Ægir - 01.02.1926, Blaðsíða 26
46
ÆGIR
Var hún að vísu slutt og að mörgu leyti
ónóg.enþar eð ekki var völ á annari bók
á íslensku, þá varð að nota hana, en i
tímum bætti ég hana upp með fyrirlestr-
um. Til notkunar við eðlisfræðisnámið,
fékk ég áhaldasafn Gagnfræðaskólans að
láni, fyrir velvild skólameistarans.
Ég vil geta þess að mér finst miður
heppilegt, að nemendum sé eigi gjört að
skilyrði að fá þrjá að meðaltaii í fyrstu
þremur greinunum, sem er skrifleg. munn-
leg og verkleg vélfræði, því reynslan varð
sú, að nokkrir nemandanna flutu upp á
íslensku, eðlisfræði og reikningi. Ennfrem-
ur vildi ég leyfa mér að benda á að það
mun eigi vera nema réttmæt krafa til nenr-
enda þeirra, sem prófi Ijúka, að þeir verði
fyrst fjóra mánuði sem aðrir vélagæslu-
menn, áður en þeir fá skírteini sitt, sem
þá fyrst gefi þeim réttindi til að gerast
fyrstu vélagæðslumenn.
Hér með fylgir yfirlit yfir prófverkefni,
skrifleg, verkleg og munnleg.
Jón Sigurðsson
/rd Hrísetj.
Fylgi8kjal.
íslenskur stíl). »Hvaða höpp hafa íslandi
hlotist af bifbátum«.
í reikningi, voru valin þrjú dæmi úr
reikningsbók Ólafs Daníelssonar.
í Skriflegri vélfræði: 1. Gangsetning 2.
Hirðing 3. Gangur fjórgengisvéla 4. Gang-
ur tvígengisvéla.
í munnlegri vélfræði: 1. Gangur fjór-
gengisvéla, 2. Gangur tvígengisvéla og lýs-
ing á Bullu og Bullu. 3. Gangur tvígengis
Diselvéla. 4. gangur fjórgengis Diselvéla
5. Gangskiftanlegir Mótorar. 6. Botngrind,
Sveifarás og Höfuðlegur. 7. Kambásinn og
skifting ventilanna. 8. Hvernig er kraft-
olían leidd inn í mótorinn »Eldsneytis-
geymar« 9. Gangsetningartæki. 10. Gera
mótorinn tilbúinn til gangs »gangsetning«
11. Vatnsdæla og austurdæla. 12. Kveiking
með magneto eða Battarium. 13. Blönd-
ungar. 14. Áburðartæki og áburðarolíur.
15. olíuleiðslan í ólagi. 16. Heit leg mót-
orsins. 17. Samþrýsting loftsins í ólagi.
18. Mótorinn gengur óreglulega og hörð
slög í mótornum. 19. Mótorinn skilar of
litlum krafti. 20. Gangráðurinn, (Regulalor)
21. Glóðarhöfuð, glóðarpípur, sjálfkveikjur.
22. Gaslampar og hraðkveikjulampar.
Próf tóku 20 menn.
Námskeið.
Að tilhlutun fiskifélagsdeildarinnar »Nep-
túnus« á Norðfirði og í samráði við erind-
reka Fiskifélags íslands, Hermann Þor-
steinsson á Seyðisfirði, var námskeið í
siglingafræði haldið á Norðfirði á yfir-
standandi vetri, frá 15. nóv. til 16. jan.,
að báðum dögum meðtöldum. Kennari
var Bjarni Jónsson frá Fáskrúðsfirði.
Námskeiðið sóttu alls 12 nemendur.
Einn varð að hælta námi 24. des., en 11
stunduðu nám allan tímann. 6 af nem-
endunum gengu undir próf á Seyðisfiiði
11.—12. febrúar og stóðust allir prófið.
Hinir 5 urðu að hverfa frá að ganga undir
próf, sumir vegna þess, að þeir böfðu ekki
fyllilega nægan siglingatíma, en sumir vegna
þess, að þeir urðu að fara til skiprúms
áður en prófið var haldið. Allir fengu þeir
góðan vitnisburð kennara og öðlast rélt
til formensku á vélbátum alt að 12 smálesta.
Til
Fiskifélags íslands
Reykjavík.