Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1932, Page 17

Ægir - 01.06.1932, Page 17
ÆGIR 151 Sjómannalíf í Hafnahreppi síðastliðin 60 ár. Eftir Ól. Ketilsson. Niöurl. Allt fram til síðustu aldamóta, þá var lokadagurinn að mörgu leyti viðburða- rikur merkisdagur fyrir Hafnahrepp. ötstreymið úr hreppnum var eins og útfrymis-straumur frá ágætum miðli á andatrúarfundi! — Hreppurinn gertæmd- ist þann dag af hinum góðu kröftum sínum, eins og hinn góði miðill, sem ekki verður nema skröltandi beinin í skinninu. — sálarlaust flak á meðan hann liggur á miðilsbekknum — — ger-tæmdur og útsoginn, fyrir særingar sinna meðbræðra, af organiskum — (lífrænum) anda- frumlum, sem að sýna sig i ýmiskonar ægilegum myndum fyrir andatrúar- áhorfendum! En ekki er mér kunnugt urn það, hvort þessir andatrúar-formenn Kella romm-toddý í andana um leið og þeir kveðjast með kossum og faðmlög- nni! En það gerðu gömlu formennirnir i Hafnahreppi, þeir heltu romm-toddýinu hiklaust í háseta sína á lokadagsmorg- uninn, og skal nú nánara vikið að því. Kl. 6 á lokadagsmorguninn voru bæði karlar og konur kominn á kreik. Sjó- niennirnir farnir að tína saman plögg sín og troða þeim í poka sína. Þjónustu- nieyjarnar með troðnar svunturnar af sokkum og leppum, sem þær úthlutuðu eftir minni og merkjum, eldhússtúlkurnar nieð rjúkandi katlana af romm-toddý- yatninu, húsmóðurin að höggva niður toppasykurinn, en húsbóndinn að tappa af tunnunni. Kl. 7 voru svo romm-toddý- skálarnar (stórar tarínur) bornar fram °g byrjað að drekka. Gengu sumir sjó- roannanna all-rösklega fram við drykkj- Una, og lögðu marga bolla að velii, aðrir drukku minna, en allir urðu samt kenndir, en mjög mismunandi, eftir því, sem í sig var látið. KI. 8 söfnuðust svo allir á heimilinu fyrir utan bæjarhús-dyrnar, karlarnir með klökkum hug, en konur með kökk i hálsi! Svo byrjuðu kveðjurnar og koss- arnir með viðkvæmum þakklætis-orðum fyrir allt gott bæði fyrr og síðar. Yoru hinar smávöxnu þjónustu-meyjar, sem skríðandi flugur á húsþaki, í faðmlögum hinna sæt-fullu jötna! En svo komust dúk-svunturnar á fleygiferð, frá pilsfeldi að augnakrókum, laugaðar sorgar- og saknaðartárum. Endir. Ekki er allt sem sýnist. Peir sem kost eiga á að sjá allan þann afla, sem lagður er á land, t. d. í Hull og Grímsby, hljóta að hafa þá hugmynd að útgerðin eigi að eins beri sig, heldur sé hér um stórgróða að ræða. Sem stend- ur er þessu ekki að fagna. Afli skipanna hefur verið afarmikill og þar sem eftir- spurn hefur verið miklu minni en fisk- ur sá, sem togarar hafa komið með, hefur verð á honnm fallið mjög. Ritstjóri enska fiskiritsins »Fishing Ne\vs«, átti nýlega kost á að skoða reikn- inga ýmsra togarafélaga yfir hinar síð- ustu veiðiferðir þeirra og farast honum þannig orð, meðal annars, er hann lét í ljósi, í samtali við mann um afkomu út- gerðarinnar: »Það getur enginn, sem ekki sér reikn- inga togarafélaganna gert sér hugmynd um, hve léleg afkoma þeirra er, þegar litið er til hins mikla afla, sem skipin færa að landi. Eins og mörgum er kunnugt, hafa

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.