Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1927, Page 8

Ægir - 01.07.1927, Page 8
140 ÆG I R andi, sem ennþá standa áfram í bókum þess. Það eru því vinsamleg tilmæli frá Fiski- félaginu til stjórnar deildanna, að þær sem allra fyrst láti í té greinilega skýrslu yfir starf deildar sinnar síðastliðið ár, sömuleiðis hverjir eru í stjórn deildarinn- ar og meðlimatölu. Kr. B. Samkepnin um síldveiðarnar. Norska blaðið ,.Fiskeren“ 22. júní telur að þáttaka Norðmanna við síklveiðina í ár verði að minsta kosti jafnmikil og í fyrra, en þá var talið að ca. 160 norsk skip tækju þátt í þeim veiðum. Einkanlega segir blaðið, að þáttaka í reknetaveiðunum verði mikil og séu menn nú sem óðast að kaupa sér ný net og veiðarfæri, því margir af þeim, sem voru á reknetaveiðum við ísland í fyrra, seldu íslendingum gömlu netin sín og fá nú mj net fgrir samn verð og þeir seldu þau gömlu, og er útkoman lijá þeim skip- um mjög góð. Þarna er fjármálastjórn íslensku út- gerðarinnar rétt lýst, og er engin furða þó að þess sé getið í útlendum blöðum, en þetta er ekki neitt nýtt, heldur hefir það átt sér stað langa lengi, að við kaup- um gömul skip og veiðarfæri af iitlend- ingum þegar þeir vilja fara að losna við það, og þykir það ekki borga sig við- haldsins vegna að nota það lengur, þá finnast menn út á íslandi, sem halda sig hafa hag al' þeim kaupum, og ekki er furða þó að erfið verði hjá okkur sam- kepnin við Norðmenn á síldarmarkaðin- um, þegar við leggjuin þeim til ókeypis veiðarfæri og stundum skipin líka. Eg hei'i átt tal um þetta við íslensk- an útgerðarmann og hélt hann því fram að það kæmi í sama stað niður, því að reknetin hjá okkur væru að mestu leyti ónýt eftir eitt sumar, hvort að væri, þó að þau væru keypt ný, og er það þá það eina, sem réttlætt gæti slík viðskifti, ef að okkar sjómenn eru svo miklir sóðar með veiðarfærin, að þau entust ekki nema litið af þeim tíma, sem samskon- ar veiðarfæri endast hjá öðrum þjóðum. Eg hefi áður minst á þetta atriði í „Ægi“ að betri hirðing og meðferð á veið- arfærum, einkum netum og nótum sé nauðsynleg, ef að við eigum að keppa við þær þjóðir, sem hafa margfalda end- ingu á veiðarfærum sínum á móts við okk- ur, og nú erum við búnir að fá svo margra ára reynslu í síldveiði, að við ætt- um að vera búnir að læra að fara vel með veiðarfærin, ekki síður en að afla veiðinnar. Það væri æskilegt ef að slík viðskifti og hér um getur gætu lagst niður, sem allra fyrst, því þau geta aldrei orðið okkur til neinna blessunar. Iír. B. Sala á óverkuðum saltfiski. Margir selja fisk sinn upp úr salti, eiga eigi kost á öðru og þurfa á peningum að halda áður en komið gæti til mála, að l'iskur þeirra sje fullverkaður, en þó ættu allir, sem gætu að athuga, hvernig sú sala í raun og veru er. í þeim tilgangi eru eftirfarandi linur ritaðar. Setjum svo, að fiskimenn í veiðistöð, komi sjer saman um að selja fisk sinn í fjelagi, fullstaðinn úr salti og hann sje að vigt 500 skp.; skippund reiknað á 500 pund og verðið 65 krónur, þá er allur fiskurinn 32.500 króna virði. Setjum svo, að fyrir fullverkaðan vertíðarfisk fáist

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.