Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1927, Síða 23

Ægir - 01.07.1927, Síða 23
ÆGIR 155 kafari, Benedikt Sveinsson, Bjarni Ólafs- son, Guðmundur Brynjólfsson og Andrés Sveinbjörnsson. — Smábátur var aftan í kafarbátnum. Þegar sprengingin tókst ekki var sótt lít- ið eitt af dynamiti (sex patrónur) í „Noru“. Ætlaði kafarinn að fara með þenna litla skamt niður að sprengistaðn- um. Átti síðan að setja straum í þenna litla skarnt svo sprenging kæmi í það, sem fyrir var. Þetta var í sjöunda sinni, sem kafar- inn ætlaði að kafa þann dag. Andrés Sveinbjörnsson var að undirbúa það, að kafarinn færi niður í sjóinn. Hann stóð fremstur í kafarabátnum. Hann sneri sér frá þeim og var að aðgæta lcaf- arataugina. í því ríður skotið af, særir og drepur alla er í bátnum voru nema Andrés. Hann komst í litla bátinn og náði með aðstoð Guðmundar Brynjólfssonar, sem fyrstur komst upp í hann, þeim Þórði Stefánssyni, sem var mikið skadd- aður í andliti og' höndum. Benedikt Sveins- syni, sem var dáinn og allur sundurtætt- ur og Bjarna Ólafssyni, sem hélt sér á sundi, hroðalega særður. Árni Lýðsson hélt í ár og sáu þeir Andrés til hans stundarkorn, en svo sökk hann og má telja víst að hann hafi verið særður mjög. Daginn eftir um nón andaðist Bjarni Ólafsson á Landakostspítala. Þangað var Þórður einnig fluttur og líður honum eft- ir vonum, er þetta er ritað (7. júlí). Guð- mundur Brynjólfsson særðist á kinn en ekki hættulega. Slysfarir. 24. júní féll maður, að nafni Hákon Guðmundsson út af m.b. „ísleifi“ og sökk samstundis. Var báturinn á leið út að Hest- eyri í besta og bliðasta veðri. En enginn kostur var að ná manninum. Innflutningur á fiski til Spánar. Samkv. hinum nýútkomnu spönsku op- inberu verslunarskýrslum fyrir árið 1926, hefir innflutningur á saltfiski til Spánar numið 70.362.300 kg., á árinu, á móts við 70.363.000 kg. árið 1925, og 77.129.200 kg. árið 1924. — Innflutningur árið 1926 skiftist niður eftir löndum, eins og hér segir: Frá Þýskalandi .............. 78.500 kg. — Canada ............... 1.053.900 — — Danmörk .............. 7.100.100 — — Bandaríkjunum ........... 58.000 — — Frakklandi ........... 4.818.300 — — Hollandi ................ 33.600 — — Bretlandi ............ 5.714.400 — — íslandi ............. 24.197.200 — — Noregi .............. 11.940.400 — — Newfoundlandi ....... 15.367.900 — Eins og af þessu má sjá, kemur h. u. b. 34%, eða rúml. þriðjungurinn frá Is- landi, h. u. b. 17% frá Noregi, tæplega 22% frá Newfoundlandi, og kringum 27% frá öðrum löndum. Fiskifulltriiinn. Skipið »Balholm« fundið. Mönnum mun í fersku minni, að eim- skipið „Balholm“ hvarf á leið frá Akur- eyri til Reykjavíkur. Halda menn að skipið hafi farist í ofsaroki 6.—7. des. s. 1. einhversstaðar fyrir Mýrum. Tvö lík fundust næstu daga, á Hvalseyjum og Ökrum; þótti þá sannað, að lilgáta manna væri rétt. Skipið var vátryggt í sjóvátryggingarfé- laginu „Æolus“ í Noregi og er fram- kvæmdastjóri A. V. Tulinius umboðsmað- ur þess hér. Hann hefir gert ráðstafanir til að komast að því, hvar skipið væri.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.