Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1927, Blaðsíða 22

Ægir - 01.07.1927, Blaðsíða 22
154 ÆGIR Jón Zoéga kaupmaður. Hann lésL að heimili sínu, Bankastræti 14, þann 22. l'. m., eftir margra ára van- heilsu. Rúinfastur hafði hann legið í nær samfleytta 11 mánuði. Hann varð rúm- lega 43 ára að aldri, fæddur 19. ágúst 1883. Foreldrar hans voru Guðrún og Jóhannes Zoéga. Er faðir hans látinn fyr- ir nokkrum árum, en móðir hans Iifir enn. Jón heitinn var kvæntur Hönnu Sveins- dóttur Sveinssonar snikkara og lifir hún mann sinn. Jón var fjörmaður hinn mesti og vask- leikamaður, einarður og hreinskilinn, greindur vel og laus við allar kreddur og hleypidóma. Bátur strandar. Á föstudaginn 24. júní strandaði bát- urinn „Sævaldur“ úr Ólafsfirði, skamt ut- an við Ólafsfjörð, innanverðu Hvanndala- bjargi. Var hann að koma úr fiskiróðri með fullfermi. — Talsverð kvika var, þeg- ar hann fór upp, og varð að ryðja öll- um fiskinum. Öll veiðarfæri misti og bát- urinn líka. Hann brotnaði einnig allmik- ið strax. En skömmu eftir að hann fór upp lægði hrimið, og var hann þá úr mestu hættunni. „Fylla“ var stödd norð- anlands og var hún fengin til að ná hon- um, og tókst það. Fór hún með hann til Akureyrar, allmikið brotinn, en þó ekki svo, að vel er unt að gera við hann. Eigendur bátsins eru þrír: Ingvar Guðjónsson, Þorvaldur Friðfinns- son og Magnús Ingiinundarson. — Bátar í Ólafsfirði voru þá búnir að fá nokkuð á annað hundrað skpd. og er það meiri afli en nokkurntíma áður, siðan farið var að reka þar vélabátaútveg. Hræðilegt slys. Um kl. 6 e. h. 4. júlí heyrðu bæjarbú- ar sprengingu mikla utan frá ytri höfn. Heyrðist hvellurinn um allan bæinn. Fólk þusti niður að höfn til þess að fá að vita hvað uin væri að vera. Það vitnaðist brátt, að ofansjávar- sprenging hefði orðið úti við flakið af kolaskipinu „Inger Benedicte“. í fyrra var tekið talsvert af kolum úr flakinu. Undanfarnar vikur hefir verið að því unnið að sprengja það með dyna- mil. — Sprengingin gengur seint, því leggja verður dynamit að mestu ofan á það sem sprengt er. Mennirnir sem vinna að sprengingu þessari hafa haft bækistöð sina í skipinu „Nora“. Þar eru áhöld geymd og sprengi- efni til dagsins. Niu menn voru alls þarna úti, en þrír þeirra voru i „Nóru“. Sex unnu við spreng- ingarnar. Kafari kemur sprengiefni fyrir i hvert sinn. Að því loknu fer hann upp i lcafarabátinn. Taug liggur frá sprengiefni i kafarbátinn. Þegar hann er kom- inn hæfilega langt frá sprengingarstað, er kveikt í sprengiefninu, með því að hleypa rafstraumi í taugina. Oft kemur það fyrir að þessi sprengi- útbúnaður verkar ekki eins og til er ætl- ast, og það kom fyrir þarna hinn 4. júlí. Sprengingamenn, sex, með kafaranum, voru í kafarbátnum. „Nora“ var spölkorn þaðan. — Þessir voru í bátnum: Árni Lýðsson, verkstjóri, Þórður Stefánsson,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.