Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1932, Page 7

Ægir - 01.06.1932, Page 7
ÆGIR 141 aður og fletlist vöðvinn í sundur. Borða menn fisk þennan hráan og eins og hann kemur úr pakkhúsinu. Minnir hann þá mjög á reykta ýsu, bæði að útliti, því hann er gulbrúnn á litinn, en fiskurinn er gulgrænn, og eins á mýkt og bragð. Er hann mikið bragðmeiri en íslenzkur fiskur, sem þykir yfirleitt heldur bragð- lítill, og í þessum bæjum þykir það galli á fullverkaða fiskinum frá lslandi, að hann sé svo mikið pressaður, að vöðvinn missir sitt lag, og leysist upp í trefjar. Má segja sama um egta labrann og um shore-fiskinn, að sumir vilja hann heldur, en þann islenzka, vegna þess, að hann er bragðmeiri og þykkari, aðal- tega í Alicante og Valencia. Annarstaðar vilja flestir heldur islenzka labrann og kaupa hann, ef hann er að eins lítið eitt dýrai i en sá egta, en ef verðmunurinn verður meiri en 4—6 pes., kaupa menn heldur egta labrann. Er hann aðallega horðaður að vetrinum, frá miðjum októ- ber til miðs apríl, en þá er hann venju- t^ga seldur upp, því kaupmenn eru ragir við að geyma hann fram á sumar, af ótta við skemmdir. Er islenzkur fiskur því aðallega seldur að sumrinu til. Vegna hitans þarf að geyma fiskinn í kælihúsum og hafa ekki nema fáir bol- magn til að reka þau. Eru innflyténdur þvi fáir á þessu svæði, tveir í hverjum hæ. Selja þeir síðan til heildsalanna, er selja svo til smásalanna. Er fiskurinn tekinu úr kælinum að kvöldi til og send- Ur inn í landið í bifreiðum, sem koma honum til móttakendanna að nóttu til. Er kuldinn ekki farinn úr fiskinum, þegar hann er kominn í kjallarana til smásalanna upp um alla Andalúsíu. — ^egar svona er farið með fiskinn er hægt að halda honum óskemmdum, þó hann Se ekki mikið verkaður, og vilja menn þvi fá léttverkaðan fisk að vetrinum til, og er þá óskað eftir 7/s eða jafnvel *U verkun, en þar sem megnið af innflutn- ingnum er að sumri til, þarf sá fiskur að vera fullverkaður. 1 Sevilla vilja menn sem allra þykk- astan fisk og stærstan. Er þar og i Ma- drid töluverður markaður fyrir mjög stóran þorsk, 15—20 í pakka og er greitt hærra verð fyrir hann en vanalegan fisk. f*arf fiskurinn, sem þangað er sendur, að vera vel harður og hvílur. Vill Sevilla hafa sinn fisk himnudreginn og eru jafn- vel Newfoundlandsmenn farnir að senda egta labrann himnudreginn handa Sevilla sjálfri og ýmsum bæjum, sem kaupa sinn fisk þaðan, svo sem Granada. Helzt vilja innflyténdur, að flokkað sé eftir stærð, svo að þeir geti sparað sér ómak og geti sent fiskinn í uppruna umbúð- unum út úr bænum, því þeir vilja halda eftir stærri. fiskinum handa sér. Ómögu- lega má senda hingað útúr-flattann fisk. Sagði stærsti innflytjandinn mér, að hann hafi fengið mikið af útúr-flöttum labra frá íslandi og sé í vandræðum með hann, þvi hann geti ekki selt hann í Sevilla. Er ég var í Sevilla hafði komið þang- að töluvert af pressufiski, nokkrum dög- um áður, með s. s. Agga. Líkaði mót- takendum frágangurinn á honum vel, en kvörtuðu undan, að fiskurinn væri ekki nóg pressaður. Hefði hann því lézt mik- ið á leiðinni, og rýrnaði enn i húsum þeirra, enda lak vatnið undan stöflunum, eftir að fiskurinn var kominn í hús. Voru menn því óánægðari með þetta, sem skömmu áður hafði komið pressufiskur, frá Grænlandi, sem hélt fulla vigt, er hann kom til Spánar. Sögðu þeir einnig að þelta væri vegna þess að sumt af fiskinum væri ekki nóg pressað, því hér um bil */* af pökkunum héldu fullri vigt, en þegar rýrnunin var reiknuð á heild- arþunganum, reyndist hún vera 5°/».

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.