Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1932, Síða 3

Ægir - 01.06.1932, Síða 3
ÆGIR MÁNAÐARIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 25. árg. Reykjavík. — Júní 1932. Skýrsla frá fiskifulltrúanum á Spáni. Barcelona 18. naal 1932. Síðustu skýrslu minni lauk í Vigo, en þaðan fór ég til Portúgal. Þar hefur ís- lenzkur fiskur rutt sér rnjög til rúms á síðustu árum. Árið 1927 er talið í ís- lenzkum útflutningsskýrslum að 389 smá- lestir af fiski hafi verið fluttar til Portú- gal. Árið 1931 mun útflutningurinn hafa verið um 12.500 smálestir og fyrstu fjóra mánuði þessa árs (til 21. april) mun innflutningurinn hafa numið um 6.000 smálestir. Stærsti fiskmarkaður í heimi er í O- porto. Pykir mér rétt að sýna hvernig innflutningur á íslenzkum fiski hefur aukíst þar á síðustu árum í samanburði við annan fisk. Hefur markaðurinn skifst milli þessara landa: 1928 1929 1930 1931 1932 Newfl. og Can. 15.500 11.630 7.250 8.304 1.200 Noregs........ 4.150 8.021 7.660 4.385 3.755 ísland og Fær. 3.800 4.304 5.250 8.761 3.485 Frakklands . . . 3.390 817 720 1 245 72 Ýmsra......... 1.400 1.898 2.030 2.250 187 28.240 26.670 22.910 24.945 8.699 Islenzkur og færeyskur fiskur er hér talinn í einu lagi, en innflutningurinn frá Færeyjum mun hafa numið tæpum 1-000 smálestum á ári. í fyrra var inn- flutningurinn af íslenzkum fiski 7.817 sml, og seldi h. f. Alliance nákvæmlega Nr. 6. helminginn af þvf fiskmagni, en hinn hinn helmingurinn skiftist milli Hawes (17°/«), G. Albertssonar (13°/'o), Karl Þor- steins (12%) og h. f. Kveldúlfs (8°/o). Um innflutninginn á þessu ári er það að segja, að meginið af norska fiskinum er fluttur inn óverkaður, en 700 smál. af þeim íslenzka. Eru 8 fiskverkunar- stöðvar í Portúgal norðanverðum, 5 í Oporto, 2 í Viano de Castelo og 1 í Vila do Conde. Eru þær ætlaðar fyrir fisk þann er Portúgalsmenn veiða sjálfir við Newfoundland, en nú hafa veiðar þeirra þar brugðist ár eftir ár. Hafa þeir um 40 skip sem öll eru seglskip við þessar veiðar, en aflinn er lítill. Var hann 80— 90 smál. hjá hverju þeirra vegið upp úr skipi. Var aflinn þá ekki verkaður fyr en síðastliðið vor og seldist fyrir afar- lágt verð. Samt var meginið afflotanum gert út á ný í ár, en ætlunin var sú að skipin skildu halda áfram til Grænlands, ef afli ekki reyndist þvi meiri við New- foundland. Vegna þess hvernig fiskiveiðarnar hafa gengið, hafa verkunarstöðvarnar orðið að kaupa að fisk til verkunar, enda er verkun þar afar ódýr, bæði vegna veðr- áttunnar og hve ódýr vinnan er þar. Bar eigendum tveggja slíkra stöðvasam- an um það að verkunarkostnaðurinn mundi vera um 10 escudos, eða 2 ísl. krónur fyrir hver 60 kg. Er fiskurinn kemur er hann þveginn og stakkaður, fær síðan eins dags þurk og er þá sett- ur í smástakka yfir nóltina og fær þurk

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.