Ægir - 01.08.1926, Side 16
f
156
ÆGIR
Skýrsla
erindrekans í Vestfirðingafjórðungi
janúar — júlí 1926.
Um mörg undanfarin ár, hafa vetra-
mánuðirnir verið ákaflega eftirtekjulitlir
fyrir sjómenn í veiðistöðvunum hjer nær-
lendis. Þótt menn hafi haft ráðna skips-
höfn i Bolungavík, Hnífsdal, Álftafirði,
svo og Súgandafirði, þá hefir fyrst og
fremst oft og einatt eigi gefið á sjó, nema
endrum og eins, og þá oftast sártregur afli.
Undantekning frá því var veturinn 1923. Þá
fékst i Bolungavik og Hnífsdal góður afli
í marsmánuði, en stóð skamma stund. —
Menn voru því afhuga vetrarróðrum að
miklu leyti, og töldu tímabilið frá nýjári til
páska algerlega dauðan tima.
En síðastl. vetur hefir kollvarpað þess-
ari skoðun, sem betur fer. Á vetravertíðinni
í ár aflaðist í Súgandafirði 446 skippund
fiskjar i stað 153 skpd. í fyrra; í Bolunga-
vík 660 skpd. i ár, en einungis 197 síðastl.
ár. I Álftafirði eru og svipuð hlutföll, en í
Sljettuhreppi (Aðalvík) var sjór mjög lit-
ið stundaður. í vetur voru og lögð upp um
1450 skpd. togarafiskur í Dýrafirði; á
Patreksfirði um 1300 skpd. og hjer á ísa-
firði um 1200 skpd. togarafiskur. Auk
þess fengu og stærri bátarnir hjeðan um
100 skpd. fiskjar, áður en þeir lögðu af
stað á vertíðina suður í Faxaflóa. í. 5. tbl.
„Ægis“ er að finna skýrslu um aflafeng
þeirra þar.
Hjer verður, eins og undanfarin ár, vor-
aflinn dreginn saman í veiðistöð hverri, og
jafnframt getið um tölu fiskveiðiskipa,
og stuðst við upplýsingar kunnugra
manna um aflabrögðin. Tölurnar í svig-
um aftan við aflaupphæðina, merkja vor-
aflann 1925.
Syðsta útvegsplássið i fjórðungnum,
Flatey á Breiðafirði, fellur burtu að þessu
sinni. Þar hefir nú engin fleyta verið gerð
út á þorskveiðar í ár. Líklega hefir nú hátt
upp í öld verið gerð út þilskip úr Flatey, og
er því hér um athugavert afturkast að ræða,
sem vonandi rætist úr aftur von bráðar.
Flatey-ingar voru og um langt skeið at-
hafnamenn miklir og forgangsmenn í
þeiin efnum, sem öðrum, svo sem alkunn-
ugt er, og vert væri að minnast á. Er og
nokkuð vikið að því, i hinni fróðlegu grein
Arngr. Bjarnarson í apríl-blaði ,,Ægis“.
Vikur í Rauðasandshreppi eru næstu
verstöðvarnar. Þaðan gengu í vor: Frá
Látrum 2 bátar, úr Breiðuvík 1, úr Kolls-
vík 10, úr Hænuvík 5, svo og úr Patreks-
firði vestanverðum 3 bátar, samt. 21 bát-
ar. í fyrra-vor gengu þarna 23 bátar alls.
Róðrar hófust um miðjan maí, en fiskur
sagður genginn á miðin þarna nokkru fyr.
Aflafengur til 10. júlí, um 390 skpd. (430).
Aflabrögðin því hlutfallslega betri en s. 1.
ár, og mega teljast óvenju góð.
Pntreksfjörður. Útvegur þaðan i vor og
sumar 5 þilskip, 6 vélbátar (nokkur þeirra
á færaveiðum) og um 10 opnir bátar (sum-
ir með vél), svo og togarinn „Leiknir". í
fyrra var skipatalan: 4 þilskip, 2 vélb. um
15 lesta og 10—12 smáir bátar.
Afli frá 1. apríl til 1. júli í ár um 3600
skpd. (1200). Af þvi er togara-aflinn tal-
inn uin 1300 skpd. Togaraaflinn á vetrar-
vertíð er og' um 1300 skpd. Aflabrögðin eru
yfirleitt talinn í allra-besta lagi. Hefir vist
aldrei jafn mikill afli fengist frá Patreks-
firði.
Tálknnfjörður. Þaðan gengu í vor 12 ára-
báttar, en 11 voru taldir þar í fyrra. Afla-
fengur talinn hinn sami og þá, um 400
skpd., og sagt í besta lagi.
Arnarfjörður. Þilskipa-útgerðin frá
Bíldudal var stöðvuð fyrst i vor, vegna
verslunarhrunsins á Bildudal í vetur. En