er enn sterkt og gott skip þrátt fyrir aldurinn, sem nú er orðinn 194 ár. Skip þetta er úr eik, og að eins 35 smálestir brúitó. Fjöldi danskra seglskipa er yfir 100 ára. Næst á eftir »Constance« kemur galeas »Marie«, eigandi H. Östermann i Mars- dal. Skip þetta er smiðað í Troense árið 1776, og er 41 smálest að stærð, bezta skip enn þá. Þá kemur galeas »De tvende Brödre«, eigandi J. R. Eriksen í Marsdal, smíðaður í Marsdal 1785, og sama ár er galeas »Erik Hansen« smíðaður, er nú er skrásettur í Ommel. Bæði þessi skip eru rúmar 80 smálestir. Galeas »Albertine«, 80 smálestir, er smíðaður í Troense árið 1794, og sama ár er jagtin »De íire Brödre«, 20 smálestir, smíðuð í Marsdal. Jagtin »Marie«, smíðuð 1804, galeas »De tvende Brödre« 1809, galeas »Alf«, skonn- ortan »Fredshaabet« og galeas »Paqu- etten«, öll þrjú smiðuð árið 1811. Öll þessi skip eru i förum enn, og álitin að vera beztu fleytur. Það væri góð bending til allra þeirra, er skipum halda úti og hafa þau með höndum, að fá að sjá kostnaðarreikning yfir árlegt slit á dönskum seglskipum. Á slikum reikningum má bezt sjá góða með- ferð á hlutum, kunnáttu i að færa í lag það sem aflaga fer, án þess að þurfa að kaupa nýtt. Kemur slíkt af tvennu. I fyrsta lagi eru margir skipstjórar eigend- ur eða meðeigendur skipa, og í öðru lagi er hreinlæti og reglusemi meðfædd sjómannastéttinni þar, og eftir eigendum skipa laga þeir sig, sem ekki eru eig- endur, og vilja engir eftirbátar verða á þeim skipum, sem þeim er trúað fyrir. Á vetrum eru það víða skipstjórarnir, sem laga allan reiða, sauma segl og út-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.