Ægir - 01.06.1932, Side 5
ÆGIR
139
1928 1929 1930 1931 1932
Norskur . . 12.769 12 520 13.740 10.188 2.230
íslenzkur . 1.065 1.573 2.040 4.762 2.656
Franskur . 1.650 646 400 185 17
Ýms .... 498 276 170 704 63
15.982 15.015 16.350 15.839 4.966
Eins og sézt á þessum tölum, er versti
keppinautur okkar á markaðinum í Lissa-
bon, ekki fiskurinn frá Newfoundlandi
heldur sá frá Noregi. Kæra menn sig
þar ekki um labra, en vilja góða hvíta
verkun og vel þurkaðan fisk, heldur
harðari en fullverkaðan fyrir Spán. Verð-
ur hann að vera alflattur, og vilja menn
þar ekki sjá útúrflattan fisk. Er töluverð-
ur markaður þar fyrir smáfisk 70—80
fiskar i 60 kg. pakka, en lítið kæra menn
s>g um mjög stóran þorsk. Voru menn
ánægðir með það sem þeir höfðu fengið
frá Islandi nú nýverið, en töldu þó, að
fiskurinn hefði mátt vera töluvert harð-
ari.
Er ég var i Lissabon í apríllok, var
verð á norskum fiski 195—225 esc. pr.
kg. pakka, en á islenzkum 195—205
esc. Seldu Norðmenn pakkann af fiski
af venjulegri stærð (corriente) fyrir 30
sh. 6d, en heimtuðu 32.6 fyrir stærðina
35—42 pr. 60 kg., en 34.6 fyrir 30—40.
Er miðað við sólþurkaðan fyrri árs fisk,
en þessa árs fiskur er 1 sh. 6d. dýrari.
Ei' hér átt við cif verð Lissabon. Gegn
90 daga víxli í London er gefinn 4% af-
sláttur, en 5l/*°/° fyrir greiðslu gegn farm-
skýrteini. Síðan fá þeir sem kaupa mikið,
en þá er átt við viss firmu, eða þá sem
kaupa 1000 pakka í einu 1/2°/o afslátt og
helming af þóknun umboðsmannsins,
sem nemur 1 Va°/o til samans, en í ofan-
alag gefa skipafélögin afslátt sem gerður
er upp um áramót. Nemur hann 1V> d.
a pakka til þeirra sem keypt hafa 3000
pakka yfir árið, en 51/3 pence til þeirra,
sem keypt hafa 10000 pakka yfir árið.
Verðskráning á norskum og íslenzkum
fiski er því ekki sambærileg í Lissabon.
Fyrir þá sem njóta beztu kjara, kostar
corriente, ekki 30.6 sh., heldur 27.9 sh.,
eða 27 sh. 11 d. 1 Oporto kemur ekki
annar afsláttur til greina, en 4—51/>°/°
gegn greiðslu gegn farmskírteinum. Þó
við verðum að sjálfsögðu að gera eítt-
hvað fyrir því að okkar fiskur er minna
þekktur, en sá norski, virðist hann hafa
verið boðinn óhæfilega langt niður þeg-
ar hann var seldur fyrir svipað verð og
norskur úrgangsfiskur eða 20 sh. pakk-
ann, eða minna, þegar norskur fiskur
var seldur fyrir 28 sh. Er ekki einu sinni
hægt að hugga sig með því, að þetta lága
verð hafi komið neytendunum til góða,
og því aukið neyzluna, því heildsalarnir
munu alltaf hafa selt islenzkanog norskan
fisk fyrir alveg sama verð, eða mjög
svipað, til smásalanna. Virðist og sem
smásalarnir bjóði íslenzkan og norskan
fisk fyrir sama verð, án þess að almenn-
ingur geri sér grein fyrir hvaðan fiskur-
inn er.
Tölur þær um innflutninginn, sem að
ofan eru nefndar, hyggégséu mjög nærri
lagi. Reyndi ég að fá þær sem réttastar,
með því að spyrja fleiri en einn, og fekk
mjög svipuð svör um innflutninginn 1
fyrra og á líðandi ári. í*egar þessergætt
að neytendur Newfoundlands fisksins,
eru menn sem ekki vilja annan fisk, hve
miklu ódýrari sem hann kann að vera,
sést að það eru aðallega Norðmenn og
íslendingar, sem keppa á Portúgalsmark-
aðinum. Nú er það svo, að Norðmenn
hafa allfastan félagsskap með sér um að
bjóða fiskinn ekki niður hver fyrir öðr-
um, og þó einstöku menn kunni að svikja,
fara þeir ekkert ámóta langt niðurí verði
og við höfum farið. Sýnist mér því að
vel væri athugandi íyrir þá fáu sem selja
fisk til Portúgal að setja eitthvert lág-