Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1917, Page 21

Ægir - 01.10.1917, Page 21
ÆGIR 153 búa að öllu leyti það, sem til taks þarf að vera til næsta árs siglinga. - - Meðan kúttararnir voru hér, var þetta orðið al- siða, og sparsemi og þrifnaður komin á bezta rekspöl, en með hinni nýju útgerð virðist afturkippur kominn i þá framtaks- semi. Það sem áður aldrei sást, svo sem að dragreipi væru hnýtt saman með hnútum, er almenn sjón nú. Aður fyr voru segl tekin svo saman, að þau voru skinnúð uppt þ. e. fest þannig, að sem minst hætta væri á þvi, að vatn gæti komist inn í seglið og orðið til skemda. Nú eru segl gerð þannig föst, að hvervetna sjást brot, sem taka svo á móti sjó, snjó og regni, að seglin hljóta að verða að geym- irum fyrir það, sem er þeim eyðilegging. Segldúkshólkar utan um seglin sjást ekki, og mundi það þó sparnaður og hlífa þeim, en verst þó af öllu er það, þegar skip eru lögð i vetrarlegu og seglin látin vera á sínum vanastað. Seglaúthúnaður á 30—40 tonna mótorbát, mun vart nú fást undir 1000—1200 kr. Það eru einnig peningar, en 10.000—12.000 kr. virði verða seglin, þegar til þeirra á að taka út á rúmsjó, þá er ólag kemst á mótorinn, og þau þá sýna sig segl en ekki fúaræíla. Hnútadrasl á dragreipum sýnir trassa- skap og augtysir vankunnáttu og hirðu- leysi þeirra, sem fyrir bát eru og heil- brigð skynsemi segir mönnum, að hnútar komast ekki í gegnum þær blakkir, sem ætlaðar eru sléttu dragreipinu, og að blakkir eru engar harmoníkur, sem þenj- ast út þegar hnútadraslið á að fara í gegnum þær. Rvík 19. okt. 1917. Sveinbjörn Egilsson. Skipstjón. Selveiðaskipið »Kópur« sekkur fyrir sunnan Iírísuvíkurbjarg. Aðfaranólt laugardagsins 13. þ. m. sökk »Kópur« selveiðaskip hlutafélagsins »Kóp- ur« á Tálknafirði; hafði consúl P. A. Ólafsson keypt skip þetta í Noregi og haft það til selveiða norður i höfum. í haust hefur skipið verið leigt til ým- issa ílutninga hafna á milli og í slika ferð lagði það föstudaginn 12. þ. m. Þá hlaðið salti, sem fara átti til kaupmanns Nielsens á Eyraabakka frá h/f »Kol og Salt« hér í bæ. Um kl. 2 á laugardags- nóttina vöknuðu þeir, er frammí sváfu við hvell, er þeir halda að hafi komið af því, að lúka á gólfi hásetaklefans hrökk upp. Orðu þeir þá þess varir, að ákaf- ur leki var kominn að skipinu. Var þá tekið að dæla, en menn höfðu ekki við og réði því skipst,óri af að yfirgefa skipið og fóru allir í skipsbátinn, en engu eða Jitlu fengu menn bjargað af munum sínum. 10 klukkustundir voru skipsmenn að hrekjast í bátnum og náðu loks landi við Krísuvik og mesta mildi að veður eigi var; verra. Hvernig þessi mikli leki skyldi svo snögglega koma að skipinu veit enginn, og það mun aldrei sannast, því »Kópur« liggur á 50 íaðma dýpi og enginn von að honum verði náð. Ymsar getgátur hafa heyrst, svo sem það að slitnað hafi rónagli eða planki sprungið, og eru þó litlar likur til þess, því skipið var afarsterkt, 18" þykkur byrðingur og innviðir það þéttir, að vart var unt að koma hönd milli banda, svo ólíklegt er að stórt gat hafi komið á skip, þar sem hvað bindur annað eins og þar átti sér stað. Hefði það ekki verið hér við land að

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.