Ægir - 01.02.1926, Qupperneq 12
ÆGIR
32
Línuveiðaskip greiði sama gjald og mót-
orbátar.
Togarar, skip Eimskipafélagsins og ríkis-
sjóðs, svo og innlend vöruflutningsskip
greiði einnig björgunarsjóðsgjald, og skal
nánara kveðið á um þessi gjöld þeirra í
reglugerð, er stjórn Björgunarsjóðsins sem-
ur en Stjórnarráðið staðfestir.
Aurabaukar skulu og settir í alla fiski-
báta landsins, öll farþegaskip og flutninga-
skip þau, er náð verður til.
Fyrst um sinn og þar til fullkomin
björgunarskip verða bygð, ætlast nefndin
til, að skipinu »Þór« frá Vestmannaeyjum
og vitamálaskipinu »Hermóði« verði falin
björgunarstarfsemi fyrir Suðurlandi á vetr-
arvertíðum og skal skipið útbúið eftir
föngum til björgunarstarfanna, svo og einu
skipi fyrir Hornafirði og syðri Austfjörð-
unum.
Þór annist Vestmannaeyjar ásamt veiði-
stöðvunum austanfjalls, samhliða land-
helgisgæzlunni, eins og undanfarið, en
Hermóður hafi svæðið við sunnanverðan
Faxaflóa og að Krísuvíkurbergi, svo og við
Snæfellsnes.
Hinu nýja landhelgisvarðskipi skal og
falin björgunarstarfsemi, jafnframt land-
helgisgæslunni, en vér teljum ekki unt að
ákveða staðbundið björgunarsvæði handa
því skipi. Ennfremur sé Þór falið björg-
unarstarf frá ísafjarðardjúpi fyrst um sinn
/ frá 1. okt. til 31. desember samhliða land-
helgisgæzlu þar.
Forstaða björgunarmálanna sé fyrst um
sinn falin þessum mönnum: Forseta Fiski-
félagsins, yfir-skipaskoðunarmanni ríkisins
og forstjóra Samábyrgðar ísl. á fiskiskip-
um.
Um skipasmiðar og kaup erlendra skipa.
Nefndin leggur eindregið til að selt séu
lagaákvæði um að skip, er innlendir menn
eða félög kaupa, og sem ætluð eru til
flutninga umhverfis ísland eða frá landinu,
skuli eigi lakar smíðuð en flokkunarreglur
alment ákveða, sé skipið af þeirri stærð,
að það sé flokkað.
Einnig gerir nefndin að tillögu sinni, að
bannað sé að kaupa frá útlöndum eldri
skip en 21 árs. Þó skal jafnan fylgja
vottorð flokkunarfélags eða ríkisskoðunar-
manns þaðan, sem skipið er keypt, um að
það sé traust og vel útbúið.
Nefndin er sammála aðalfundar-nefnd-
inni um að settar verði lögboðnar reglur
um skipasmíði innanlands, líkt og tíðkast
á Norðurlöndnm.
Þá gerir nefndin það að tillögu sinni,
að inn í tilskipun um öryggi báta og
skipa sé bætt ákvæði um að öllum skip-
um minni en 90 smálestir sé gert að
skyldu, að hafa rekakkeri meðferðis í
hverri sjóferð.
Ákvæðin um skipabyggingar og skipa-
kaup frá útlöndum eru svo rækilega skýrð
í áliti aðalfundar-nefndarinnar, að eigi er
ástæða til að bæta þar miklu við.
Það er alkunnugt, að skip þau er ís-
lendingar hafa látið smíða erlendis, hafa
verið misjöfn að smíði og öllum frágangi.
Þeir hafa orðið að kosta eftirlitsmann af
sinni hálfu við smíðið, og þó einatt átt í
þrefi við skipasmiði um að samnings-
ákvæðum yrði fylgt, og smíðin oft ver af
hendi leyst en áskilið var. Sjálfsagt er því
að lögbjóða, að öll þessi skip hlýti þeim
reglum, er flokkunarreglur tiltaka, séu þau
flokkuð, en annars háð eftirliti rikisskoð-
unarmanna.
Þá er það eigi síður kunnugt hvílíkt
tjón menn hafa þrásinnis bakað sjálfum
sér og þjóðinni yfir höfuð með því, að
kaupa í blindni gömul skip og slitin frá
útlöndum. Er brýn nauðsyn til að taka
þar rækilega í taumana til að firra menn
fjártjóni og minka slysahættu þá, sem
stafar af slíkum skipum.