Ægir - 01.02.1926, Blaðsíða 13
ÆGIR
33
Skip eru nú flokkuð á fjögra ára fresti,
og telur yfirskipaskoðunarmaður ríkisins
hæfilegt að miða aldur skipa, sem keypt
eru frá útlöndum, við 21 ár. Sjálfsagt er
að setja reglur um skipasmíð innanlands.
Ætlast nefndin til að farið verði eftir
reglum í þessu efni, er gilda í nágranna-
löndunum, en þó vandlega gætt þess, að
taka til greina innlenda staðhætti í þessu
efni, og kveðja til ráða kunnuga menn
við samning þessara reglna.
Sjálfsagt þykir nefndinni að leggja til,
að lögskipað verði nú þegar, að rekakkerið
skuli fylgja öllum skipum npdir 90 lestum.
Margir telja fylstu þörf að hafa það i öll-
um skipum. En reynzlan er eigi fengin
urn, það, hvort áhald þetta er nothæft í
togurum, og þykir því ekki vert að ákveða
það að svo stöddu.
Um farþegaflatning með skipum við strendur
landsins.
Nefndin er sammála aðalfundarnefndinni
í því að setja beri ströng ákvæði um, að
mótorskipum og öðrum smærri skipum sé
eigi leyft að flytja eftir geðþótta eins
marga farþega og rúm bátanna leyfir, á
öllum tímum árs. Reyndar eru til ákvæði
sem setja skorður við þessu í tilskipun
um öryggi skipa og báta, en þau ákvæði
hafa til þessa nær undantekningarlaust
verið að vettugi virt. Nokkrir mótorbátar
hafa farist með farþegum síðari árin, sem
vér höfum eigi tök á í svipinn að greina,
og oftsinnis hefir legið við stórtjóni vegna
ófyrirgefanlegrar ofdyrfsku manna í þessu
efni.
Pö viljum vér ekki leggja til, að hinum
stærri farþegaskipum sé gert að skildu að
hafa eigi fleiri farþega með ströndum
landsins, en komast í skipsbáta þeirra.
Nefndin hyggur að erfitt yrði að fram-
fylgja þessu ákvæði að svo stöddu, enda
bendir löng undangengin reynzla eigi á
verulega hættu í þessu efni. Hinsvegar
leggur nefndin til að bannað sé að flytja
farþega á öllum skipum minni en 30 rúm-
lestir á tímabilinu frá 1. október til 1. maí,
i ferðum við strendur landsins; innan-
fjarðarsiglingar undanskildar.
Skip sem eru í ferðum alt að 6 klukku-
stundum og eigi geta rúmleysis vegna
haft bát fyrir alla skipsverja, telur nefndin
að megi flytja einn farþega á hverjar 5
rúmlestir.
Að öðru Ieyti er nefndin á einu máli
um, að eigi sé rýmkað á neinn hátt á
gildandi ákvæðum í Tilskipun um öryggi
skipa og báta.
Nefndin leggur áherzlu á, að beitt sé
ósleitilega sektarákvæðum, einkum að því
er snertir brot gegn banni um að flytja
farþega á vetrum, og taka fleiri farþega
en lög leyfa.
Nefndin hefir íhugað tillögur aðalfundar-
nefndarinnar um hleðslumerki á skipum.
Nefndin treystir sér ekki til að gera til-
Iögu um, að hleðslumerki skuli sett á öll
fiskiskip, sem ganga umhverfis landið,
enda munu hleðslumerki á fiskiskipum
hvergi tíðkast.
Hinsvegar legur nefndin til, að eftirlits-
mönnum skipa skuli skipað að hafa ríkt
eftirlit í þessu efni, og sektarákvæðum
beitt við alla þá, er gera sig þar að þarf-
lausu bera um óforsvaranlega ofdyrfsku.
Um veðurfrœðistöðvar og veðurspár.
Nefndin leggur til að tekin verði til
greina ósk forstjóra veðurfræðistofunnar
um að veita til viðbótar 13500 krónur til
veðurfræðistofunnar, og bendingar þær og
framkvæmdir, sem um getur í brjefi for-
stjórans til aðalfundarnefndarinnar. Nefnd-
in leggur áherzlu á, að veðurskeyti fáist
reglulega og fljótt frá þeim stöðum, er
liggja betur við til að geta sér til um
veður, en ýms hin stærri kauptún. Bendir