Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1927, Page 20

Ægir - 01.07.1927, Page 20
152 ÆG I R hann vildi, að ég kæmi til sin, til þess að útskýra fyrir sér, hvaða letur stæði aftan á skipinu. Þar sem ég ekki enn var farinn að athuga neitt nákvæmlega, fór ég íneð honum og lásum við nafnið, málað gult á bláum grunni: „FELIX AF SANEFJORD. KOM TIL JESUS“. Steffensen skyldi ekkert hvað þetta ælti að inerkja og ég ekki heldur og fórum við inn í herbergi mitt og þangað kallaði ég hásetann, sem ég áður hafði spurt, og Steffensen fór að hlýða honum yfir; feng- um við þetta útskýrt þannig, að skip- stjórinn væri s’aan en (judelig Mand. Svo fór Steffensen, en ekki leið á löngu áð- ur en Hannes er kominn. Sá ég til hans, að hann gekk rakleiðis aft.ur með skip- inu og fór að lesa. Næstur kom Karl Nik- ulásson, svo fleiri og má svo heita, að þessa daga, sem við láum þarna væri ös af kunningjum að lesa nafnið og viðbæt- ir og varð ég feginn, þegar við loks kom- umst á stað laugardaginn 5. júlí. Ekki batnaði fæðið og seglin voru svo léleg, að sigla varð með mestu varkárni; skipstjóri sá um það, því herti vindinn nokkuð, var hann kominn á þilfar — og þá var að taka frá. Sunnudaginn 13. júlí, vorum við að hjagsa milli Gotlands og Ösel. Klukkan ellefu f. h. átli að Iesa húslestur, og voru allir mættir í káetu neina sá sem stýrði. Skipstjóri byrjaði sönginn og var hjáróma mjög, nógar voru sálmabækur og voru all- ir að reyna að fylgja „þeim gamla“, í söngnum. Guðspjallið var Jesús mettar 4000 manns. Lagði skipstjóri út af því og talaði blaða eða bókarlaust. Hann var að enda ræðuna er hann Ieit til mín og sagði: „Við eigum að vera guði þakk- látir fyrir alt og muna að þakka honum fyrir hverja máltíð; jafnt pönnukökur og graut sem dýrindis kræsingar — Amen“. Þetta var sneið til mín. Svo var sung- inn sálmur og guðsþjónustan var á enda. Þá hað jeg alla staldra við og spurði skipstjóra, hvort hann væri með þessum litlu matvælum, sem hann hefði keypt til ferðarinnar að æfa sig á að geta gjört sama kraftaverkið og frelsarinn. Þvi svaraði hann engu, en stundarfjórðungi síðar, hað hann mig að tala við sig í herbergi sitt. Þar vildi hann fá mig á bæn með sjer eða hlýða á, meðan liann bæði fyrir mjer, en jeg vildi livorugt. Ljet hann mig þá vita, að jeg væri á harðri ferð til hins neðsta, kvaðst segja mjer það sem vinur. í Kotka tókum við tiinburfarm til Nakskov í Danmörku. Enga geddu fengum við og fæðið var mjölmatur, flesta daga og engin ráð til annars. Einn sunnudag er við lágum í Kotka, fórum við allir á land og vorum við guðsþjónustu í samkomuhúsi sjó- luanna. Að henni lokinni, var okkur hoð- ið inn í stórt herbergi og drukkum við þar kal'l'i, þar inni var gríðarstórt harm- oníum og ljek ung stúlka á það. Prestur- inn, sem var ungur og fallegur maður, spurði okkur, hvort hann ætti ekki að syngja fyrir okkur lag og þótti okkur vænt um hoðið. Hann söng svo, að jeg hef engan heyrt syngja oins vel, hvorki fyr nje síðar og U' það sú eina fagra endurminning frá þessari ferð. Kjöt var keypt i Kotka, af skornum skamti þó, en jarðepli engin, en þau kvaðst skipstjórinn kaupa á Borgundarhólmi, en þar áttum við alls eigi að koma við. Sagðist hann vanur að kaupa grænmeti þar. Svo var haldið á stað með mjöhnatinn og seglatuskurnar og 6 döguin síðar fór- uin við fram hjá Borgundarhólmi í hvössu veðri, sem var ágæt afsökun til að kaupa ekki jarðepli. Skipstjórinn var farinn að

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.