Ægir - 01.02.1926, Blaðsíða 24
44
ÆGIR
Slysfarir.
Hinn 9. janúar 1926 fórst v.b. »Goða-
foss« úr Vestmannaeyjum og druknuðu 5
menn.
Sama dag sökk e.s. »Hartfell« frá Glas-
gow nálægt Vestmannaeyjum og drukknuðu
5 menn (útlendingar).
Hinn 3. marts druknuðu þrír menn af
vélabátum, sem voru að fiski í Miðnessjó.
Tók þá alla út, sinn af hverju skipi. Bát-
arnir voru: »Ingólfur« og »Hrefna« frá
Akranesi og »Guðrún« úr Hafnarfirði. Af
»Guðrúnu« tók út tvo menn, en annar náð-
ist altur. »Hrefna« misti einnig bátinn.
Maðurinn, sem druknaði af »Ingólfi«, hét
Óskar Þorgilsson úr Hafnarfirði, slýrim.
bátsins, nærri 27 ára gamall. Eftir lifa
ekkja hans og barn. Sá, sem druknaði af
»Hrefnu«, hét Bergþór Árnason, af Akra-
nesi. Þriðji maðurinn, sem druknaði, hét
Jóhann Björnsson og var að norðan. Hann
tók út af »Guðrúnu«.
Laugardagskvöldið 6. marts fór v.b. »Eir«
af ísafirði, ásamt öðrum bátum, frá Rvik
út á veiðar. Gerði aftakaveður um nóttina
og komust bátarnir við illan leik til hafna,
allir nema »Eir«, sem fórst í veðrinu. Á
bátnum fórust eftirtaldir 12 menn, er allir
voru á besta aldri:
1. Magnús Friðriksson, skipstjóri, ísafirði;
kvæntur; lætur eftir sig konu og 5 börn.
2. Guðmundur Jóhannsson, stýrimaður,
Súgandafirði, ókvæntur. 3. Valdemar Ás-
geirsson, vélstjóri, ísaf., kvæntur, lætur eftir
sig konu og 4 börn. 4. Gísli Rórðarson,
ísaf., kvæntur, lætur eftir sig konu og 4
börn. 5. Sigurður Bjarnason, ísaf., kvæntur,
lætur eftir sig konu og 3 börn. 6. Bjarni
Thorarensen, ísaf., ókvæntur. 7. Kristján
Ásgeirsson, Bolungarvík, kvæntur, Iætur
eftir sig konu og 2 börn. 8. Steindór, bróð-
ir Kristjáns, Svarthamri í Álftaf., ókvænlur.
9. Forsteinn Rorkelsson, Bolungarvík, ó-
kvæntur. 10. Magnús Jónsson, Súðavík, ó-
kvæntur. 11. Ólafur Valgeirsson úr Árnes-
hr. í Strandas., ókvæntur. 12. Magnús
Magnússon, úr Árneshr. í Strandas., ókv.
Á sunnudagsmorguninn 14. þ. m. varð
annað slys, álíka hörmulegt, í Grindavik.
Þann morgun fóru 5 skip á sjó þaðan. —
Veður var gott, en veltibrim. Svo slysa-
lega tókst til, að einu skipinu barst á, um
hádegisbilið, í lendingu í Járngerðarstaða-
vör. — 11 menn voru á bátnum; 8 fórust,
en annað skip var þar skamt á eftir og
náði þremur mönnum, en einn þeirra lézt
á leið til lands; hinir 2 héldu lifi. — Pessir
9 menn fórust:
1. Guðjón Magnússon, formaður, Baldurs-
haga, Grindavík, kvæntur, barnlaus, 32 ára.
2. Guðbrandur Jónsson, Nesi, Grindavík,
tengdafaðir formannsins, 59 ára. 3. Hall-
grímur Benediktsson, Kirkjubæjarklaustri,
22 ára, ókvæntur. 4. Guðmundur Sigurðs-
son, Helli í Rangárvallas., 33 ára, ókv.
5. Lárus Jónsson, Hraungerði, Grindavík,
21 árs, ókvæntur. 6. Stefán Halldór Ei-
ríksson, Hólmavík, 25. ára, ókvæntur. 7.
Sveinn Ingvarsson, Holti, Grindavik, 28
ára, kvæntur og átti 1 barn. 8. Guðm.
Guðmundsson úr Dalasýslu, kvæntur og
átti 9 börn. 9. Erlendur Gíslason, Vik,
Grindavík, 18 ára. — Þessir björguðust:
Guðm. Kristjánsson, Grindavík, og Valde-
mar Stefánsson, Langstöðum i Flóa.
Þegar »Gulltoppur« var nú síðast í Eng-
landi vildi það til, að Tómas Sigurðsson,
til heimilis að Haga við Reykjavík, féll í
skipakví og druknaði.