Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1917, Blaðsíða 23

Ægir - 01.10.1917, Blaðsíða 23
ÆGIR 155 bátnum en mist bátinn. Vélbátunum tókst að bjarga öllum mönnunum og koma bátunum fimm til lands«. Á þilskipinu »Hurricane« lá einnig við stórslysi og er hrakningum þess lýst þannig: »1 ofviðrinu fyrstu daga mánaðarins, þegar »Trausti« fórst, lenti skúta ein frá Seyðisfirði í miklum hrakningum. Hún var á leið frá Eyjafirði austur fyrir land, er veðrið skall á, og eftir 5 daga brakn- inga var hún komin suður á móts við Fáskrúðsfjörð, þar náði vélbátur í hana og dró í höfn. Höfðu fyrst öll seglin rifnað í tætlur, síðan misti hún bæði möstrin og laskaðist að öðru leyti all- mikið. Skipshöfnin var öll heil á húfi«. Fiskifélagið. Á siðasta Fiskiþingi var samþykt til- laga um, að maður yrði hið fyrsta send- ur til Ameríku til þess að greiða fyrir sölu á islenskum sjávaraturðum, og lögð áhersla á, að slíkur maður væri sendur þegar á þessu ári, og um leið skorað á alþingi að veita 10,000 kr. á ári til er- indrekastarfs erlendis. Af fé því, sem veilt var til þessa starfa voru eftir 4000. kr., þar eð hr. Matth. Þórðarson að eins fékk útborgun greidda hið fyrra árið. Stjórn Fiskifélagsins var ljóst, að 4000 kr. til Ameríkufarar var svo lítið fé, að hér gat að eins verið að ræða um að koma og fara, um dvöl og athugan- ir varla að ræða, og peningum þessum með þvi móti kastað á glæ, án þess að hafa nokkuð verulegt gagn af þeim, enda hægt að fá nægar upplýsingar um það hjá þeim, er nýverið hafa verið í Amer- iku hve langt komasl má með að eins 4000 kr. Það er drýgra að koma með 1000 dali hingað og skifta þeim í danska mynt, en að fara héðan með 4000 kr. og skifta þeim i dali í Ameríku, og eiga með þeim að borga veg sinn þar. Áskorun um fjárveitingu tók alþingi svo, að það veitti 12,000 kr. á ári til er- indrekastarfins erlendis með því skilyrði, að sá er sendur væri aflaði öllum ís- lenskum afurðum, eftir þvi, sem í hans valdi stæði, betri, tryggari og víðáttumeiri markaðar en verið hefur. Stjórnarráðið hefir nú veitt hinar ó- notuðu 4000 kr. fyrir þetta ár til erind- reka erlendis og skoraði á stjórn Fiski- félagsins, að benda á hætan mann, er þegar gæti farið til Ameríku og var bent á alþingismann Matth. Ólafsson og sam- þykti Stjórnaráðið hann. Er nú afráðið að M. Ólafsson fari vest- ur með »Gullfossi« um 24. þ. m., sem erindreki Fiskifélagsins og um leið lætur hann af erindrekastarfi innanlands er hann hefir haft á hendi fyrir Fiskifélagið síðan 1. janúar 1914. Yélfræðingur Fiskifésagsins hr. Ólafur T. Sveinsson heldur um þessar mundir námsskeið í mótorfræði hér í Reykjavík. Ryrjaði námsskeiðið hinn 10. þ. m. og mun standa yfir 2 -3 mán- uði. Á það eru nú (21. okt.) komnir 20. til 30 nemendur. Námsskeið þetta mun verða hið lengsta, sem enn hefir verið haldið. Erlendis. 14,500 tonna niótorskip. Hið stærsta mótorskip, sem smíðað hefir verið í Randarikjunum, er »Mau- mee«, sem er kolaflutningaskip flotans. Skip þetta er að stærð 14,500 tons, hefir 2 skrúfur og 2 Dieselvélar; hefir

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.