Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.1927, Side 21

Ægir - 01.07.1927, Side 21
Æ G I R 153 fara sjálf'ur upp á rárnar þegar segl voru tekin saman til þess að líta eftir (að hann sagði), að vaiiega væri tekið á þeini. Eins og annað á skipi þessu, voru sjó- kort mestu ræflar og Austursjávarkortið ekki nein fyrirmynd; var það blettótt mjög, gamalt og að öllu óáreiðanlegt. Eftir þessu korti vorum við að slaga í Austursjónum, því vindur var genginn til. Sami mjölmatur var á hverjum degi, pönnukökur, grautur og' til að breyta matarræði, var grautur hafður á undan og pönnukökur á eftir, kryddað borðbæn og áminningum um hve þakklátir við ættum að vera fyrir kræsingar þessar. Jeg var hættur að kvarta yfir matn- um og orðinn leiður á siglingunni. Kveldið 11. ágúst ventum við við „Sta- her Huk“ á Femern og' stefndum á Hilli- krog á Lálandi. Vindur norðlægur og ó- stöðugur. Kl. 1 fór ég niður að líta í kort og sje, að við stefnum á grynningu í miðju Femernsundi (belti). Að vísu vissi jeg', að þetta var skítaklessa, en jeg hafði ástæðu til að venda skipinu, og gat ávalt borið því við, að kortið hefði hent á hættu. Ekki kom skipstjóri upp, við sigldum vestur á bóginn, svo fór að lygna og klukkan 4 um morgun sá skip- stjóri aðfarir og varð hamslaus og jeg eins, og skemtum við skipshöfninni lengi með rifrildum, en þessi sigling mín á vökunni kostaði okkur l'jóra daga, og slóð mjer á sama, þótt lengur hefði ver- ið. Ivortið gat hann ekki framlagt, þótt hann feginn vildi svo var það til skamm- ar. Laugardaskveld kl. 7, 16. ágúst, vörp- uðum við akkeri milli Taars og' Nakskov og lágum þar um nóttina. Til okkar kom þar grjótflutningsbátur (Stenfisker). Hjá honum fjekk skipstjóri 1 fötu af jarð- eplum og varð þá gleði á „Felix“ og þeg- ar settur upp pottur. Um kvöldið voru á horð borin heit jarðepli, en jeg smakkaði ekki á þeim, skipstjóra til mikillar undr- unar, en jeg kvaðst heilsu minnar vegna ekki þola svo sterka fæðu, eftir alt mjölið. Kl. 11 sunnudag 17. ágúst var skipið komið á sinn stað i Nakskov og margir komu út á það og' ekki leið á löngu, að farið var að syngja í káetu, því þangað hafði skipstjóri smalað mönnum til að hlýða á sig. Eg fór niður í herhergi mitt, skifti um föt og þvoði mér meðan „sá gainli“ var að leggja út af guðsjallinu: „Sá hinn daufi og málhalti“ (Mark. 7.) Skundaði ég' síðan upp í bæ og' keypti góða máltíð, sem var hin fyrsta síðan 26. júlí. Daginn eftir fór ég alfarinn af þessu skipi, en ekki vildi ég þó hafa misst af ferðinni, því það eykur þekkingu að kynnast aðferðum manna á ýmsum svið- um og er skipstjóri L. sá eini yfirboðari minn, sem hefur sparað mat og' alt, er fylgja her skipi og á að vera gott, látið öðrum liða illa, svo privat útgjöld yrðu sem minnst, leikið heilagan guðs þjón og haft hans orð um hönd sér til aðstoðar i spekulationinni. Hásetar sögðu: „Han er s’aan en gudelig' Mand“. Allir erum við breiskir og enginn er gallalaus en í mínum augum stendur hann sem ,,general“ þeirra hræsnara, sem á mínum vegi hafa orðið. Þess vegna minnist ég nú 25 ára afmælis okkar viðskifta og um leið Steffensens, Karls Nikulássonar og Hannesar Ó. Magn- ússonar, sem fylgdu mér upp í þennan prédikunarstól í skipsmynd.. Tvo daga var ég í Nakskov og hélt síð- an suður að Austursjó og' dvaldi á Bötte- gaard á Falstri hjá dönskum hónda, til 30. ág. í besta yfirlæti, hafði ágætt fæði, sem ekki veitti af. 1. sept. kom ég til Ivaup- mannahafnar, hitti Steffensen og aðra félaga og þá var öllum óþægindum á mín- um sumarleiðangri gleymt. 1. júlí 1927. Sveinbjörn Egilson.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.