Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1930, Blaðsíða 9

Ægir - 01.07.1930, Blaðsíða 9
ÆGIR 155 ekki fyr en í júlí, svo teljandi sé. — Ekki eru Skagstrcndingar né aðrir, sem til þekkja, í neinum efa um það, að hafnar- gerð þar muni gerbreyta og stórnm anka atvinnulífið. Bæði fisk- og síldarútgerð niundi verða rekin þaðan, sennilega í stórum stil, og jafnframt vaxa jarðrækt > grendinni, því nóg er víðáttan af góðu landi. Það liefur líka sýnt sig, að með auk- inni sjávarútgerð vex túnræktin í þorpun- um, og má þar benda á t. d. Húsavík, þar seín allur úrgangur er notaður til áburðar, og Dalvik og Hrísey, þar sem túnræktinni Heygir fram jafnliliða því, að útvegurinn eflist, og fleiri slík dæmi eru til, þó þessi liggi mér næst. A Kálfshamarsvík eiga lieima 7 opnir vélbátar. Eru 4 menn á bverjum til róðra. Þar voru 2 aðkomubátar í fvrra, og bjugg- ust menn við, að eitthvað yrði þar aðkom- andi i ár, en óvíst hve margir. Ekkert liöfðu þeir fiskað um þessar mundir og engin aflaskýrsla er ennþá komin frá þeim. Þar varð aflinn um 100 skpd. á bát i fyrra. Fremur bygg ég að sé dauft vfir ilestu þar, enda er þetta á úlkjálka, og þar hefir til skamms tíma verið mikil fá- tækt og fátt um leiðandi atorkumenn, sem gæfu bveljandi fordæmi. Samt liefur nokkur breyting orðið á ástandinu til liatnaðar, siðan að bvgðarlagið komst i símasamband, eins og ávált er um af- skekktar sveitir. A Sauðárkróki og við Skagafjörð ^estanverðan eiga heima 2 vélbátar með þilfari og 11 opnir bátar. Róa 4 menn á þill'arsbátunum og 3 á liverjum opnu bát- anna. Mjög misjafnt er bve lengi þessir kátar stunda veiðar, sumir aðeins fram að slætti, aðrir allt sumarið og enn aðrir i i- gi'ipum eflir því sem beita og aðrar kring- Umstæður eru til. Mikið af fiski, sem á land kemur, fer í sveitirnar, sérstaklega framan af sumri. Svo var það um afla- hlaup, sem kom á Skagaf jörð i apríl s. 1., og svo var það einnig seinni part maí, ]ægar ég var þar á ferð, að allt seldist upp bæði í kauptúnið og sveitirnar og fengu þó opnu vélbátarnir, sem komnir voru á flot, ágætan afla, á bandfæri aðeins, því beitulaust var með öllu á Skagafirði eins og Húnaflóa. Það, sem hér liefir verið sagt um Sauðárkrók og grend, gildii aðeins um ströndina austan fjarðarins, þ. e. Hofsós með Höfðaströnd og Sléttuhlíð, en á þessu svæði teljast 1 vélbátur með þilfari og 11 opnir vélbátar, með 2 til 3 mönnum bver, þegar þeir á annað l^orð ganga til fiskjar. Á Haganesvík er engin útgerð í sumar, að minnsta kosti ekki enn þá, bálarnir það- an Iialda til á Siglufirði vegna beituað- drátta o. fl. Naumast getur beitið, að nokkuð sé róið á árabátum, síðan vélar fóru að tíðkast i smábátana, nema ef menn skjótast stund og stund með bandfæri til þess að afla matfiskjar til bcimilisþarfa, að sumrinu til. Þetta gildir jafnt um Húnaflóa og Skagafjörð og að miklu levti einnig' uni veiðistöðvarnar við Eyjafjörð. Hér eru líka betri tæki til að landsetja bátana eftir bvern róður þegar slæmt er veðurútlit, og bátarnir að jafnaði minni en vestur undan. Hér í nágrenninu, veiðistöðvunum ey- firsku, á Siglufirði og jafnvel á Húsavík, var bæði að fiskigengd kom óvanalega snemma og að bún var afskaplega kraft- mikil, enda eru margir bátar nú búnir að fá jafnmikinn afla og oft áður yfir allt sumarið. Þannig eru sumir Siglufjarðar- bátarnir komnir iiátt á 5. lnmdrað skpd., Hríseyjar og Grenivíkurbátar og Dalvíkur liafa frá bálfu 3ja og upp yfir 3 bundruð skpd., og Ólafsfjarðarbátar frá 3—400 skpd., en auðvitað eru inn á milli bátar með lægri afla, þótt þcir séu mikið færri. Á Húsavík kom aflinn nokkuð seinna,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.