Ægir - 01.07.1927, Qupperneq 13
ÆGIR
145
andi. Eitthvað mun hafa bæst við þar af
ekta Labrador í aprílmánuði, en ekki er
mér kunnugt um hversu mikið né um
það, hve miklar muni hafa verið birgð-
irnar í mánaðarlokin.
Genova: Eins og getið er um í síðustu
skýrslu minni vorn birgðirnar þar taldar
vera kringum 1500 smál. um mánaðamót-
in mars og apríl. En í aprílmánuði bætt-
ust þar við 2 farmar frá íslandi, með
samtals ca. 475 smál. og enn fremur kom
þangað kringum mánaðamótin mars og
april farmur frá Newfoundland, með ca.
000 smál. af ekta Labrador (fyrra árs
framleiðslu) og mun sá farmur hafa
komið óseldur á markaðinn.
Verðið fór ýfið lækkandi í lírum eftir
föstuna og var fyrir helstu tegundir, sem
hér segir: fullþur smáfiskur 310 líra,
Labri 300, þveginn og pressaður fiskur
300, votfiskur 280 líra. Hélst þetta verð
að mestu út mánuðinn, nema hvað þveg-
inn og pressaður fiskur og votfiskur
lækkuðu lítið eitl í verði. En jafnhliða
þessari verðlækkun fór gengi lírans stór-
hækkandi og hið raunverulega verð hef-
u' því í verunni hækkað en ekki lækkað.
Lissabon: Um mánaðamótin mars og
apríl voru hirgðirnar þar taldar rúml.
1000 smálestir. Innflutningur var tiltölu-
Iega lítill í aprílmánuði rúmlega 600 smá-
lestir. En í apríl lok eru hirgðirnar
laldar vera að eins rúml. 300 smál. og
hefir salan eftir því numið ca. 1300 smál.
^ erðið var talið í mánaðarlokin vera
hringum 190—230 ese.
Oporto: Þar er salan talin hafa verið
tæPar 1100 smál. í aprílmánuði og mest
ai því eða kringum 1000 smál. norskur
íiskur.
(sign.) G. Egilson.
Skýrsla
um fiskmarkaðinn í maímánuði.
Barcelona 18. júní 1927.
Barcclona: Eins og getið er um í síð-
ustu skýrslu minni, voru birgðirnar um
mánaðamótin apríl—maí eftir áætlun
minni kringum 1000 smál. Þetta kemur
líka heim við framtalið til matvælanefnd-
arinnar, því samkv. því vorn birgðirnar
j)á 1091 smál.
Hingað komu á markaðinn i maímán-
uði aðeins einn farmur beint frá íslandi,
með ca 800 smál., en auk þess kom hing-
að töluvert af fiski í pökkuin, eitthvað 300
smál., umhlaðið yfir Hamborg, eða sam-
tals í mánuðinum kringum 1100 smál
í maimánaðarlok taldist mér að liirgðir
mundu vera kringum 1200 smál., en sam-
kv. framtali matvælanefndarinnar, sem
mér barst i dag, hafa þær verið 1325
smál., og salan hefir eltir því numið
kringum 875 smál. og mun það nærri
sanni.
Framan af maímánuði var verðið fyrir
besta Norðurlandsfisk uppí 70 pes. pr. 40
kg. en Vestur- og Austurlandsfiskur
kringuin 64 i>es., Faxaflóafiskur nr. 1
kringum 62, nr. 2 kringum 54 og milli-
fiskur kringum 56—58. Þegar kom fram í
miðjan mánuðinn tor verðið lækkandi og
var gangverð á Faxaflóafiski nr. 1 kring-
um 56—58, og verðið á „Libro“ fór líka
lækkandi, þó bestu tegundirnar væru þá
enn seldar á 64 pes. og jafnvel hærra.
Kringum 20. maí kom fyrsti nýi fiskur-
inn á markaðinn, en það var húsþurkað-
ur fiskur og var hann seldur á 66—68
pes., um sama leyti fór enn niður verðið
á gamla fiskinum og í maímánaðarlok var
alment gangverð á Faxaflóafiski kringum
50—54 pes. fyrir nr.. 1 og á „Libro“ uppí
58—60 og þaðan af lægra.