Ægir - 01.09.1920, Side 14
ÍÖ2
ÆGIR
nefndinni er falið samkvæmt þessari
reglugerð.
Reglugerð þessi öðlast gildi nú þegar,
og þar með er felt úr gildi reglugerð 15.
okt. 1917 um framkvæmd iaga nr 10, 8.
september 1915 og laga nr. 7, 8. fe-
brúar 1917.
Atvinnn- og samgðngumáladeild Stjórnarráðsins
28. september 1920.
Pjetur Jónsson
Oddur Hermannsson.
Hinn 21. september var skipuð verð-
lagsnefnd, sem fyrst um sinn starfar að
eins innan Reykjavíkur. í nefndina voru
skipaðir: Björn Pórðarson hæstaréttarit-
ari, formaður, Björn Sigurðsson, fyrv.
bankastjóri, Geir Sigurðsson skipstjóri,
Guðjón Guðlaugsson alþingismaður og
Héðinn Valdemarsson skrifstofustjóri.
Fréttir.
Stórt síldarfélag
hafa Þjóðverjar í Hamborg gengist fyrir
að stofnað yrði, enda mun það nú þegar
stofnað. En það er bygt eingöngu á ferskri
síld til reikingar. Mörg stór reykingarhús
í Þýskalandi, Austurríki og Tsékkósló-
vakíu eru í því og sömuleiðis útílytjendur
nýrrar sildar í Englandi, Hollandi og á
Norðurlöndum. Hlutafé þessa félags er
10—15 miljónir marka, og býst það við,
að gera verslun með síld fyrir 500 milj.
marka á ári. Norðmenn vænta sér góðs
af að fá þarna markað fyrir nokkuð af
vorsíld sinni. Þeir búast við að selja
2—300,000 kassa og fá fyrir þá 4—6 milj.
króna, lágt reiknað.
Fiskiveiðar Eæreyinga.
Færeyingar öíluðu fyrir 13.131.650
krónur árið sem leið (1919) en 1918 var
afli þeirra 10.041.400 króna virði. Af
aflanum 1919 áttu lcúttarar 10.278.270
kr., en bátar [2.853.380. krónur. Nýr
fiskur til neyzlu heima fyrir er hér ekki
talinn með.
Fiskiskip Færeyinga
voru í árslok 1919, 128 kúttarar, tonnatal
þeirra, alls 9.101. Um 192 mótorbátar
og 1442 róðrarbátar stunduðu veiðar við
eyjarnar.
Eftir virðingu sem fram fór 1915, var
verð þessara 192 mótorbáta 659.700
krónur og verð allra róðrabáta 150.755
krónur, eða öll bátaeignin virt á 810.454
krónur. Árið 1918 voru drepnir 344
hvalir (grind) Árið 1919 voru drepnir
153 hvalir (grind).
Fiskiveiðar í Danmðrkn
gáfu af sjer árið 1913 17.515.200, 1914
17.293.200, 1915 26.525.000, 1916 57.792.-
500, 1917 35.159.900, 1918 41.739.000 og
1919 54.112.300 krónur
Ostruveiðar í Limafirði og fiskar veidd-
ir i ám og vötnum eru ekki taldir í
áðurnefndum upphæðum.
Um árslolc 1919 áttu Danir 16.370 báta;
af þeim höfðu 4.661 mótora. Virðingar-
verð allra bátanna var talið 32.028.700
krónur.
Börkunarefnlð ,Tarcat‘.
Noklcra dúnka af börkunarefninu
»Tarcat«, sem minst var á í 5. tbl. Ægis
þ. á. hefir Fiskifélagið nú fengið til
reynslu. í hverjum dunk eru 20 kilo af
börkunarefni. Efni þetta þarf ekki að