Ægir - 01.06.1932, Qupperneq 21
ÆGIR
155
Þingsályktanir
а. Afgreiddar til ríkisstjórnarinnar:
1. Þál. um breyting á erfðalögunum.
2. Þál. um Hinn almenna mentaskóla
í Reykjavík.
3. Þál. um ákvörðun á tölu starfs-
manna við starfrækslugreinir og stofn-
anir rikisins.
4. Þál. um fækkun prestsembætta..
5. Þál. um strandferðir.
б. Þál. um skipun milliþinganefndar,
til þess að ihuga og koma fram með lil-
lögur um mál iðju og iðnaðar.
7. Þál. um leigu á landi Garðakirkju á
Álftanesi.
3. Þál. um greiðslu fyrir Ijóslækning-
ar slyrkhæfra berklasjúklinga.
9. Þál. um verzlunarsamninga við
Noreg.
b. Nefndaskipun :
Till. til þál. um skipun nefndar til að
gera tillögur um niðurfærslu á útgjöld-
um rikisins.
Síldveiöarnar í sumar.
Samkv. 6. gr. laga nr. 26 1925, eryflr-
sildarmatsmönnum gert að skyldu að
senda Fiskifélaginu vikulega skýrslu um
saltaða, kryddaða og sérverkaða síld.
Meðan Síldaréinkasalan starfaði, önnuð-
ust trúnaðarmenn hennar þessa skýrslu-
gerð. Nú er fyrirsjáanlegt, að ekkert op-
mbert sildarmat verður framkvæmt í
sumar, en skýrslnagerð þessiersvo mik-
dsverð fyrir framleiðendur og þá, sem
fást við sölu á sild, að hún má með
engu móti falla niður.
Fiskifélagið snéri sér því til Stjórnar-
•'áðsins með fyrirspurn um álit þess og
skilning á umræddum lögum og hefur
Stjórnarráðið með bréfi, dags. 24. júní
þ. á. úrskurðað að það líti svo á, að
umráðamenn söltunarstöðva séu skyldir
að gefa Fiskifélaginu skýrslu yfir þá síld
sem verkuð er á stöðvum þeirra.
Fiskifélagið mun því eins og að und-
anförnu hafa þessa skýrslusöfnun með
höndum, og verður erindrekum þess og
þeim mönnum er safna aflaskýrslum
fyrir félagið úti um landið, falið að taka
á móti skýrslum þessum frá verkunar-
stöðvunum. Yerða síðan skýrslur þessar
þegar búið er að leggja þær saman, sím-
aðar til erindreka Fiskifélagsins, svo fram-
leiðendur geti fylgst með á hverjum tíma,
hve framleiðslan er orðin mikil, og þvi
hagað rekstri sínum í samræmi við það.
Sömuleiðis mun Fiskifélagið eins og
að undanförnu, skiptast á skýrslum við
fiskimálastjórnina norsku, um veiði Norð-
manna hér við land, en það hefur verið
falið norska eftirlitsskipinu undanfarandi
að safna þessum skýrslum saman.
Ennfremur mun Fiskifélagið eftir föng-
um leitast við að safna upplýsingum um
þátttöku og veiði skipa annara þjóða hér
við land, meðan á sildveiðunum stend-
ur, og sömuleiðis eftir að þeim er lokið
og skipin komin heim.
Fiskifélagið leyfir sér því hér með að
fara þess á leit við forráðamenn allra
sildarstöðva, að þeir láti ekki dragast að
senda þessar skýrslur — sem í sumar
verða líklega teknar saman á laugardög-
um til hægðarauka, og þá miðað við þá
veiði sem komin var í salt fyrir kl, 24
á föstudagskvöld.
Kr. B.
Samband sænskra síldarksupmanna
hefur nýlega sent mörgum af stærri fram-
leiðendum hér, bréf, þar sem þeir til-
kynna að þeir muni enga síld kaupa í
ár hvorki frá íslenzkum né norskum