Ægir - 01.07.1927, Blaðsíða 15
ÆGI R
147
vegna þess að sama sem ekkert bættist
við á markaðinn, gekk þó talsvert á birgð-
irnar, sem ekki voru miklar fyrir, enda
var talið, að þær væru mjög smávægi-
legar i enda mánaðarins. Verðið hélst
því nokkurnveginn líkt mestallan mánuð-
inn, en þó frekar fallandi í Lírum. Hins-
vegar heldur gengi Lirans enn áfram að
hækka og verðfallið var ekki meira en svo,
að það jafnaðisl h.u.b. upp af gengis-
hækkuninni. Verðið á fullþurrum smáfiski
var kringum 310—300 Lira pr. 100 kg.,
300—280 L. fyrir Lahrador Style, 280—250
L. fyrir þveginn og pressaðan fisk, og litið
eitt lægra fyrir venjulegan votlisk og
kringum 250—240 fyrir egta Labrador.
Lissabon: í aprillok reiknuðust birgðir
þar kringum 340 smál., alt norskur fiskur.
í maímánuði var innflutningur talinn hafa
verið ca 1250 smál., þar af 1100 smál. af
norskum fiski og rúml. 100 smál. af
frakkneskum í'iski (Lavée). í maílok var
markaðurinn sama sem uppseldur af
fiski og neyslan í mánuðinum hefir því
numið 1000—1700 smál.
Verðið hefir farið hækkandi og var í
maílok talið vera kringum 210—240 esc.
pr. 00 kg., sem tilsvarar (ágóðalaust) ca
34— til 37/0 cif. pr. kg. og var talið
frekar útlit fyrir hækkun en lækkun á
þessu verði.
Oporto: Salan var þar góð allan maí-
mánuð og verð hækkandi. Talið er að
selst hafi af Newfoundlandsfiski kringum
875 smál., af norskum kringum 730, ísl.
kringum 200, frakkneskum ca 290 og
þýskum ca 05 smál., eða samtals kring-
nm 2100 smál. Verð inun hafa verið
þar kringum 220—200 esc. fyrir norsk-
nn fisk nr. 2 og 3.
G. Egilson.
Skýrsla
erindreka Fiskfiélagsins á Austurlandi
frá 1. jan. til 1. apríl 1927.
Fyrsti ársf jórðungur þessa árs var
fremur viðburðalítill hér á Austurlandi,
að öðru leyti en því, að þá eru menn að
gera báta og vélar vel nothæft fyrir ver-
tiðina. Yfirleitt voru menn heldur daufir
og kviðu komandi tima, enda voru margir
Iengi vel á báðum áttum um hvað gera
skyldi: hætta við útgerð og láta skip og
báta standa í nausti, eða þá að gera út til
fiskjar. Þó varð það úr að útgerðarmenn
héldu út bátum sínum og ósjálfráð sam-
tök urðu því valdandi að sjómenn voru
alment ráðnir uppá hlut í aflanum, sem
kynni að fást. Jeg hefi hugsað mér að
rannsaka og safna skýrslu um ráðnings-
kjör sjómanna yfirleitt hér eystra á þessu
ári og mun ég senda vður hana eins fljótt
og auðið verður. Vertíð hyrjaði í byrjuð-
um mars á Hornafirði og Djúpavogi og
var ágætisafli út allan þann mánuð, sér-
staklega á Hornafirði. Á Hornafirði héldu
til 23 mótorbátar og á Djúpavogi 12 mót-
orbátar dekkaðir og 15 opnir, og eru það
mun fleiri bátar en áður hafa þar verið.
Fiskverð var injög gott á Hornafirði, þvi
að þar var stórfiskur keyptur á 0.30 aura
kílóið gegn peningaborgun og 0.37 aura
gegn borgun í vörum, úr salti. Þetta má
heita mjög gott verð fyrir útgerðarmenn,
þegar tillit er tekið til þess, hve dauft er
með verð á þurl'iski. Verð á smáfiski var
0.20 aura fyrir kílóið og 24 aura hlut-
fallslega. Lifrarverð var 12 aura líterinn.
Eitt gufuskip (,,Sæfarinn“) stundaði
netaveiðar suður við Hornafjörð í mars og
fékk í þeim mánuði 130 skpd. af þorski.
Loðna gekk mikil inn í Hornafjörð
strax um miðjan mars og hélst þar lengi,