Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.1932, Qupperneq 10

Ægir - 01.06.1932, Qupperneq 10
144 ÆGIR og munu góð skip, hvað lagi þeirra við- víkur, lála fljótt að stýri og stöðva má þá skjótlega þótt á fullriferð séu. Alteruþetta miklir kostir við veiðar, og þegar við bætist, að kolaeyðsla er fremur lítil og skipin eru vistleg fyrir þá er þar vinna, er ekki að undra þótt fiskimönnum langi til að eignast slík skip. Kaup á skipum, sem brúkuð hafa ver- ið lengi, er ávalt vandaverk og til þeirra erinda eru þeir aðeins færir, sem þekkja skip út og inn og vita bvar skemdir og gallar geta helzt leynst. Þar þýðir ekkert að fara eftir lofsöng þeim, sem seljandi syngur sínu skipi, ekki heldur eftir sögum um hvernig skipið hafi afborið þetta eða hitt stór- viðrið, sem hann telur meðmæli, en er að réttu Iagi bending um slit og áreynslu. Seljandi getur varla sagt skipið yngra en það er, því aldur má finna í skipaskrá- og byggingabréfi, en þegar skip fara að verða 20—30 ára gömul, hafa þau séð sitt fegursta, og hvernig er ketill og vél? f*að er lítill ávinningur að kaupa skip í útlöndum þótt ódýrt þyki og verða að kosta til þess er heim er komið, skips- verðinu, í aðgerðir og klastur á þeim lilutum, sem ekki koma í ljós er keypt var. Eins og gabba má mann, sem ekk- ert vit hefur á hestum, í hestakaupum, eins má leika á þann og engu síður, sem lítið þekkir til skipasmíða í skipa- kaupum — og aðferðin er auðveld. Fyr- ir 2—300 kr, má mála og snyrta línubát svo, að hann líkist skemtiskipi og ýmis- lega má hylja galla og leiða augu og hug manna, sem ekki eru þvi kunnugri skipum, frá þvi, sem felt gæti verð hins framboðna skips, lægju þeir beint fyrir. Hvernig hefur viðhald línubáts í Nor- egi verið í 20—30 ár og hvernig er með ryðið og afleigingar þess? Sá, sem lætur smiða vandað skip, sem tekið er í fyrsta flokk og hvergi sparað, mun lilla gleði hafa af skipi sínu, sé þvi ekki haldið við og þeir, sem með skipið fara, hafi vit á hvernig á að halda því við. Viðhald er engu síður nauðsynlegt en vandað smiði og úrvals efni. Eigi vanhirða sér stað, munu jafn- vel sterkustu og vönduðustu skip þurfa viðgerða, sem kosta mikið fé. Eigendur skipa og skipstjórar, verða að hafa vakandi augu fyrir þessu, því reynslan hefur sýnt, að sum, að heila má ný stálskip, hafa þurft kostnaðarmiklar viðgerðir, en önnur skip siglt ár eftir ár og verið jafngóð eftir. Stríðið við ryð, byrjar meðan stál- og járnskip er á stokkunum í smíðum og lieldur áfram, meðan þau ftjóta. Stál ryðgar frekar en járn — og af þvi mun stafa, að meira er talað um þann erkifjanda, síðan farið var al- ment að smíða stálskip. Auk ryðs þess, sem dreifir sér yfir flöt járnsins, sem smátt og smátt þynnir það á miklu svæði, er önnur tegund ryðs, sem étur sig inn í járnið á köflum og myndar djúp, mjó göt í járnið. Er það hin svo nefnda »tæring« í járni (Grav- rust á dönsku, pitting á ensku). Virðist tæringin koma úr járninu að innan, en ekki utan frá (ryðpollar). Þegar járnplötur koma frá verk- smiðjunum (Valseværk) eru þær ekki hreinar og á þeim er húð (Glödeskal) sem smásaman dettur af, en er víðast, þar sem aðgæzla við smiði er höfð, leyst upp með saltsýrublöndu, áður en olía eða málning kemur á járnið, enda mun flestum, er með skip fara vel kunn- ugt, að það er verra en ekki neitt að bera á staði, þar sem sú húð er, því hún dettur af og járnið verður bert und- ir. Áður en skip er málað, verður að

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.