Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.07.1927, Qupperneq 16

Ægir - 01.07.1927, Qupperneq 16
148 ÆGIR veiddist til beitu svo að segja stöðugt út alla vertíðina. Eins og sést á aflaskýrslunum þá hefir komið á land meiri afli á þessu tímabili en í fyrra, sem er að þakka ágætis gæft- um síðari hluta marsmánaðar. Fleira er ekki að segja um þenna ársfjórðunginn. Virðingarfylst. Herm. Þorsteinsson. Aðalfundur ✓ Eimskipafélags Islands. Aðalfundur Eimskipafélagsins var hald- inn 25. júní siðast liðinn í Reykjavík. Fonnaður félagsins, Eggert Claessen, hankastjóri, lagði fram skýrslu um hag félagsins og framkvæmdir á síðast liðnu ári og ástand og horfur á næsta ári. Gjaldkeri lagði fram reikninga félagsins. Ýinsir erfiðleikar hafa rnætt félaginu á síðast liðnu ári. Það varð að lækka farm- gjöld og fargjöld með skipum sínum frá 1. jan. 1926. Svo var kolaverkfallið. Á meðan það stóð varð félagið að kaupa kol til skipanna í Þýskalandi og Dan- mörku o gsvo hér. Voru þau kol miklu dýrari en venjulegt er. Reksturkostnaður af Goðafossi og Gull- fossi hefir numið kr. 93.496.55, en á rekstri Lagarfoss hefir orðið tap, er nemur kr. 22.404.67. Þetta tap stafar af hinu háa verði, sem var á kolum á með- an verkfallið stóð. Reksturshagnaður- inn hefir þvi að eins verið kr. 71091.88. Er hann því tæpum kr. 374 þús. minni en síðast liðið ár. Þrátt fyrir jiað, þótt hagnaðurinn yrði ekki meiri i ár en þetta, lítur félags- stjórnin svo á, að ekkert sé að óttast um afkomu félagsins í framtíðinni. Þeir, sem ganga áttu úr félagsstjórn- inni að þessu sinni, voru allir endur- kosnir. Það voru þeir: Hallgrímur Bene- diktsson, Pétur A. Ólafsson konsúll og Halldór Kr. Þorsteinson. Endurskoðandinn, sem úr gekk, Þórð- ur Sveinsson bankaritari, var einnig end- urkosinn. Síldveiðin. Síðan farið var að veiða síld í ár, hefir veðrið verið hið ákjósanlegasta og afli ágætur. 20. júlí skýrir frétt að norðan svo frá, að landburður sé bæði vestan og norðan- lands. Aðallega fá skipin síldina inn á Húnaflóa, Skagafirði og við Skaga. 16. júlí var síldaraflinn þessi: Ísafjarðarumdæmi .......... 15.117 hl. Siglufjarðarumdæmi ........ 48.000 — Akureyrarumdæmi ........... 18.000 — Samtals 81.117 hl. Alt bræðslusíld. Gufuskipið „Hugo“. Hinn 21. maí lagði danska gufuskipið ,,Hugo“ i haf frá Grænlandi og var full- fermt af „Kryolit" frá námunum þar. Átti skipið að sigla ineð farm þennan til Danmerkur. En síðan það lét úr höfn hef- ir ekkert til þess spurst. „Islands Falk“ kom til Grænlands um það leyti, sem menn voru orðnir hræddir um skipið, og var honum gefin fyrirskipun um að leita að því. En sú leit bar ekki annan árangur en, að „Islands Falk“ fann bát frá skipinu og lík eins skipverja. Hefir skipið senni- lega rekist á ís í vondu veðri, sokkið þar bráðlega, og allir menn druknað.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.