Ægir - 01.07.1930, Síða 4
150
ÆGIR
aflann á land í Reykjavík. Afli svipaður
og í fyrra: 7548 skpd. (1929: 7221).
Garður og Leira: Þar var mjög lítil út-
gerð, aðeins 4 opnir vélbátar, en 12 i
fyrra. Afli 150 skpd. (1929: 469). Við
Gerðavör var unnið að liyggingu skjól-
garðs i fvrra og er verkinu haldið áfram
í sumar.
Keflavík og Njarðvíkur: 24 vélbátar
gengu úr Keflavík og Njarðvíkum i vetur,
sem voru þar heiinilisfastir og 8 bátar frá
Vestmannaeyjum, sem héldu lil i Njarð-
vik nokkurn hluta vertíðar. - 1 vélbátur
])ættist við i apríl, kom þá nýsmíðaður
frá Noregi. — Eftir lokin veiddu nokkrir
Kéflavíkurbátar í Sænska fryslinúsið og
öfluðu ágætlega. Afli varð 9568 skpd.
(1929: 10543).
Vatnsleysuströnd og Vogar: Þaðan
gengu nú 12 opnir vélbátar, en 16 í fyrra.
Afli tiltölulega betri: 464 skpd. (1929:
439).
Hafnarfjörður: Þar varð sú brevting á
útgerðinni að Hellver Bros í Hull hætlu
þar alveg útgerð. Einn nýr togari, „Ven-
us“, bættist við togaraflota Hafnarfjarðar
skömmu fyrir áramótin, svo þeir urðu 7
togararnir, sem þaðan gengu á vertíðinni.
10 línugufuskip gengu þaðan allan tim-
ann, 8 heimilisföst og „Sæfarinn“ frá
Eskifirði og „Pétursev" frá Reykjavík.
Línuveiðarinn „Namdal“ var scldur frá
Reykjavík til Hafnarfjarðar fyrir ára-
mót. Nokkur önnur skip lögðu einnig
afla á land i Hafnarfirði, að nokkru eða
öllu leyti. Afli á togara ágætur, 29.492
skpd. til júníloka á 7 skip, en 27.512 á 12
skip í fyrra. Línugufuskipin öfluðu vfir-
leitt vel eftir að veðrátta tók að batna
seint í felirúar og var afli þeirra mun
mun meiri en í fyrra, 19.218 skpd. (1929:
15.861). 1756 skpd. voru keypt af erlend-
um skipum, en 2754 skpd. í fyrra, og er
sá fiskur talinn með afla línuskipanna.
Reykjavík: Engin breyting varð á tog-
araflotanum frá i fyrra. 11 línugufuskip,
sem voru heimilisföst í Reykjavík gengu
til fiskjar i vetur, en 7 í fyrra. Allmörg að-
komuskip lögðu afla hér á land, eins og
vant er. Afli lóðaskipanna var vfirleitt
góður, þó mun afkoma þcirra, einkum
gufuskipanna vera mjög erfið, hjá sum-
um liefir orðið tap á útgerðinni á vertíð-
inni. Beitu- og veiðarfærakostnaðurinn
er svo óhemju mikill, að gey])iafla þarf
til þess að skila hagnaði, þegar fisk- og
lýsisverð er jafnlágt og í vetur. Afli línu-
skipanna 40767 skpd. (1929: 48454): Mik-
ið minna var keypt af erlendum fiski nú
en í fyrra, 13.544 skpd. (1929: 20.780).
Qpnir vélbátar úr Reykjavik öfluðu á-
gætlega um tíma i vor, en er togurum
fjölgaði í flóanum dróg skjótt úr veiði
þeirra. A togarana mátti heita að væri
uppgripaafli frá marzbyrjun til aprílloka
á Selvogsbanka. Einstöku togarar fengu
þar jafnvel góðan afla til 9. maí Við
Austurland var reitings afli framan af
mai, en tregðaðisí fljótt, fóru togararnir
þá vestur á Hornbanka og Húnaflóa og
var þar reitingsafli frameftir júní, en
flestir togararnir hættu veiðuni fyrri
hluta júm. Afli togaranna til júniloka:
114,180 skpd. (1929: 77.170). Nokkrir
togaranna veiddu i Faxaflóa nokkra daga
eftir að þeir hættu saltfisksvciðum og
lögðu aflann i Sænska frvstihúsið.
Akranes: 2 nýir vélbátar yfir 20 smá-
lestir bvor voru smíðaðir á Akranesi s.l-
sumar og 1 erlendis, en 2 innlendir bátar
voru keyptir þangað. Gengu þaðan nú 18
vélbátar, en 13 í fvrra, og 2 línugufuskip,
en 1 í fyrra. 1 vélbátur strandaði á vcr-
tíðinni. Afli tiltölulega minni en í fvrra:
9450 skpd. (1929: 9017). I vor hófu Akur-
nesingar undirbúning undir hafnargerð
við Krossvík og hafa síðan unnið að ])Vi
verki af mikhun dugnaði. Lögin um