Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.1927, Side 24

Ægir - 01.07.1927, Side 24
15fi ÆGIR Félagið „Æolus“ sendi því hingað mann að nafni Larsen, sem fór Upp á Mýrar og eftir tilvísun tnanna þar, sem höfðu orðið varir við, að eitthvað stóð upp úr sjó af skipi, ekki mjög langt frá landi, rannsakaði hann hið sokkna skip, og telur víst að þar sé „Balholm". Skipið hel'ur brotnað á skeri, sem er rétt við hlið þess og sjórinn svo fleygt því yfir það, skipið sokkið þegar og eru um 8 metra dýpi um fjöru þar sem það er nú. Skipið virðist mjög laskað og fram með skeri því, sem innan við skipið er, er ekk- ert annað að sjá en víra-flækjur og smá- hrot. Skipið er i norðnr af Þormóðsskeri og vestur af Hjörsey. Hinn 12. des. s. 1. barst sú fregn til Reykjavíkur, að lik og bjargliringur, merktur „BalhoIm“ og flak úr björgunar- bát, hefði rekið að landi á Ökrum. Af stað skipsins nú, má draga ýmsar álykt- anir um ástæður til strandsins, en allar verða þær ósannanlegar og er því ekki farið út í það hér. — Um slysið má lesa i „Ægi“ No. 12, 1920. — Skipið fanst 22. júní. Draugaskipið enn. Morguninn 7. apríl s. 1. var hér mikið talað um skip, sem sást kveldinu áður sigla um höfnina samsíða „Skúla fógeta“. Menn þóttust sjá stafina F. D. á bóg þess (Fuglefjord), en svo hvarf skipið og mynduðust af þessu ýmsar sögur, birtar í hlöðum og í samtali manna á milli og er óþarfi að rekja þær hér; var ritstjóra „Ægis“ bent á, að vel ætti það við, að saga þessi van-i hirt i timaritinu, svo hún geymdist þar, en það fórst fyrir. Eins og oft vill Verða er líkar sögur eru sagðar, urðu aðstandendur fiski- manna á Færeyjum órólegir, einkum á Fuglafirði, og hélst sá órói þar til öll skipin voru heim komin heilu og höldnu. Hér er viðbót: Kútter „Buttercup“, lá miðvikudaginn 6. apríl s. I. við hafnarvirki í Reykjavík og kl. 5 e. h. s. d. hélt skipið á stað til veiða; knúði mótorinn það út höl'nina á leið til hafs. Þegar það var komið út að Gróttu, tóku skipsmenn eftir, að gleymst hafði í landi, eitthvað, sem þeir gátu ekki án verið og sneru þeir þá við. Þeir urðu samferða togara, og skýrir einn af skip- verjum svo frá, að hvort sem það hafi verið af því, að togarinn fór ekki fulla ferð, eða, að vél kúttersins knúði hann óvanalega vel, þá hafi þeir siglt hér um hil samhliða. Á leiðinni milli eyja höfðu þeir að eins uppi mezanseglið, en er innar á höfnina kom, drógu þeir upp stórseglið; um sama leyti fóru menn i skipsbátinn og reru í land eftir því, sem gleymst hafði en skipið hélt áfram inn fyrir hafnaropið og' heið þar eftir bátn- um í 10—15 mínútur og hélt síðan rak- leiðis út á fiskiinið. Þetta ferðalag „Buttercups“ Iikist mjög ferðalagi draugaskipsins fræga. Dagur og klukkustund er eins hjá sögumönnum, ferðalag inn á liöfnina verður líkt hjá háðum skipunum, að því undanteknu að draugaskipið sást aldrei fara út aftur. Umdæmisbókstafir dularfulla skipsins voru eftir sögn F. D. en á kútter „Butt- ercup“ eru þeir T. N. (= Thorshavn, eig. Evensen). Þar sem nú öllu öðru ber saman í báðum frásögnum, er ekki ó- líklegt, að sagan um draugaskipið sé til-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.