Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1932, Síða 22

Ægir - 01.06.1932, Síða 22
156 ÆGIR framleiðendum, sem söltuð sé fyrir 25. júlí. Ættu menn fyllilega að gefa þessu gaum, því varla verður svo mikið verk- að í sumar, að vandkvæði verði með að ná í sæmilega síld eftir þann tíma. Ennfremur er tekið fram i bréfinu.að sambandið neiti að kaupa síld úr göml- um tunnum. Skipströnd. Hinn 27. mai, um há- degi, strandaði »Esja« við Höskuldsey á Breiðafirði í bezta veðri. Tjón varð ekki, nema ýmiskonar ruglingur og ó- þægindi, sem ferðafólk, sem með skip- inu var, varð fyrir og hætta varð við strandferðina. Sökurn þess, að eigi auð- ið að taka skip af Esjustærð á slip hér, varð það að fara til útlanda til við- gerðar, því botn þess var mikið skemmdur. Hinn 7. júní, strandaði »lslandið« við Siglunes í þoku og fór meðl3milna hraða. Togarinn Bpórólfur* (Kveldúlfs) dró skipið af grunninu og sýndi skip- stjóri Kolbeinn SigurðssoD, mikinn dugn- að ásamt skipverjum, við það verk. »íslandið lak ekki, svo ferð var hald- ið áfram til Kaupmannahafnar. Færeysk kol. Frá Þórshöfn í Færeyj- um er símað, að nú verði hafist handa á ný um kolavinnslu í Færeyjum. Ersagt, að Hedemann, heildsali í París, hafi fengið einkaleyfi til vinnslu kolanámanna iTrang- isvog á Suðureyju, eftir að hafa fengið umráðarétt yfir námunum frá frönsku félagi, sem fyiir nokkrum árum fékk rétt á þeim og hóf framkvæmdir, þótt minna yrði úr en í fyrstu var til ætlast. Áætlað er, að í námunum séu 120 millj. smálesta og að gæði kolanna standi eigi mjög að baki enskum kolum. Björgun. Fyrir nokkru siðan hvolfdi bál með 4 mönnum á leið frá Nesi t Grunnavík að Stað. Tvær unglingsstúlk- ur í Nesi settu fram bát og tókst þeim að bjarga mönnunum, all-þjökuðum. Bóndinn í Nesi, Elías Halldórsson, hef- ur að sögn bjargað alls 15 mönnum frá drukknun. Vitar og sjómerki. Auglýsing fyrir sjómenn 1932. Nr. 4. 8. Á Gnrðskagariíinn í norð- vestur af Garðskaga við Faxaflóa hefur verið lagt út ílotdufl á 20 m. dýpi. Á duflinu, sem er uppmjótt, og hvítmálað, er klukkasem hringir þegar duflið hreyfist 64°051/a' n. br. 22° 44' v. Igd., 17« sm. fjarlægð frá vitanum og í stefnu 106° til vitans. 9. Ljós- og hljóðduflið á Valhiis- grunni hefir verið tekið upp til eftir- lits. Á meðan verður rautt, kúpt dufl á grunninu. 10. Reykjavikur hafnarvitar (Garðvit- arnir) nr. 16 og 17, sýna leiftur 30 sinn- um á mínútu í stað 20, (sbr. Leiðsögu- bók bls. 39, 1. 19). 11. í Keflavíli við Faxaflóa hefir verið slofnuð björgunarstöð með flug- línutækjum. Breidd64°00' ,lengd 22°34' . 12. í Hjörsey á Mýrum hefir ver- ið stofnuð björgunarstöð með fluglínu- tækjum. Breidd 64° 32', lengd 22° 22’. Vitamálastjórinn. Th. Krabbe. Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson. Rikisprentsmiðjan Gutenberg.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.